Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 10
Rúmlega 40 prósent
þeirra 242 aldraðra sem voru á
biðlista eftir hjúkrunarrými í
september sögðust hafa minni
þörf fyrir stofnanavist þá en
þegar þeir sóttu um að komast að
á hjúkrunarheimili. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í
könnun sem Landlæknisembætt-
ið gerði í samstarfi við heilbrigð-
isráðuneytið á aðstæðum og við-
horfum aldraðra Reykvíkinga á
biðlista eftir hjúkrunarrými.
Rúmlega 37 prósent aðspurðra
töldu sig vera í meiri þörf en áður
fyrir vistun á hjúkrunarheimili
og rétt tæp 17 prósent sögðu þörf-
ina jafn mikla. Af aðspurðum
voru 138 metnir í mjög brýnni
þörf fyrir hjúkrunarrými, þrír í
brýnni þörf og 25 í þörf.
Matthías Halldórsson land-
læknir segir niðurstöðurnar koma
að nokkru leyti á óvart. „Þeir sem
voru spurðir eru á biðlista með
gilt vistunarmat og rúmlega
helmingur þeirra telur sig geta
verið heima með sömu þjónustu
og þeir hafa núna. Og 40 prósent
töldu sig hafa minni þörf fyrir
stofnanavistun nú heldur en
þegar það sótti um. Þó var það
svo að flestir voru metnir í brýnni
eða mjög brýnni þörf.“
Matthías telur þetta sýna að
það skorti á eftirlit með vistunar-
matinu. „Verið getur að ástand
fólks hafi skánað á tímabilinu en
það hefur líka verið lögð meiri
áhersla á heimahjúkrun og heim-
ilishjálp á tímabilinu frá því að
viðkomandi er metinn og til dags-
ins í dag.“
Biðlistar sem vistunarmatið
gefur upp eru ekki eins langir og
ætla mætti að sögn Matthíasar
sem telur það geta stafað af því
að vistunarmatið sé ekki nógu að-
greinandi. Einnig geti hugsanlega
verið hagsmunir að því að meta
fólk til vistunar „Það eru gefin
viss stig og samkvæmt þeim eru
mjög margir sagðir í brýnni þörf.
Það er mjög mikilvægt að það sé
öruggt að þeir sem eru í albrýn-
ustu þörfinni séu teknir inn. Eins
og staðan er núna geta hjúkrunar-
heimili að einhverju leyti ráðið
hvernig þau taka inn og það er
meiningin að auka eftirlit og skil-
virkni með þessu. Gætt sé að það
sé algerlega hlutlaust mat.“
Vistunarmat og eftirlit með
því fluttist um síðustu mánaða-
mót frá heilbrigðisráðuneytinu til
landlæknisembættisins. Matthías
seg-ir breytingar standa til.
„Stefnt er að því að taka upp
nýtt mælitæki, RAI-Home-Care, í
stað vistunarmatsins áður en
langt um líður. Svipað mælitæki
er notað inni á hjúkrunarheimil-
um til að meta þá sem þar eru. En
einnig er hægt að nota þetta
heima til að meta þörf fólks á
hjálp heima hjá sér og fyrir þörf
á vistun. Þetta er betra mælitæki
og meira aðgreinandi.“
Telur biðlista
gefa ranga
mynd af þörf
Biðlistar aldraðra eftir hjúkrunarrýmum eru ekki
eins langir og ætla mætti að sögn landlæknis. Í
könnun í september sögðu 40 prósent á biðlista þörf
fyrir vistun hafa minnkað frá því þeir sóttu um.
Reykjavíkurborg
ætlar að bjóða 15 milljónir króna
fyrir trjágróður á tveimur hektur-
um lands við Rauðavatn. Gangi
viðskiptin eftir verður útvistar-
svæðið austan Rauðavatns allt á
forræði borgarinnar.
Þéttur trjágróður er á landinu
sem Jón Þórðarson kaupmaður
fékk úthlutað til afnota af borgar-
ráði árið 1950. Fjölskyldan byggði
þar lítinn sumarbústað og kallaði
staðinn Dynskóga. Eftir tíð inn-
brot á seinni árum brann bústað-
urinn til kaldra kola í fyrra.
Þótt landið sé í reynd í eigu
Reykjavíkurborgar hafa afkom-
endur Jóns kaupmanns þar enn
ótímabundinn afnotarétt. Þeir
mættu endurreisa þar sumarhús
jafnstórt því sem brann en frekari
byggingaréttur fylgir ekki.
Eftir að ágreiningur hafði verið
á milli eigenda og borgarinnar um
verð fyrir gróðurinn og lóðarétt-
indin var skipuð sérstök þriggja
manna matsnefnd sem komst að
þeirri niðurstöðu að sanngjarnt
verð fyrir eignina væri áðurnefnd-
ar 15 milljónir króna.
Segja matsmennirnir að á reitn-
um séu um tugur trjátegunda í fal-
legum blönduðum skógi sem falli
vel að nýtingu svæðisins fyrir úti-
vist. Þaðan sé afar gott útsýni til
vesturs yfir höfuðborgina.
Bjóða 15 milljónir í Dynskóga
Ætla má að um
helmingur þeirra barna sem eru
með vistun á frístundaheimilium í
Reykjavík nýti sér vistun sína
þegar skólarnir fara í jólafrí um
20. desember.
Frístundaheimilin verða opin
alla virka daga á meðan jólafrí í
skólum stendur yfir. Steingerður
Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá
ÍTR, segir foreldra þegar farna að
skrá börn sín. Boðið verður upp á
óhefðbunda dagskrá þessa daga
eins og ferðir á Þjóðminjasafnið
og fleira. Nú bíða 47 börn eftir að
komast að á frístundaheimilum í
Reykjavík og alls vantar 31 starfs-
mann til starfa.
Bókanir í jóla-
fríinu hafnar
Gefðu íslenska jólagjöf
Landsins mesta úrval af íslensku handverki
Hafnarstræti 19 Sími 551 1122