Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 12

Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 12
Andstæðingar Pútíns Rússlandsforseta ætla ótrauðir að koma saman og ganga fylktu liði um götur Moskvuborgar í dag, þrátt fyrir að stjórnvöld hafi bannað sam- komuna. Skákmeistarinn Garrí Kasparov, sem er einn þeirra sem standa að mótmælunum, segir gönguna vera „fyrstu tilraun okkar til að mótmæla, í samræmi við stjórnarskrána, með aðgerðum á götum úti og sameina fólk með gjörólíkar pólitískar skoðanir“. Auk Sameinuðu borgarafylking- arinnar, sem Kasparov er í forsvari fyrir, taka þátt í aðgerðunum meðal annars hreyfing róttækra bolsévíka, sem nefnist Bolsévíski þjóðarflokk- urinn, og frjálslyndir hægrimenn sem kalla sig Bandalag hægriafla. „Breytingar geta því aðeins orðið í Rússlandi að skipulagðar séu sam- eiginlegar aðgerðir ólíkra stjórn- málaafla,“ sagði Kasparov, en mót- mælunum er meðal annars beint gegn nýlegri breytingu á kosninga- lögum og vaxandi ofríki stjórnvalda, eins og mótmælendurnir orða það. Lögreglan gerði á þriðjudaginn húsleit á skrifstofum Kasparovs og félaga hans í Sameinuðu borgara- fylkingunni. Borgaryfirvöld hafa bannað mótmælagöngu, en hafa þó boðið upp á að leyfa mótmæla- samkomu í Moskvu. Hæstiréttur segir að Hreinn Jakobsson, fyrrverandi forstjóri Skýrr, hafi brotið trúnaðarskyldu gegn fyrirtækinu með því að ráða sig til keppinaut- arins Anza. Hreini var fyrirvaralaust sagt upp starfi forstjóra hjá Skýrr 7. apríl á þessu ári. Þann 1. septemb- er var hann ráðinn forstjóri tölvu- þjónustufyrirtækisins Anza. Stjórnendur Skýrr töldu Hrein hafa brotið ákvæði ráðningar- samningsins um að ráða sig ekki til samkeppnisfyrirtækis næstu tvö árin og hættu að greiða honum laun sem áður hafði verið lofað að yrðu borguð út fyrir tólf mánaða uppsagnarfrest. Hreinn var sömu- leiðis beðinn að skila Porche Chae- ynne jeppa fyrirtækisins sem hann hefði annars átt að fá að halda út uppsagnarfrestinn. Hreinn taldi að Skýrr ætti að borga honum launin áfram þar sem ósannað væri að hann hefði brotið ákvæði ráðningarsamn- ingsins um trúnaðarskyldu. Hann sagðist mundu halda jeppanum sem tryggingu fyrir laununum. Stjórnendur Skýrr sögðu aug- ljóst að Hreinn hefði haft trúnaðar- skyldur sínar að engu með því að ráða sig sem forstjóra hjá keppi- nauti Skýrr þótt meir en helmingur væri eftir af uppsagnarfrestinum. Ákvæði ráðningarsamningsins um að fyrirtækið legði forstjóra til bíl gæti ekki náð til þess að Skýrr ætti að útvega forstjóra allt annars fyrirtækis bíl. Með því að kyrr- setja Porche-jeppann væri Hreinn að taka lögin í eigin hendur. Við það væri ekki hægt að una. Eftir árangurslausa sáttafundi í haust höfðaði Skýrr mál gegn Hreini til að ná af honum jeppan- um. Í úrskurði Héraðsdóms Reykja- ness, sem Hæstiréttur hefur nú staðfest, segir að starfsmaður á uppsagnarfresti beri sömu trúnaðarskyldur við vinnuveit- anda eins og ef hann væri í starfi. Hann megi ekkert aðhafast sem geti skaðað atvinnurekandann. Hreinn hafi ráðið sig til starfa hjá Anza sem sé í harðri samkeppni við Skýrr og þar með brotið trúnaðarskylduna við Skýrr og gegn ráðningarsamningnum. Hann ætti því engan rétt til að halda jeppanum. „Það er mjög afgerandi í