Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 18

Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 18
 15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Vald peninganna Í bækistöðvum stjórnmálaflokkanna víða um land er nú setið frameftir á kvöldin og um helgar og skeggrætt um hernaðarlist, hugmyndafræði og málefnastöðu. Enda dregur að sveitar- stjórnarkosningum og hrinu prófkjara að mestu lokið. Frambjóð- endur í Reykjavík hafa horft með skelfingu á vaxandi kostnað við að skapa sér sér stöðu. Flestar krónurnar fara í auglýsingar í dagblöðum og ljósvakamiðlum, en í vaxandi mæli á netinu. Milljónir fyrir fyrsta sætið Gísli Marteinn Baldursson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tróna efstir á þessum lista með sjö til níu milljónir króna hvor í prófkjörskostnað.Baráttan um fyrsta sætið hjá Framsóknarflokknum og Samfylkingunni kostaði einnig á bilinu þrjár til fimm milljónir króna samkvæmt úttekt Ríkisútvarpsins. Framlögin koma að mestum hluta frá félagasamtökum, ættingjum, vinum og fyrirtækjum en sumir frambjóðendanna segjast hafa greitt á aðra milljón króna úr eigin vasa.Reyndin er líklega sú að framlögin eru að mestu styrkir og gjafir frá fyrirtækj- um eða lögaðilum, sjálfsagt um 40 milljónir króna sam- tals í höfuðborginni. Gef ef ég græði á því Og þar eru rætur vandans. Ríkisskattstjóri hefur nefni- lega skilgreint stjórnmála- flokk þannig í bréfi frá árinu 2002 að gjafir og styrkir geta því aðeins komið fyrirtækjum til frádráttar frá tekju- og eignaskatti að styrkurinn sé til stjórnmálaflokks. Þetta merkir á manna- máli að gjafir og styrkir til einstaklinga í prófkjöri eru ekki gjafir og styrkir til stjórnmálaflokka í lagalegum skilningi. Af þessu leiðir að slík framlög teljast ekki frádráttarbær hjá fyrirtækjum. Vandinn er einnig sá, að ef fyrirtæki vill sneiða hjá þessu og gefa stjórnmála- flokki með viðurkenndum hætti, segjum 400 þúsund krónur, yrði viðkomandi flokkur að deila upphæðinni út milli frambjóðendanna á óvilhallan og réttlát- an hátt. Þannig gæti yfirstjórn flokksins ekki ákveðið að styrkja „gæluframbjóð- anda“ en keppinauta hans ekki.Rækt við lýðræðishugsjónir hlýtur að fela í sér reglur sem miða að jöfnum aðgangi til stjórnmálaþátttöku óháð peningavaldi. johannh@frettabladid.is Það er víst skrattinn sem hefur skemmt sér best yfir látunum í kjölfar birtingar Jótlandspóstsins á skopmyndum af Múhameð spá- manni. Eins og vant er til þegar ólíkir heimar rekast saman verð- ur hið harða og hið einfalda meira aðlaðandi en áður. Og eins og oft gerist þegar flókin umræða fer af stað, ekki síst á Íslandi, enda menn í staðalímyndum af fólki og heimum, búa til kunnuglega ein- kennisbúninga handa andstæðing- um sínum og grafa sig svo niður í þægilegar skotgrafir. Þeir sem hafa efast um dóm- greind dansks ritstjóra eru víst orðnir andstæðingar tjáningar- frelsis, eða í það minnsta áhuga- lausir um framgang þess. Þeir eru jafnvel sagðir haldnir hatri á sínum eigin menningarheimi og sektarkennd yfir góðu hlutskipti. Þar er komin sálfræðikenning sem ekki hefur ratað á margar bækur en var vinsæl hjá eldra fólki fyrr á árum sem skýring uppreisn vestrænnar æsku gegn stríðinu í Víetnam. Úr hinni áttinn er gefið í skyn að menn sem vilja sýna sam- stöðu með dönskum blaðamönn- um, eða bara Dönum í vanda, séu skilningslitlir áhugamenn um ill- indi í mannfélaginu. Ýmiss konar samhengi vantar