Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 38
21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR8
Nú er tími jólahlaðborðanna
og margir freistast til að
taka forskot á matarsæluna
fyrir jólin. Nokkur af fremstu
veitingahúsum bæjarins bjóða
upp á góðan mat í hádeginu
sem vert er að athuga nánar.
Það er ekki ódýrt að fara út að
borða á fínum veitingastað en það
þarf ekki að vera dýrt. Á mörg-
um veitingahúsum er hægt að fá
mat í hæsta gæðaflokki á góðu
verði. Til að mynda býður Hótel
Holt upp á ódýran jólamatseðil
á veitingastað sínum, Listasafn-
inu. Í hádeginu kostar seðillinn
3.100 kr. á mann. Þar kennir
ýmissa grasa en hægt er að velja
um þrjá rétti í forrétt, aðalrétt
og eftirrétt. Dæmi um máltíð
gæti verið rjómalöguð saffran
skelfiskssúpa með hvítlauksflani
og hörpuskel í forrétt, hreindýr-
asmásteik með beikonkartöflum,
villisvepparagú, kastaníumauki
og rauðvínsperusósu í aðalrétt,
og mjólkursúkkulaði brulée með
kanil-eplaís.
Veitingastaðurinn Vox á Nor-
dica hótel býður upp á glæsilegt
jólahlaðborð í hádeginu. Hádeg-
isseðillinn á Vox kostar 3.250 kr.
Bæði Humarhúsið og La
Primavera bjóða upp á hádegis-
matseðla og á La Primavera er til
dæmis hægt að fá hreindýrakjöt
og kostar þriggja rétta máltíð,
þar sem hægt er að velja um þrjá
rétti, 2.190 kr. í hádeginu.
Sjávarkjallarinn fer aðeins
aðra leið í jólaundirbúningnum.
Þeir bjóða upp á svokallaðan
Jóla-exotic matseðil, en þá er það
í höndum kokksins að velja góð-
gæti á diskinn. Hádegismatseðill
þeirra er einnig með jólaívafi og
er hann ódýrari en sá sem boðið
er upp á síðla dags.
Snyrtistofan Eygló Langholtsvegi 17
Snyrtistofan María Bólstaðahlíð 43
Caríta-Snyrting Hafnarfirði
Snyrtistofan Líkami og Sál Mosfellsbæ
Snyrtistofan Dröfn Vestmannaeyjum
Gjafakort
Jólagjöfin í ár
GÉRnétic húðnæringarvörur
fyrir konur og karla
�����������
� ������������
�����������������������������
Jólaverslunin mun brátt nálg-
ast sitt hámark. Fleiri og fleiri
verslanir hafa á síðustu árum
fengið öryggisverði til þess að
gæta verslana sinna. Það er þó
ekki þar með sagt að þjófnuð-
um fjölgi.
Árni Guðmundsson, forstöðumað-
ur gæslusviðs Securitas, segir að
fyrirtækið þurfi að bæta við tugum
starfsmanna yfir jólatímabilið,
sérstaklega óski verslanir eftir
öryggisvörðum á Þorláksmessu.
,,Á Þorláksmessu fáum við um 60-
70 aukamenn. Þetta eru langmest
verslanir og fyrirtæki sem eru að
auka öryggisgæsluna. Eftirspurn
eftir öryggisgæslu hefur aukist
jafnt og þétt,“ segir Helgi og and-
mælir því að þjófnuðum fjölgi.
,,Starfsfólk hefur nóg með að
sinna viðskiptavinum í afgreiðslu,
þannig að verslanir ráða okkur til
þess að sjá um fyrirbyggjandi eft-
irlit,“ segir Helgi.
Agnar Agnarsson, verkefna-
stjóri öryggisdeildar hjá Öryggis-
miðstöð Íslands, hefur nær sömu
sögu að segja. Verslanir um allan
bæ sækist í auknum mæli eftir
öryggisvörðum. ,,Hægt og bítandi
hefur þetta verið að aukast,“ segir
Agnar og bætir við að það séu nær
eingöngu verslanir sem nýti sér
þessa þjónustu.
Agnar segir að hingað til hafi
verðir á vegum fyritækisins ekki
ent í neinum teljandi vandræð-
um. ,,Öll vandamál hafa leyst
farsællega. Það eru mest þessir
smáþjófnaðir sem koma upp. Við
lendum ekki í neinum slagsmál-
um eða neinu slíku,“ segir Agnar
að lokum.
steinthor@frettabladid.is
Öryggisgæsla eykst til
muna um hátíðarnar
Öryggisverðir sjá um fyrirbyggjandi eftirlit í verslunum. VALLI
Hreindýrakjöt þykir herramanns matur
og er víða að finna á jólamatseðlum
veitingahúsa.
FRETTABLAÐIÐ/VALLI
Hangikjöt ratar í munn flestra landsmanna um jólin en sjaldan lítur það svona glæsilega út
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Gott að borða jólamat í hádeginu
550 5600
Nýtt símanúmer
hjá dreifingu: