Fréttablaðið - 16.12.2006, Qupperneq 1
56%
37%
42%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Laugardagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
Jólin alls staðar er eitt af
uppáhaldsjólalögunum
Smáauglý i
Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað
tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og
Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í
fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj-
ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér-
staka leiðangra að leita að kryddi.Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún
hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm
þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel
miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan-
lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan
matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók
sem heitir Hollt og ódýrt.„Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en
aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf-
semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa
mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir
annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst
líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni
hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam-
bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að
prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum.
Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum
heillandi.“
Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt
með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til-
heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt
en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara
við ódýru uppskriftirnar. Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég
byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós-
myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það
hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við
ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur
það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd-
un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“
Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að
ítölskum tvíbökum á bls. 6.
Tónlistarsnillingurinn
hógværi, Skúli Sverrisson,
talar um nýju plötuna,
lífið í New York og
samvinnuna við Blonde
Redhead og Laurie
Andersson. Í helgar-
blaðinu er ennfremur
fjallað um vinsælustu
leikföng síðustu ára,
jólahald hjá þeim sem
ekki eru kristnir, tísku
fyrir skammdegisdaga,
aðskilnað ríkis og kirkju
og 90 ára afmæli Fram-
sóknarflokksins.
Lögreglan í Reykja-
vík rannsakar nú tvö stór mál er
varða tilraunir til umfangsmik-
ils smygls á fíkniefnum hingað
til lands. Í öðru tilvikinu var
reynt að smygla fjórtán kílóum
af hassi til landsins, auk 200
gramma af kókaíni í einni send-
ingu. Í hinu málinu var reynt að
smygla inn rúmlega 800 e-töfl-
um.
Þetta mikla magn af hassi, svo
og kókaínið, komu hingað til
lands með hraðsendingu frá Dan-
mörku. Fíkniefnalögreglan náði
sendingunni þegar hún kom til
landsins og voru tveir Íslending-
ar handteknir í kjölfarið. Tveir
til viðbótar, einnig íslenskir, voru
síðan teknir og sátu um skeið í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar-
innar. Þessum mönnum hefur nú
öllum verið sleppt. Lögreglan í
Reykjavík hefur unnið málið í
samvinnu við dönsku lögregluna,
en rannsókn þess stendur enn
yfir.
Hvað varðar síðara málið þá
var þar einnig um að ræða hrað-
sendingu með rúmlega 800 e-
töflum hingað til lands. Sendingin
kom frá Hollandi. Lögreglan í
Reykjavík handtók tvo karl-
menn, rúmlega tvítuga, í tengsl-
um við þetta mál. Mennirnir eru
báðir erlendir ríkisborgarar en
búsettir hérlendis. Þeir voru
úrskurðaðir í þriggja vikna
gæsluvarðhald af Héraðsdómi
Reykjavíkur, en sleppt að þeim
tíma liðnum. Þeir hafa verið
úrskurðaðir í farbann til 19. jan-
úar. Þriðji maðurinn var jafn-
framt handtekinn vegna málsins
og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Hann er einnig af erlendu bergi
brotinn. Honum var sleppt nú í
vikunni. Rannsókn þessa máls er
vel á veg komin.
Til viðbótar þessum málum
bíða nú fjórir menn dóms
Héraðsdóms Reykjavíkur vegna
tilraunar til smygls á 25 kílóum
af fíkniefnum hingað til lands.
Þeir eru ákærðir fyrir stórfellt
fíkniefnabrot, þar sem reynt var
að smygla inn ríflega fimmtán
kílóum af amfetamíni og rúmum
tíu kílóum af hassi í bensíntanki
BMW-bifreiðar.
Reynt að smygla 14 kílóum
af hassi og 800 e-töflum
Tvö umfangsmikil mál vegna smygls á fíkniefnum hingað til lands eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni. Í
öðru tilvikinu var reynt að smygla um 800 e-töflum. Í hinu kom hraðsending með 14 kílóum af hassi.
8
dagar til jóla!
Opið til
22
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Gjafabréf - harður pakki en samt mjúkur
Íslendingar versla þjóða
mest í Danmörku yfir vetrarmán-
uðina, sé miðað við lönd sem
standa utan Evrópusambandsins
og eiga þess kost að fá virðis-
aukaskatt endurgreiddan. Fjöru-
tíu prósent af slíkum „tax-free“
viðskiptum í Danmörku eru
stunduð af Íslendingum í nóvem-
ber og desember, að sögn Jónasar
Hagan hjá Euro Refund.
Guðjón Arngrímsson hjá
Flugleiðum staðfestir að óvenju-
lega mikið sé um styttri ferðir til
Danmerkur í ár. „Þessar vikurn-
ar er nánast fullt hjá okkur í
Danmerkurferðirnar, þrjár vélar
á dag, og þetta virðist vera vin-
sælla en nokkurn tíma áður,“
segir Guðjón.
Kaupa mest skattfrjálst
Óvinafagnaður
saltaður í bili
Norsku læknasamtökin
hafa hvatt til þess að neyðar-
getnaðarvarnarpillan verði seld
á bensínstöðum og í matvörubúð-
um, en ekki bara í apótekum eins
og nú er raunin, svo auðveldara
sé að koma í veg fyrir óæskilega
þungun hjá yngri konum, hefur
Aftonbladet eftir Steinari
Madsen, yfirlækni hjá samtök-
unum.
Á þremur árum hefur sala á
getnaðarvörninni, sem stundum
er kölluð daginn-eftir-pillan,
aukist um þrjátíu prósent í
Noregi. Á sama tíma hafa tölur
yfir fóstureyðingar staðið í stað.
Þó hafa læknarnir áhyggjur
af því að konur noti pilluna sem
getnaðarvörn, frekar en sem
neyðarúrræði þegar aðrar
getnaðarvarnir bregðast.
Verði seld á
bensínstöðvum