líka, þó ekki nema væri við DV málið. Þá voru flestir sammála um að þetta með tjáningarfrelsið væri ekki alveg svo einfalt að menn ættu bara að birta það sem þeim sýndist hverjar sem hvatir þeirra væru. Málið er hins vegar merkilegt og um margt sérlega áhugavert. Þótt skrattinn einn geti beinlínis haft gaman af málinu ættu áhugamenn um margvíslegustu hluti allt frá hnattvæðingu, alþjóðlegum við- skiptum, fjölmiðlun og menningu yfir í tjáningarfrelsi og trúar- brögð að finna á því hnýsilegar hliðar. Kjarni þess er ekki sá að tján- ingarfrelsi á Vesturlöndum sé ógnað af múslimum, þótt stór hluti af umræðunni virðist snú- ast um þá einkennilegu skoð- un. Tjáningarfrelsi hefur aldrei verið meira og almennara í okkar heimshluta og samstaða okkar um helgi þess er líklega meiri en um nánast nokkuð annað. Það er líka í sókn víðast í heiminum. Sæmi- leg dómgreind er ekki ritskoðun eða atlaga við tjáningarfrelsi eins og flestir sáu þegar DV átti í hlut. Eins og þá þýðir hún heldur ekki að menn séu að veita trúarbrögð- um eða einhverjum öðrum fyrir- bærum skipulega vernd frá gagn- rýni. Trúarbrögð hafa aldrei í mannkynssögunni verið jafn lítið varin fyrir tjáningarfrelsi og nú og þróunin hnígur enn í rétta átt í þeim efnum. Málið snýst miklu frekar um stærstu sögu samtímans, þróun- ina til þeirrar áttar að heimurinn er að verða að einum stað. Hversu slæmt eða gott sem mönnum finnst það þá geta ríki ekki leng- ur afmarkað sig sem sjálfstæð eylönd í hafi sem skilur þjóðir. Aflvaka nánast allra mikilvægra breytinga í þjóðlífi, atvinnulífi og menningu, jafnvel í stærstu ríkj- um heims, er í reynd að finna utan hvers lands. Hið almenna mótar sífellt meira allt hið sérstaka. Menn þurfa ekki að rýna í fréttir hvers dags með sérstökum gler- augum til að sjá að margar þeirra eru í reynd frásagnir af tilraunum manna og samfélaga til að bregð- ast við hnattvæðingu í viðskipt- um, stjórnmálum og menningu. Þannig er þetta alls staðar í heim- inum. Fréttir af ólíkustu málum í ólíkustu löndum snúa að öngum þessa máls, oft um ógnanir eða tækifæri í atvinnulífi, en sífellt oftar um fyrirbæri á sviði menn- ingar eða þjóðlífs. Eitt af því sérstaka við þessa þróun er að hún virðist alls stað- ar koma utan frá. Hún leiðir þess vegna til tilfinninga um ógnanir og öryggisleysi. Þróunin var að mestu leyti á forsendum leiðandi ríkja Vesturlanda en hún er það ekki lengur. Það vekur eðlilega ugg hjá mörgum og óskir um aft- urhvarf til einfaldari tíma eins og vel má sjá í dönskum fjölmiðlum þessa dagana. Vesturlönd eru því lent í sömu stöðu og aðrir hlut- ar heimsins hafa verið í síðustu aldirnar. Eitt hið gleðilegasta við þróun síðustu ára er að tjáningar- frelsi hefur stórlega aukist víða í heiminum og líklega meira en menn myndu álíta að óathugðu máli. Þetta vekur víða ótta, frelsi ógnar því viðtekna. Mál síðustu daga var hins vegar ekki alveg sú auglýsing sem tjáningarfrelsið, okkar besta framlag til heimsins, þurfti á að halda. Merkilegra en það sýnist Í DAG TJÁNINGARFRELSI JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Málið snýst miklu frekar um stærstu sögu samtímans, þróunina til þeirrar áttar að heimurinn er að verða að einum stað. Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Umræður um dóma yfir kynferðisafbrotamönnum hafa oft verið háværar á undanförnum árum vegna þess að mönn-um hefur fundist að þeir hafi í mörgum tilfellum verið allt of vægir. Sönnunarbyrðin í slíkum málum er oft á tíðum mjög erfið þegar orð stendur á móti orði, en það á ekki að koma í veg fyrir það að hægt sé að dæma menn í þunga refsingu í slík- um málum, teljist sök á annað borð sönnuð að mati dómstóla. Í kjölfar margendurtekinnar umræðu um slíka dóma ákvað dóms- málaráðherra í maí á síðasta ári að fela Ragnheiði Bragadóttur, lagaprófessor við Háskóla Íslands, að semja frumdrög að breyt- ingum á ákvæðum í kynferðisbrotakafla almennra hegningar- laga. Dómsmálaráðherra hefur nú kynnt þessi drög og gert þau aðgengileg á Netinu. Það heyrir til nýmæla og er eftirbreytni- vert að almenningi gefst nú kostur á að segja álit sitt á drögun- um áður en frumvarpið verður lagt fram á Alþingi. Meginefni frumvarpsins er að lagt er til að hugtakið nauðgun verði rýmkað mjög frá því sem nú er. Sem dæmi má nefna að misnotkun á bágu ástandi þess sem nauðgað er, svo sem vegna ölvunar eða svefns, telst nú nauðgun. Þá er hámarksrefsing þyngd úr sex árum í sextán og lögfest ákvæði um þyngingu refs- ingar vegna ungs aldurs þolanda svo dæmi séu nefnd. Þá eru sérstök ákvæði varðandi brot gegn börnum fjórtán ára og yngri. Það eru oft slík mál sem hafa orðið tilefni mikillar umræðu. Oft hafa þessi mál ekki komið í dagsljósið fyrr en mörgum árum síðar og geta því verið erfið viðureignar af ýmsum ástæðum. Þótt hámarksrefsing sé nú þyngd í sextán ár þá er hámarksrefs- ing töluvert þyngri í sumum nágrannalöndunum, eða allt upp í 21 ár, en þá þurfa að vera fyrir hendi sérstakar refsihækkunará- stæður. Eitt ákvæðið í drögunum er varðandi fyrningarfrest, og á nú að miða við átján ára aldur í stað fjórtán áður. Málum vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustöðum hefur fjölgað á undanförnum árum, og við því er brugðist í þessum lagadrögum. Refsing fyrir kynferðislega áreitni getur verið allt að tveggja ára fangelsi. Sérstakur kafli er í drögunum um vændi. Þar er lagt til að hver sem hefur atvinnu eða viðurværi af vændi annarra skuli sæta allt að fjögurra ára fangelsi en ákvæði um refsingu fyrir að stunda vændi sér til framfæris á að falla niður. Þess í stað á að refsa fyrir að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum við annan mann í opinberum auglýsingum. Í greinargerð með drögunum er fjallað um sænska ákvæðið svokallaða, um að það sé refsivert að kaupa sér kynlífsþjónustu. Hér á landi eins og víðar hafa verið skiptar skoðanir um þetta ákvæði og má því búast við umræðum um hvort slíkt ákvæði skuli vera í væntan- legu frumvarpi og endurskoðuðum lögum. Rýmkun á nauðgunarhugtakinu og þyngri refsingar fyrir nauðgun virðast við fyrstu sýn vera meginatriði þeirra draga að lagafrumvarpi sem nú hafa verið lögð fram, auk þyngri refsing- ar og breytts fyrningarfrests fyrir samræði eða önnur kynferð- ismök við börn yngri en fjórtán ára. Oft er það svo að það eru einhverjir sem eru nátengdir börnunum sem verða uppvísir að slíkum svívirðilegum glæpum. Þrátt fyrir að refsing fyrir slíka glæpi verði nú þyngd, þá verður hið varanlega andlega áfall þeirra sem eru þolendur seint bætt, hvorki með fjármunum eða refsingu gerandans. Það þarf því líka að huga betur að fórnarlömbunum. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Dómsmálaráðherra bregst við umræðum um kynferðsdóma Þyngri dómar í kynferðisbrotamálum Skeifan 4 S. 588 1818

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.