Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 28

Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 28
MARKAÐURINN 15. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Óli Kristján Ármannsson skrifar Microsoft á Íslandi og Microsoft um heim allan hvetja um þessar mundir fyrirtæki í hugbúnaðarleyfisáskrift til að uppfæra Office-hugbúnaðarvöndulinn. Í bréfi sem fyrirtækið sendir út kemur fram að hluti kóða Office og Access brjóti gegn einkaleyfi og því hafi fyrirtækið gefið út uppfærslu. Hér tók Microsoft að senda bréf í byrjun mánaðarins en víða erlendis hófust sendingarnar í janúar. Sendingarnar koma í kjölfar dóms sem féll í Bandaríkjunum í sumar vegna hug- búnaðartenginga í Access-gagnabönkum og Excel-skjölum. Hugvitsmanninum Carlo Armando Amado voru dæmdar 8,9 milljónir Bandaríkjadala í bætur vegna brots fyrir- tækisins gegn einkaleyfi hans. Elvar Steinn Þorkelsson, framkvæmda- stjóri Microsoft á Íslandi, segir dómnum hafa verið áfrýjað, en notendur séu beðnir að upp- færa vegna óvissunnar um mála- lokin. „Virknin eftir uppfærslu er alveg sú sama,“ segir hann. Vegna þess að öðruvísi horfir með skyldur fyrirtækisins vegna forritaleyfa sem seld eru í áskrift en þeirra sem seld eru í búð eru áskrifendur einir beðnir að upp- færa. Litið er svo á að pakkar úti í búð séu seldir eins og þeir eru á ákveðnum tímapunkti, meðan hugbúnaðarleyfum fylgja kvaðir um uppfærslu og ákveðið viðhald á hugbúnaðinum. Alla jafna segir Elvar ekki mikið umstang fylgja uppfærslunni. „Það ræðst pínulítið af því hvernig tölvukerfi eru sett upp. Flest af stærri fyrirtækjum okkar, bankarnir og fleiri, eru með ferla þar sem uppfærslur keyra í bakgrunni yfir nótt og not- endur sjá engan mun að morgni,“ segir hann. Nokkuð hefur þó verið skrifað um málið í erlendum miðlum og heyrast þær raddir sem þykja nokkuð á fyrirtækin lagt að þurfa að bregðast við tapmáli Microsoft með þessum hætti. Auk þess sem þær raddir heyrast að með bréfaskriftun- um sé fyrirtækið ekki að gera annað en firra sig ábyrgð gagn- vart einkaleyfishöfunum, meðan réttarstaða fyrirtækja sem ekki uppfæri búnað sinn sé óljós. Carlos Armando Amado, sem er frá Gvatemala, varð sér úti um einkaleyfi sitt árið 1990, en búnaðinn hannaði hann þegar hann var í námi við Stanford- háskóla í Bandaríkjunum. Árið 1992 hafnaði Microsoft tilboði hans um að selja tæknina, en hún dúkkaði svo upp í Office 95 og var í notkun allar götur síðan. Skaðabæturnar sem uppfinningamanninum voru dæmdar í sumar eru töluverðar, en þó fjarri því sem hann fór fram á, því hann vildi fá 500 milljónir Bandaríkjadala í bætur. ELVAR STEINN ÞORKELS- SON Framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi segir hvatningu um uppfærslu varúðarráðstöfun meðan tekist er á um einkaleyfi fyrir dómi. Fréttablaðið/Vilhelm Microsoft hvetur fyrir- tæki til að uppfæra Office Eftir tap í einkaleyfismáli hefur Microsoft samband við fyrirtæki um allan heim. Hér hófust sendingar í þessum mánuði. KB banki mælir með kaupum í stoðtækjaframleiðandanum Össuri eftir útgáfu nýs verðmats sem hljóðar upp á 112 krónur á hvern hlut. Síðasta viðskipta- gengi í Össuri var 102,5 krónur. Bankinn telur að félagið hafi styrkst til muna við kaupum á þremur stuðnings- og stoðtækja- framleiðendum að undanförnu. Samkvæmt verðmati KB banka er virði Össurar 690 millj- ónir dala, um 44 milljarðar króna. Áætlar bankinn að Össur hagnist um rúmar þrjátíu milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi. Í verðmatinu er gerð tíu pró- senta ávöxtunarkrafa til eigin fjár Össurar. - eþa Mælt með Össuri Mikill bati varð á rekstri SPH sem skilaði 704 milljóna króna hagnaði á síðasta starfsári. Jókst hagnaður um 120 prósent á milli ára og var sá mesti í sögu sparisjóðsins. Batinn ligg- ur fyrst og fremst í mun lægra framlagi í afskriftarreikning útlána en framlagið minnkaði um fjögur hundruð milljónir króna á milli ára. Hreinar vaxtatekjur voru 1.358 milljónir og