Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 19

Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 19
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Utsala´ Neonlljós, sportstýri, græjur, bílhátalarar, bassabox o. fl. Neonljós, Xenon perur,gírhnúar ofl. Bíltæki, bassabox ofl. Sportstýri, petalar, felgur ofl. Full búð af aukahlutum allt á útsölu Opið virka daga 8-18 30% 40% 20% AGMótorsport - Klettháls 9 110 Reykjavík - s. 587 5547 Verslun á netinu : www.agmotorsport.is ´ Karen Sif Róbertsdóttir er nemandi í grafískri miðlun í Iðnskólanum í Reykjavík. Hún segir að námið sé mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Grafísk miðlun er tveggja ára nám. „Fyrstu þrjár annirnar eru undirbúningsnám og síðan tekur sérnámið eina önn,“ segir Karen, sem er búin með grunnnámið og er í sérnáminu núna. „Grunnnámið heitir grunndeild upplýsinga- og fjölmiðlabrautar og allir taka það. Síðan er hægt að velja um sex sérfög og grafísk miðlun er eitt af þeim.“ Karen segir að námið sé mjög fjölbreytt og skemmtilegt. „Við lærum að setja upp bækur, gera lógó, hanna vefi og auglýsingar, vinna með texta og læra á leturstærð og pappírsstærð. Þetta er aðallega tölvuvinna en mjög fjölbreytt.“ Karen segir að hópurinn sem hún er með í grafísku miðluninni sé mjög góður. „Við erum tólf, sem erum alltaf saman inni í sömu stofunni og sitjum við tölvurnar okkar. Stundum erum við látin gera hópverkefni og það er mjög skemmtilegt. Við erum til dæmis nýbúin að gera hópverkefni sem heitir Andlit fyrirtækis. Í því þurftum við að hanna auglýsingar, nafnspjöld, bréfsefni, vef og allt í kringum það. Það var rosalega skemmtilegt.“ Karen er ekki búin að ákveða hvað hún tekur sér fyrir hendur þegar hún klárar námið í vor. „Við erum nokkrar í grafísku miðluninni sem höfum svolítið haldið hópinn og við höfum verið að skoða skóla í Danmörku saman. Það er aldrei að vita hvað við gerum þegar við erum búnar með þetta,“ segir Karen. emilia@frettabladid.is Hannar nafnspjöld, vefi og auglýsingar Karen segir að hópurinn í grafísku miðluninni sé mjög góður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GÓÐAN DAG! Í dag er miðvikudagurinn 15. febrúar, 46. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 9.23 13.42 18.02 Akureyri 9.16 13.26 17.38 GPS-rötunarnámskeið verður haldið á vegum Útivistar. Nám- skeiðið er aukanámskeið vegna mikillar eftirspurnar. Farið verður í helstu atriði í rötun og ferðamennsku og notkun GPS tækja. Leiðbeinandi er Sigurður Jónsson hjálparsveitar- maður. Verð fyrir félags- menn er 1.200 krónur og almennt verð er 2.000 krónur. Vetrarrall verður helgina 17. til 19. febrúar þar sem eigendur gamalla Volvo-bíla koma saman í Luleå í Norður-Svíþjóð þar sem nú er mikið vetrarríki, snjóalög og miklir kuldar. Bílarnir, sem þátt taka í sjálfri rallkeppninni, eru af ýmsum gerðum og frá ýmsum tímabilum í sögu Volvo en engin aldurs- eða önnur skilyrði eru sett fyrir þátttöku. Nánari upplýsingar má fá á www.vomac.org. Mímir símenntun verður með námskeið í útsaumi, harðangri og klaustursaumi sem hefst í byrjun mars. Kennd verða undir- stöðuatriði við útsaum og koma nokkrar aðferðir við sögu, til dæmis flatsaumur og tunguspor. Efni er innifalið og kennari er Ásta Kristín Siggadóttir. ALLT HITT [FERÐIR NÁM BÍLAR] RENAULT MÉGANE II Í byrjun mars verður kynntur nýr Mégane II lítillega breyttur. BÍLAR 2 LISTDANS Nýstofnaður dansflokkur stúd- enta æfir stíft. NÁM 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.