Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 40
MARKAÐURINN 21. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Skattur sem landsmenn greiða af
tekjum lækkar um eitt prósent
um næstu áramót. Mun fólk þá
greiða 23,7 prósent af tekjum
sínum í ríkissjóð. Ofan á það
leggst skattur sveitarfélaga, svo-
kallað útsvar. Af 101 sveitarfélagi
taka 74 sveitarfélög hámarksút-
svar af launum fólks eða 13,03
prósent. Séu þessir skattar lagðir
saman greiðir þorri landsmanna
36,73 í skatt af launum sínum á
næsta ári.
Seltjarnarnesbær er eina
sveitarfélagið sem hefur ákveðið
að lækka útsvarið hjá sér á næsta
ári og verður það 12,35 prósent.
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri, segist varla muna eftir
því að sveitarfélög lækki álög-
ur á íbúa. Góð fjárhagsstaða
Seltjarnarnesbæjar geri þetta
mögulegt nú.
Aðeins þrjú sveitarfélög
inn heimta lágmarksútsvar,
sem ákveðið er með lögum frá
Alþingi, af launum íbúa sinna eða
11,24 prósent. Miðað við hæsta
leyfilega útsvar fær launamaður
að halda eftir tæpum 90 þúsund
krónum meira í þeim sveitarfé-
lögum miðað við fimm milljónir
króna árstekjur. Þessi sveitar-
félög eru Hvalfjarðarstrandah
reppur, Skorradalshreppur og
Helgafellssveit. - bg
Álögur á launafólk lækka
Seltjarnarnesbær eina sveitarfélagið sem lækkar
skatta. Lágmarksútsvar er fátítt.
BÆJARSTJÓRINN Á SELTJARNARNESI
Jónmundi Guðmarssyni finnst jákvætt að
íbúar haldi meiru eftir að tekjum sínum.
„Þeirri skoðun hefur verið varp-
að fram að hækkun bindiskyldu
kynni að vera heppilegri aðgerð
en hækkun vaxta til að draga úr
framboði lánsfjár. Seðlabankinn
er ósammála þessu,“ segir í svari
bankastjóra Seðlabankans til
efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, sem vildi vita afstöðu
bankans til þingsályktunartil-
lögu um að aðgerðir til að end-
urheimta efnahagslegan stöðug-
leika, eins og tillagan er kölluð.
Í umsögn bankans segir að
fjármálastofnanir geti vikið sér
undan áhrifum aukinnar bindi-
skyldu, aukin bindiskylda komi
misjafnlega niður á einstökum
lánastofnunum og erfitt er að
sjá fyrir áhrif breytinganna og
afleiðingar.
„Bankinn er sem fyrr þeirrar
skoðunar að framlag hans til
efnahagslegs stöðugleika felist
í að stuðla að stöðugu verðlagi
eins og lög kveða á um að hann
skuli gera. Til þess hefur hann í
meginatriðum aðeins eitt stjórn-
tæki, stýrivexti sína, og því mun
hann beita í þeim mæli sem
hann telur nauðsynlegt,“ segir í
umsögn Seðlabankans sem Davíð
Oddsson og Jón Sigurðsson
skrifa undir.
Vill ekki hækka bindiskyldu
Seðlabankastjórar vara við tillögu sem er sögð
endurheimta efnahagslegan stöðugleika.
BANKASTJÓRN OG AÐALHAGFRÆÐINGUR Skoðun Seðlabankans til bindiskyldu lána-
stofnana hefur ekki breyst eftir að Davíð Oddsson tók við sem formaður bankastjórnar.
Veltuaukning í dagvöru- og
áfengisverslun á tólf mán-
aða tímabili var minni í nóv-
ember en undanfarna mán-
uði samkvæmt mælingum
Rannsóknaseturs verslun-
arinnar. Setrið telur að það
sé vísbending um að nokk-
uð sé að hægja á vexti
einkaneyslu.
