Fréttablaðið - 15.02.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 15.02.2006, Síða 6
6 15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Nær 60 milljónum króna verður varið í varnir gegn fuglaflensu, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar í gær. Hún hefur heimilað að verja 56 milljónum á fjáraukalögum til að styrkja embætti sóttvarnalæknis og almannavarna í þessu verkefni. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra segir að um 10 milljónir af þessari upphæð fari til sýnatöku á alifuglum og villtum fuglum. Þá þurfi að bæta rannsóknaraðstöðu á Keldum. Það mál sé í vinnslu. „Í framhaldinu þarf vafalaust að huga að dreypilyfjum,“ segir ráðherra. „Af þeim þurfa að vera til birgðir að minnsta kosti til eins árs.“ Spurður um möguleika á að framleiða slík lyf hér, segir ráðherra að stjórnvöld hyggist ekki hefja slíka framleiðslu að sinni. Hún hefði í för með sér stofnkostnað upp á um það bil 700 milljónir króna. Fjármunir verði lagðir fram til þess að heilbrigðisstofnanir geti komið sér upp forða. Kostnaður við það geti orðið um 20 milljónir króna. „Svo eru aðrir liðir sem eru kostn- aðarsamir,“ segir ráðhera. „Ef kæmi upp neyðarástand þá myndu einnota sóttvarnarbúningar fyrir heilbrigð- isstarfsfólk kosta allt að 300 millj- ónum króna.“ - jss SÓTTVARNARBÚNINGAR Einnota sóttvarnarbúningar fyrir heilbrigðisstarfsmenn kosta allt að 300 milljónum króna. Ríkisstjórnin samþykkir fjármagn til inflúensuvarna: Um 60 milljónir gegn fuglaflensu KYNFERÐISBROT Refsing við kyn- ferðismökum við börn yngri en 14 ára verður allt að 16 ára fangelsi samkvæmt frumvarpi til breyt- inga á almennum hegningarlög- um sem Björn Bjarnason dóms- málaráðherra hefur lagt fyrir ríkisstjórn til kynningar. Frumvarpið mælir fyrir um breytingar á fjölda greina hegn- ingarlaga sem taka til nauðgunar, kynferðisbrota gegn börnum og vændis. Lagt er til að nauðgun verði skilgreind víðar en nú er. Þannig teljist misnotkun á bágu andlegu ástandi vera nauðgun og einnig ef þolandi getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans. Refsing verður þyngd til muna og getur fangelsun numið allt að 16 árum í stað sex ára eins og nú er. Frumvarpið gerir ráð fyrir að fest verði í lög nokkur atriði sem þyngt geta refsingu fyrir nauðg- un. Þannig getur meðal annars ungur aldur þolenda leitt til þyngri refsingar en ella. Ragnheiður Bragadóttir, laga- prófessor og höfundur frum- varpsins, segir að með því að þyngja refsingu sé einnig komið til móts við sjónarmið um að kynferðisbrot gegn börnum ættu ekki að fyrnast. „Aðeins brot sem varða ævilöngu fangelsi eins og manndráp og landráð fyrnast ekki. Ekkert áðurgreindra brota fellur í þann flokk. Almennt gild- ir að eftir því sem lengri tími líður frá broti verður af ýmsum ástæðum erfiðara að sanna það. En með því að þyngja hámarks- refsingu getur fyrningartíminn lengst sjálfkrafa úr fimm í tíu ár svo dæmi sé tekið,“ segir Ragn- heiður. Með því að þyngja refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum yngri en 14 ára er gefið til kynna hversu alvarleg brotin teljast. Nauðgun og kynmök við börn yngri en 14 ára verða alvarleg- ustu brotin samkvæmt frumvarp- inu en samkvæmt ríkjandi lögum er það nauðgunin ein. Samkvæmt frumvarpinu fara kynferðisbrot gegn börnum ekki að fyrnast fyrr en við 18 ára aldur en í ríkjandi lögum er miðað við 14 ára aldur. Lagt er til að refsing fyrir kyn- ferðislega áreitni gegn börnum verði þyngd. Áhrifin verða sem áður að brot gegn ungum börnum fyrnast á mun lengri tíma en þau gera samkvæmt gildandi lögum. johannh@frettabladid.is Þyngri refsingar fyrir barnaníðinga Kynferðisbrot gegn börnum geta varðað allt að 16 ára fangelsi samkvæmt nýju frumvarpi dómsmálaráðherra. Brotin eiga einnig að fyrnast á lengri tíma en áður. Nauðgun er endurskilgreind og nær til fleiri brota en í ríkjandi lögum. FANGELSI Verði frumvarpið að lögum teljast kynferðisbrot gegn börnum með alvarlegustu glæpum og geta varðað allt að 16 ára fangelsi. BJÖRN BJARNASON DÓMSMÁLARÁÐHERRA Samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra leng- ist fyrningartími kynferðisbrota gegn börnum sjálfkrafa með hækkun hámarksrefsingar. VÆNDI Í nýju frumvarpi dóms- málaráðherra um kynferðisbrot er einnig gert ráð fyrir því að refsilaust verði að stunda vændi til framfærslu. Sem fyrr verður kynlífs- þrælkun, mansal og miðlun eða verslun með kynlífsþjónustu bönnuð og getur varðað allt að fjögurra ára fangelsi. Þá er hvers kyns vændi undir 18 ára aldri bannað og refsivert. Ragnheiður Bragadóttir, laga- prófessor og höfundur frum- varpsins, segir að í raun sé vændi refsilaust í gildandi lögum nema það sé til framfærslu. „Lagt er til að það ákvæði verði afnum- ið. Seljandi kynlífsþjónustu er yfirleitt illa settur félagslega og hefur ef til vill ekkert val. Litið er svo á að þann vanda verði að leysa á félagslegan hátt. Þó verður samkvæmt frumvarpinu bannað að auglýsa og á nokkurn hátt að miðla slíkri þjónustu af öðrum.