Fréttablaðið - 22.05.2006, Síða 80

Fréttablaðið - 22.05.2006, Síða 80
 22. maí 2006 MÁNUDAGUR32 Menningarlífið er með miklum blóma um þessar mundir. Lista- hátíð stendur yfir og teygir anga sína um allar trissur. Áhugasamir unnendur mynd-, tón- og leiklistar hafa vart undan að þeysast milli bæjarhluta og sýslna til þess að missa ekki af þessu menningar- lega hlaðborði. Enn er nóg eftir af forvitnilegum viðburðum og von á góðum gestum. Lífið varð allsherjar listahátíð OPNUN LISTAHÁTÍÐAR Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og þingforsetinn Sólveig Pétursdóttir stungu saman nefjum í sögulegu umhverfi Landnámsskálans. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR GÆÐINGARNIR OPNUÐU MYNDLISTARSÝNINGU Í NÝLISTASAFNINU Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ragnar Kjartansson, Hekla Dögg Jónsdóttir og Sara Björnsdóttir fögnuðu í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR GARRISON KEILLOR ÚTVARPSMAÐUR Vinsælasti útvarpsþáttur Bandaríkj- anna var tekinn upp í Þjóð- leikhúsinu með íslenskum gestum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FAGNAÐUR EFTIR HAROLD PINTER Leikarar Þjóðleikhússins voru hylltir eftir sýningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR DORRIT MOUSSAIEFF FORSETAFRÚ Listahátíð var sett hinn 12. maí og sama dag var opnuð sýningin Reykjavík 871 +/-2 í Landnámsskálanum í Aðalstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR GUÐMUNDUR ODDUR > SKRIFAR UM SJÓNMENNTIR Fór í Borgarleikhúsið til að horfa á dansverkið „Við erum öll Marlene Dietrich“ eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin. Það er svolítið merkilegt fyrir mig að upplifa það á síðustu árum hvað nútímadans er að verða beitt listform. Hélt satt best að segja lengi vel að þetta snérist bara um prinsessur og svani. En öðru nær. Ég hef slysast inn á nokkrar sýningar Íslenska dansflokksins í vetur og orðið vitni að því að eitthvað stór- merkilegt er að gerast í þessari grein. Hafði reyndar séð ýmis- legt sérkennilegt í Klink&bank. En þetta Marlene Dietrich verk núna í vikunni var alveg sérstakt. Í því sameinast svo margt. Frábærir flytjendur, öflugt táknmál í líkamsbeitingu, vídeó, lagavali og rokkuðum tónlistarflutningi. Hápunktur verksins var töfrandi flutningur Diederik Peeters á hinu undursamlega ljóði John Lennons „Imagine“, ljóði sem virðist skipta meira og meira máli eftir því sem tíminn líður. Nei, hann söng það ekki - hann flutti það og bætti reyndar heilmiklu við það þarna en það virtist bara batna í túlkun hans. Hreint frá- bært! Spegilmyndin Sýningin fjallaði líka um tilgang listarinnar og samband lista- manna og áhorfenda. Í mínum huga skiptast listamenn í tvær megin fylkingar. Sú fyrri keppir oftast að tæknilegri fullkomn- un. Þeir eru fyrst og fremst uppteknir af tækni. Geta notað verkfæri og farið með efni oft á snilldarlegan hátt. Þeir geta meira að segja verið hámenntaðir en hættir þá stundum til að vera vandræðalega fræðilegir eins og svo margir raunvísinda- menn. Þeirra fagurfræði byggist á spegilmyndinni. Því nær sem komist er að „raunveruleikanum“ þeim raunveruleika sem hægt er að spegla eða mæla því betra. Flottari grafík myndu tölvunördarnir segja. Sjaldnast er þessi tegund hermi- listar með göfug markmið. - Markmiðin oftar en ekki afar sjálf- hverf. „Sjáiði hvað ég er snjall!“ Svona tæknilega snjall - Þetta er heimspeki gervigreindarinnar - að ná því markmiði að gera kort í einum á móti einum. Fegurðin er afgreidd sem yfirborð og álitamál. Fyrir fólk sem hefur áhuga á einhverju öðru en peningum. Þetta er spegilmyndin. Þar er engin „mission“ í gangi, bara andlaus sýndarmennska og sjálfsupphafning. Glugginn Hin tegundin er á „mission“. Þau eru einskonar erindrekar guð- anna, listamenn eins og Diederik, Erna Ómars og allt það lið. Eru kyndilberar. Lýsa upp svæðið. Opna fyrir okkur dyr eða glugga og hjálpa okkur að sjá að það er landslag bak við spegil- inn, með öðrum orðum svæði innra með okkur miklu merki- legra en yfirborð spegilsins. Einskonar vistarvera sem hefur uppljómast. Þessi tegund listamanna notar ekki bara tæknina heldur líka tilfinningarnar, ímyndunaraflið og innsæið. Er með sannfæringarkraft. Leikur fyrir okkur leik sem sorglega fáir leika. Tilgangurinn er raunveruleg vaka og upplifun, fullþrosk- un þeirra afla sem liggja óvirk í hjarta okkar. Svona listamenn sjá fyrir sér það sem ekki er sýnilegt. Hafa hugrekki til að framkvæma það sem virðist óframkvæmanlegt. Þessi tegund sköpunargáfunnar er kjarninn í tilverunni - Hann er fær um að framkalla nýjan raunveruleika væntanlega fegurri og betri sem þó er ekki gefið. Veruleika sem hinir sem eru þess ekki megnugir geta farið að spegla og mæla - ekki satt? Það er þetta sem Lennon var að reyna að segja okkur með dægurlaginu „Imagine“. Þeir skipta mestu máli sem nota ímyndunaraflið til göfugra verka, ná einhverri framtíðarsýn og framkvæma. - Er það svo erfitt? Þetta á ekki bara við um listamenn. Þetta á við sköpunarkraftinn í okkur öllum. Við þurfum að gera okkur grein fyrir að það sem við heyrum og sjáum er aðeins lítið brot af því sem við gætum heyrt, séð og vitað. Ótrúlega margir hafa hingað til lifað í fátæklegasta herbergi hugans - hálfgerðu svefnherbergi. Okkur býðst að ganga inn í önnur, guðdómlega falleg, full af raunverulegum fjársjóðum, með gluggum og útsýni til betra lífs. Er það svo erfitt í raun og veru? Að maður tali nú ekki um ef við sameinumst um það. Ímyndum okkur!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.