Velta í dagvöruverslun
var tíu prósentum meiri í
nóvember en á sama tíma
í fyrra á föstu verðlagi
en 7,8 prósentum meiri á
hlaupandi verðlagi. Velta
áfengis jókst um 12,4 prósent
á milli ára á föstu verðlagi en
um tólf prósent á hlaupandi
verðlagi.
Rannsóknasetrið býst
við að velta allrar smá-
sölu aukist um tæp ellefu
prósent í jólamánuðinum
samanborið við desember
2004.- eþa
Hægir á vexti einkaneyslu
Áfengissala eykst meira en sala á dagvöru. Sex milljarða velta var á fast-eignamarkaði vikuna 9.-15.
desember og nam meðaltal hvers
kaupsamnings um 45,4 milljón-
um króna. Það mun vera metupp-
hæð. Síðustu tólf vikurnar hefur
meðaltalið hins vegar verið 27,8
milljónir króna.
Töluverðar sveiflur eru á milli
vikna bæði í veltu og meðalupp-
hæð kaupsamnings og er erfitt
að fullyrða þróun markaðarins út
frá einum vikutölum. Þó má ætla
að stórar og dýrar fasteignir hafi
selst vel í vikunni sem var. - eþa
Meðalhúsið fór á 45 milljónir
MEIRA VÍN Velta í sölu áfengis jókst um
ríflega tólf prósent á milli ára.
Old Mutual hefur tryggt sér
62,5 prósent hlutafjár í Skandia.
Þetta er heldur undir takmarki
stjórnenda Old Mutual sem settu
stefnuna á 70 prósent en þó eru
ekki öll kurl komin til grafar
þar sem eitthvað af samþykkt-
um tilboðum á eftir að skila
sér. "Mér til mikillar gleði sér
meirihluti hluthafa þann spenn-
andi valkost að sameina félögin
tvöMutual-fjölskylduna," segir
Jim Sutcliffe, forstjóri OM, í
tilkynningu til Kauphallarinnar
í London. - eþa
OM tryggir
sig í Skandia
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Á morgun hefst hlutafjárútboð
flutningasamstæðunnar Avion
Group þar sem í boði eru ný
hlutabréf að markaðsvirði sex
milljarðar.
Samkvæmt útboðslýsingu er
Magnús Þorsteinsson langstærsti
hluthafinn í Avion Group með um
40 prósenta eignarhlut. Hlutur
hans minnkar niður í 37 prósent
í útboðinu. Næststærsti hluthaf-
inn er sem stendur Straumur-
Burðarás en hlutur hans mun
minnka talsvert þegar félagið
hefur greitt út hlutabréf í Avion
Group sem arð til 22 þúsund hlut-
hafa sinna.
Þetta þýðir að Pilot Investors
verður annar stærsti hluthafinn
en félagið er í eigu Lakehouse
Management AG í Sviss sem er í
eigu fjárfesta sem hvorki tengj-
ast öðrum eigendum í Avion né
stjórnendum.
Aðrir stórir hluthafar í Avion
eru meðal annars fyrrverandi eig-
endur Excel Airways, Arngrímur
Jóhannsson, stofnandi Atlanta,
stjórnendur í Eimskip o.fl.
Hagnaður Avion Group á
fyrstu tíu mánuðum ársins nam
37,7 milljónum dala eða tæpum
2,4 milljörðum króna sem er 87
prósenta meiri hagnaður en á
sama tímabili í fyrra. Tekjur
samstæðunnar voru um 76,4
milljarðar króna sem er um 275
prósenta aukning á milli ára en
heildargjöld um 73,4 milljörðum
króna. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir (EBITDA) nam því
þremur milljörðum króna.
Heildareignir Avion Group
eru eitt hundrað milljarðar en
eigið fé um 28 milljarðar króna.