“ Ragnheiður segir að Norðmenn og Danir hafi ekki enn viljað fara þá leið sem farin var í Svíþjóð, en þar er nú bannað með lögum að kaupa kynlífsþjónustu. „Sænska leiðin er ekki farin í þessu frum- varpi en rannsóknir skortir sem sýna að dregið hafi úr vændi í Svíþjóð með því að gera kaup á kynlífsþjónustu refsiverð,“ segir Ragnheiður. - jh Vændi til framfærslu er ekki refsivert í nýju lagafrumvarpi en bannað að auglýsa: Engin refsing við vændi RAGNHEIÐUR BRAGADÓTTIR LAGAPRÓF- ESSOR Hvers konar milliganga eða viðskipti með kynlífsþjónustu er og verður ólögleg samkvæmt nýja frumvarpinu. FRETTABLAÐIÐ/HEIÐA VIÐSKIPTI Íslendingar eiga og reka meira en tíu fyrirtæki í Lettlandi og fleiri en tvö fyrirtæki í Litháen en líklega aðeins eitt í Eistlandi. Fyrir utan starfsfemi Nordic Partners og Norvik eru HG Grandi, Pólýhúðun og 66°Norður með starfsemi í Lettlandi. Í Litháen eru Ilsanta og Farma og að auki er Hampiðjan Balt- ic með Utzon. Ósk blaðamanns Fréttablaðsins um að fá að skoða starfsemi Hampiðjunnar var hafnað. Í Eistlandi er íslenska fyrir- tækið Natural. - ghs Íslendingar í Eystrasaltslöndum: Tíu fyrirtæki í Lettlandi JYSK Í EYSTRASALTSLÖNDUNUM Rúmfata- lagerinn hefur umsvifamikla starfsemi í Litháen og Lettlandi. Verslanirnar heita þar Jysk. FRÉTTABLAÐIÐ/GHS LITHÁEN Íslenska fyrirtækið Láns- traust á og rekur upplýsingaveitu í Litháen undir nafninu Info Bankas. Viðskiptavinir eru eink- um fjarskiptafyrirtæki og fjár- mögnunarfyrirtæki. Andrius Boganovicius, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að félagið sé stærsta félagið af þessu tagi í Litháen en eigand- inn, Creditinfo, eigi um 28 önnur félög austar í Evrópu og í Mið- Austurlöndum. - ghs Lánstraust í Litháen: Stærsta upplýs- ingaveitan INFO BANCAS KJÖRKASSINN Verður Dagur B. Eggertsson næsti borgarstjóri í Reykjavík? Já 56% Nei 44% SPURNING DAGSINS Í DAG Gafstu blóm í tilefni Valentínus- ardagsins? Segðu skoðun þína á visir.is MÚHAMEÐSTEIKNINGAR, AP Jose Manuel Barroso, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, ber hönd fyrir höfuð Dana í deilunni um Múhameðs- teikningarnar í ummælum sem birt voru í Jótlandspóstinum danska í gær, en í því blaði birtust teikningarnar upphaflega. Í við- talinu segir Barroso að ekki megi gefa afslátt af tjáningarfrelsinu. Að sögn Barroso er tjáning- arfrelsið „grundvallargildi“ í Evrópu. „Það er betra að birta of mikið en að hafa ekki frelsi,“ hefur Jótlandspósturinn eftir honum. JOSE MANUEL BARROSO Segist í uppnámi yfir and-danska fárinu. NORDICPHOTOS-AFP Jose Manuel Barroso: Betra að birta meira en minna DANMÖRK Fulltrúar samtaka hóf- samra múslíma í Danmörku telja líklegt að koma hefði mátt í veg fyrir mótmæli múslíma víða um heim. En þá hefði Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra landsins, þurft að verða við beiðni sendiherra múslímskra ríkja um fund vegna Múhameðsteikning- anna. Í Politiken í gær segir að áhrifamiklir leiðtogar múslíma í Danmörku hafi reynt að koma óánægju sinni vegna teikninganna á framfæri í gegnum sendiherr- ana. En það hafi ekki heppnast. Því hafi þeir leitað út fyrir land- steinana. Samkvæmt frétt Politiken í gær hófu starfsmenn egypska sendiráðsins í Kaupmannahöfn að vekja athygli á málinu í Mið-Aust- urlöndum í kjölfar þess að fundar- beiðninni var hafnað í haust. - ks Múslímar í Danmörku: Mótmælin á ábyrgð Foghs Sá skotni fær hjartaáfall Maðurinn sem Dick Cheney, varaforseti Bandaríkj- anna, skaut slysaskoti í veiðiferð þeirra í Texas á laugardag fékk vægt hjartaáfall í gær vegna hagls sem lenti í hjartavöðv- anum. Hann var fluttur á gjörgæslu á ný en er ekki talinn í lífshættu. Þó segja læknar að hann muni aldrei ná sér að fullu. BANDARÍKIN ANDERS FOGH RASMUSSEN, forsætisráð- herra Danmerkur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.