jukust um tæp fjórtán prósent en hreinar rekstrartekjur voru 2,6 millj- arðar og hækkuðu um tólf af hundraði. Önnur rekstrargjöld hækk- uðu um sextán prósent og námu 1.622 milljónum króna. Eignir SPH voru 42,7 millj- arðar í árslok og eigið fé 3.784 milljónir sem er 22,8 prósenta hækkun á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 23 prósent. Stofnfjáreigendum fækkaði um sextán á árinu og voru þeir 31 í árslok. - eþa Hagnaður SPH meira en tvöfaldast Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista ehf., hefur verið kjörinn formaður Viðskiptaráðs Íslands og tekur hann við af Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair. Þetta var tilkynnt á viðskipta- þingi í liðinni viku en póstkosn- ing fór fram meðal félagsmanna ráðsins. Erlendur er ekki ókunnug- ur störfum Viðskiptaráðs enda hefur hann setið í framkvæmda- stjórn ráðsins undanfarin tvö ár. Segist hann ætla fylgja áfram þeirri stefnu sem unnið hefur verið eftir á undanförnum árum. „Áherslurnar eru þær að reyna að bæta á hverjum tíma sam- keppnisstöðu íslensks atvinnulífs þannig að hér sé gott starfsum- hverfi og fjölbreytt atvinnulíf,“ segir Erlendur og bætir við að brýnasta verkefnið fram undan sé að fylgja eftir þeirri skatta- umræðu sem Viðskiptaráð kom af stað um Ísland sem flatskatta- land. „Það verður líka áhugavert að sjá hvað kemur út úr störf- um krónunefndarinnar,“ segir Erlendur. Krónunefndin var sett á fót ekki alls fyrir löngu og er ætlað að skoða stöðu krónunnar út frá öllum sjónarhornum. Nýkjörin stjórn Viðskiptaráðs Íslands mun skipa fimm manna framkvæmdastjórn á stjórn- arfundi 6. mars næstkom- andi. Stjórnina skipa Katrín Pétursdóttir, Lýsi hf., Þór Sigfússon, Sjóvá hf., Lýður Guðmundsson, Bakkavör Group, Jón Karl Ólafsson, Icelandair ehf., Rannveig Rist, Alcan á Íslandi hf., Ásdís Halla Bragadóttir, Byko hf., Ingólfur Helgason, KB banka hf., Kristín Jóhannesdóttir, Baugi Group, Hreggviður Jónsson, Vistor hf., Jón Sigurðsson, Össuri hf., Hörður Arnarson, Marel hf., Friðrik Sophusson, Landsvirkjun, Halldór J. Kristjánsson, Landsbanka Íslands hf., Ari Edwald, 365 hf., Þórður Magnússon, Eyrir Invest ehf., Róbert Wessmann, Actavis Group, Knútur Hauksson, Heklu hf., og Kristján Loftsson, Hval hf. Fylgir settri stefnu Erlendur Hjaltason nýr formaður Viðskiptaráðs. ERLENDUR HJALTASON, FORSTJÓRI EXISTA OG FORMAÐUR VIÐSKIPTA- RÁÐS ÍSLANDS Viðskiptaráð mun áfram leggja áherslu á að reyna að bæta á hverjum tíma samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs þannig að hér sé gott starfsum- hverfi og fjölbreytt atvinnulíf. Samkvæmt nýjum tölum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi aðeins 1,6 prósent af vinnuafli í janúar, sem bendir til þess að mikil spenna ríki á vinnumarkaði. Til samanburðar var atvinnuleysi þrjú prósent á sama tíma í fyrra. Við þessar aðstæður er hætt við launaskriði og auknum undirliggjandi verð- bólguþrýstingi í hagkerfinu. Dregið hefur nokkuð úr fram- boði lausra starfa og gefur það til kynna að þensla í hagkerf- inu sé að ná hámarki. Miðað við sama tíma í fyrra hefur laus- um störfum fækkað, sérstaklega á Austurlandi þar sem smám saman fer að draga úr umfangi framkvæmda. Á árinu 2005 voru gefin út 6.367 atvinnuleyfi sam- anborið við 3.356 atvinnuleyfi á árinu 2004 og þar munar mestu um tímabundin atvinnuleyfi sem veitt hafa verið erlendu vinnu- afli. Framboð lausra starfa hefur þó aukist á Norðurlandi eystra og á Suðurnesjum. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að líklega væri verð- bólgan meiri og ójafnvægi hag- kerfisins verra ef ekki væri fyrir innflutt vinnu- afl. Mikil notkun erlends vinnuafls hafi sennilega verið einn árang- ursríkasti þáttur- inn til sveiflujöfn- unar í hagkerfinu á undanförnum misserum. - hhs Vaxandi spenna í hagkerfinu JÓN SIGURÐSSON, FORSTJÓRI ÖSSURAR KB banki hefur uppfært verð- mat sitt á fyrirtækinu til hækkunar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.