Útboðinu er beint til fag-
fjárfesta í tengslum við skrán-
ingu félagsins á Aðallista
Kauphallarinnar í janúar.
Fjárfestar skila fyrst inn vilja-
yfirlýsingu þar sem fram kemur
fjöldi umbeðinna hluta og
gengi sem þarf að vera á bilinu
34,3-38,3 krónur á hlut. Þegar
Landsbankinn hefur úthlutað
hlutunum skila fjárfestar inn
bindandi tilboð í samræmi við
úthlutun.
Avion Group hefur gefið öllum
starfsmönnum sínum, sem eru
4.500 að tölu, hlutabréf að mark-
aðsvirði 50 þúsund krónur og
vinnur að kaupréttaráætlun fyrir
lykilstarfsmenn.
Magnús Þorsteinsson
langstærstur í Avion
Hagnaður félagsins nærri tvöfaldast milli ára. Huldufélag
verður næststærsti hluthafinn í félaginu.
MAGNÚS ÞORSTEINSSON Aðaleigandi
Avion GroupFélagið hagnaðist um 2,4
milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Á
morgun hefst hlutafjárútboð í tengslum við
skráningu í Kauphöllina.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnar-
formaður SPV, segir að stjórn-
in hafi samþykkt eigendaskipti
að fjórum prósentum stofnfjár
í sparisjóðnum. Kaupandi bréf-
anna er MP-Fjárfestingarbanki
sem hefur lýst því yfir að fyr-
irtækið hafi hug á að eignast
allt að tíu prósent stofnfjár í
SPV. Ætla má að markaðsvirði
að fjórum prósentum stofnfjár
nemi um 120 milljónum króna.
Jón segir að MP-verðbréf hafi
leitað til sín með það í huga
hvernig væri best að standa að
kaupunum.
„Ég er ánægður með að þetta
sé allt uppi á borðinu. Það er
vitað hver er að kaupa og mjög
jákvætt að það sé hægt að versla
með hluti því marga stofnfjáreig-
endur hefur langað til að selja.“
Að sögn Jóns er áhugi innan
stjórnar sparisjóðsins að koma
á fót stofnfjármarkaði í líkingu
við þann sem hefur verið starf-
ræktur af hálfu SPRON í meira
en ár. Fyrst verði þó líklega að
breyta samþykktum SPV þannig
að stofnfjáreigendum verði
heimilt að fara með atkvæðisrétt
að fleiri en sex bréfum en tillaga
þess efnis var felld á síðasta
aðalfundi SPV.
Sigurður Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri hjá MP-
Fjárfestingarbanka, segir að
stofnfjáreigendur hafi sýnt
frumkvæði bankans mikinn
áhuga og leitað mikið til hans.
Þótt fjárfestingarbankinn eigi
um fimm prósent stofnfjár þá fer
hann aðeins með atkvæðisrétt af
sex bréfum. Útgefin stofnfjár-
bréf í SPV eru 3.205. - eþa
Mikil viðskipti með stofnfé í SPV
Áhugi að koma á fót markaði með stofnfjárbréf sparistjóðsins.
TÍU STÆRSTU HLUTHAFAR
AVION GROUP AÐ LOKNU ÚTBOÐI *
Frontline Holding 37,30% **
Pilot Investors 11,30%
Straumur-Burðarás 6,50%
Basalt Investments 3,70%
Philip Wyatt 3,70%
Craqueville 3,20%
Topos Holding 3,10% ***
Arngrímur Jóhannsson 3,00%
Fidecs Trust Company 2,30%
Blue Sky Transport 2,00%
* 22 þúsund hluthafar í Straumi skipta með sér 8,3
prósent hlutafjár í hlutfalli við hlutafjáreign sína.
* Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion
Group
** Í eigu Baldurs Guðnasonar, forstjóra Eimskipa, og
Steingríms Péturssonar.
MEIRA VÍN Velta í sölu
áfengis jókst um ríflega tólf
prósent á milli ára.