dómn- um að með því að ráða sig sem for- stjóra annars fyrirtækis þá hafi Hreinn brugðist trúnaðarskyldum sínum við Skýrr,“ segir Bjarni Birgisson, stjórnarformaður Skýrr, aðspurður um niðurstöðuna. Ekki náðist í Hrein Jakobsson. Brottrekinn forstjóri skili lúxusjeppanum Hæstiréttur segir Hrein Jakobsson, fyrrverandi forstjóra Skýrr, hafa brotið trúnaðarskyldu og eiga að skila fyrirtækinu Porche jeppa. Hreinn hélt jeppanum sem tryggingu fyrir launum sem hann taldi Skýrr eiga að greiða sér. Samkvæmt því sem fullyrt er í heimildamynd sem send var út fyrr í vikunni í tyrkneska ríkissjónvarpinu er Svíþjóð „villmennskuland án tjáningarfrelsis“. Í myndinni er fullyrt að sænsk yfirvöld hafi allt fram á níunda áratug síðustu aldar kerfisbundið drepið Sama og sígauna og þar með gerst sek um þjóðarmorð. Frá þessu greindi fréttavefur sænska blaðsins Aftonbladet. „Ég hef aldrei séð annað eins. Frá upphafi til enda var þátturinn fullur af útúrsnúningum og lygum,“ er haft eftir tyrkneska blaðamanninum Yavuz Baydar. Svíþjóð sögð land villimennsku Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykja- vík frá fimmtudagsmorgni til föstudagsmorguns. Þetta voru tíu karlmenn og tvær konur. Sá yngsti er sautján ára að aldri en sá elsti hálfáttræður. Konurnar eru báðar á fertugsaldri. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn var tekinn fyrir ölvunarakstur fyrr í vikunni. Þá tók lögreglan sex aðra ökumenn sem höfðu verið sviptir ökuleyfi. Fimm aðrir ökumenn höfðu ekki endurnýjað öku- skírteinin sín og einn til viðbótar hafði það ekki meðferðis. Tólf ökumenn teknir ölvaðir Nemendur 8. bekkjar Rimaskóla í Grafarvogi, sem hafa verið í textílmennt það sem af er vetri, hafa ákveðið að gefa Hjálparstarfi Kirkjunnar ungbarnafatnað. Fötin eru hluti af handavinnu þeirra og fengu nemendurnir hugmyndina að gjöfinni í tíma í fermingar- fræðslu hjá séra Bjarna Þór Bjarnasyni. Krakkarnir afhentu Hjálpar- starfi kirkjunnar fötin í vikunni og óska þeir þess að fötin verði gefin til hjálparstarfs innanlands. Gáfu handa- vinnuna sína Almenna verkfræðistofan hefur afhent Krabbameinsfélaginu söfnunarfé að upphæð 175 þúsund krónur. Þetta er afrakstur átaks sem Almenna verkfræðistofan kallaði Bleika daginn og fyrirtækið hélt í síðasta mánuði. Á þeim degi voru starfsmenn fyrirtækisins hvattir til að bera bleikan lit í fatnaði eða fylgihlutum. Í tengslum við þemadaginn efndu starfsmenn Almennu verkfræðistofunnar til söfnunar til styrktar Bleiku slaufunni, árveknis- átaki Krabbameinsfélagsins um brjóstakrabbamein. Styrkir Krabba- meinsfélagið Fyrst voru það Orðin tóm og nú Glamm!! Þetta er diskurinn sem allar hugsandi konur og allir hugsandi karlar vilja fá undir geislann. Á þessum nýja og glæsilega geisladiski les Jón Norland 24 ljóð eftir sjálfan sig sem sonur hans, Sverrir Norland, hefur samið skemmtilega og kröftuga tónlist við. Sverrir leikur auk þess á kassa- og rafgítara, bassagítar og slagverk. Geisladiskur handa öllum þeim sem unna íslenskri tungu og góðri tónlist. Hér ræður engin hálfvelgja ríkjum! Diskurinn fæst í öllum helstu bókaverslunum og plötubúðum. Forlag misskilinna skálda X ST R E A M D E S IG N S N 0 6 11 0 03
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.