Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 73

Fréttablaðið - 15.02.2006, Page 73
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 fá allt aðra merkingu Tómstundir www.toyota.is RAV4 - alveg nýr heimur Nýr RAV4 er kominn til landsins. Hann er ekki aðeins í breyttri útgáfu. Hann er alveg nýr heimur. Bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur, nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði og fæst með „Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna öryggi og akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr lífinu á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni. Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4 fágaðri, fjörugri og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærsla er í boði, þar á ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 31 38 6 02 /2 00 6 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421-4888 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 meðal hin íburðarmikla RAV4 VX sem teflir saman framúrskarandi snerpu og afburðaþægindum í akstri svo að hefðbundin skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir með fjölskyldunni fá líka allt aðra merkingu. Komdu og reynsluaktu nýjum RAV4 - alveg nýr heimur. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA ���������� ����������� ������������� Þetta eru ekkert nema konur,“ hafa allnokkrir karlar sagt í mín eyru um framboðslista Sam- fylkingarinnar til borgarstjórnar í vor. Þó er kynjahlutfallið í þremur efstu sætunum tveir karlar á móti einni konu og ef fyrstu tíu sætin eru skoðuð er hlutfallið jafnt. Samt er upplifun að minnsta kosti sumra karla sú að þarna séu ekk- ert nema konur. Þegar efstu tíu sætin hjá Sjálfstæðisflokknum eru skoðuð kemur í ljós að hlut- fallið er einmitt líka jafnt en þar er reyndar ein kona á móti fjórum körlum í efstu fimm sætum. Og ef ég man rétt fannst mér, og áreið- anlega fleiri konum, þegar sá listi birtist að á honum væru eintómir karlar. Svona er upplifunin mis- munandi. HITT er annað mál, og það er ekki upplifun, að þegar oddvitar flokk- anna sem bjóða fram til borgar- stjórnar í vor fara að takast á, til dæmis í sjónvarpssölum landsins, verða í settinu fjórir karlar og ein kona, auk þáttastjórnenda. Þetta þykir mér snautlegt, svo ekki sé meira sagt, jafnvel þótt kynja- hlutföllin séu jafnari þegar list- arnir eru skoðaðir í heild. Minnir óneitanlega á myndirnar í fjöl- miðlunum af viðskiptaþingi í síð- ustu viku þar sem glitti í eina og eina konu milli jakkafataklæddra karla. RÉTT er líka að rifja upp í þessu samhengi að hlutfall kvenna í sveitarstjórnum minnkaði eftir síðustu kosningar 2002 og er nú innan við þriðjungur og það sama átti sér stað á Alþingi eftir kosn- ingarnar 2003. Þessi saga mun vonandi ekki endurtaka sig í vor og næsta vor. ALLT of algengt er að þessi umræða sé afgreidd sem tilgangs- laus og jafnvel óþörf. Við erum jú að kjósa flokka vegna stefnumála þeirra en ekki kynferði frambjóð- enda. Og það er alveg rétt, svo framarlega sem hlutur annars kynsins er ekki í hróplegu ósam- ræmi við hlutföllin milli kynja í landinu sem er, eins og allir vita einmitt um það bil jafnt. Góðu fréttirnar eru þó þær að þrátt fyrir ójafnvægi milli kynja í odd- vitasætum framboðslista til borg- arstjórnar í vor virðast ákveðnar líkur á að kynjahlutföll í borgar- stjórn verði jafnari á næsta kjör- tímabili en nokkru sinni fyrr. Því ber að fagna. Gengur hægt en þokast þó �������������� ������� ���������� ���� ���������������� �������������� ������

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.