Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 32
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Þingmenn lögðu fram 234
fyrirspurnir til ráðherra á
nýliðnu haustþingi. Jóhanna
Sigurðardóttir, Samfylking-
unni, var manna duglegust
við að spyrja og lagði fram
24 fyrirspurnir á þessum
rúmu tveimur mánuðum
sem þingið starfaði. Hinir
Frjálslyndu Magnús Þór
Hafsteinsson og Sigurjón
Þórðarson lögðu hvor fram
19 fyrirspurnir.
Fyrirspurnir þingmanna til ráð-
herra eru snar þáttur í þingstörf-
unum og til þeirra er dágóðum
tíma varið. Fyrirspurnir eru ýmist
sendar skriflega eða bornar upp í
óundirbúnum fyrirspurnartíma
og jöfnum höndum er beðið um
munnleg eða skrifleg svör.
Tilgangur fyrirspurna er ekki
einvörðungu að fá svör heldur
ekki síður að vekja athygli á því
máli sem spurt er um. Stundum
eru fyrirspurnirnar tengdar mál-
efnum sem eru ofarlega á baugi í
þjóðmálaumræðunni og stundum
koma þær eins og skrattinn úr
sauðarleggnum. Stundum eru
spurningarnar þess eðlis að þeim
er hægt að svara með einföldum
hætti – allt að því já eða nei, en
stundum þarf að svara í löngu
máli með töflum og gröfum.
Fyrirspurnunum er beint til
ráðherra og þótt það komi í þeirra
hlut að skrifa undir svarið eða
flytja það úr ræðustól eru það
yfirleitt embættismenn ráðuneyt-
anna sem búa svarið til. Í ljósi
fjölda fyrirspurnanna og þess hve
umfangsmiklar þær stundum eru,
má ætla að drjúgur tími embættis-
manna fari í að svara þeim.
Þær fyrirspurnir sem komu
fram í þinginu á þessum vetri eru
allra handa og snerta flest svið
þjóðlífsins. Hér eru nokkur dæmi
valin af handahófi, áhugafólki um
þingstörfin til glöggvunar.
• Löggilding starfsheitis áfengis-
ráðgjafa. Valdimar Leó Friðriks-
son til heilbrigðisráðherra.
• Viðhald og endurbætur á vegum.
Guðjón A. Kristjánsson til sam-
gönguráðherra.
• Útræðisréttur strandjarða.
Sigurjón Þórðarson til iðnaðar-
ráðherra.
• Leiðbeiningareglur í anda ILO
samþykktar númer 158. Valdi-
mar Leó Friðriksson til félags-
málaráðherra.
• Brottfall úr framhaldsskólum.
Björgvin G. Sigurðsson til
menntamálaráðherra.
• Veðurathuganir á Stórasandi.
Halldór Blöndal til samgöngu-
ráðherra.
• Áhrif gengisþróunar á rekstrar-
afkomu heilbrigðisstofnana.
Margrét Frímannsdóttir til
heilbrigðisráðherra.
• Ákvörðun aflamarks 1984.
Kristinn H. Gunnarsson til
sjávarútvegsráðherra.
• Nám í fótaaðgerðafræði. Anna
Kristín Gunnarsdóttir til
menntamálaráðherra.
• Safn- og tengivegir. Drífa Hjartar-
dóttir til samgönguráðherra.
• Rannsóknir á sandsíli. Mörður
Árnason til sjávarútvegs-
ráðherra.
• Framboð verk- og tæknináms.
Sæunn Stefánsdóttir til
menntamálaráðherra.
• Merking varðskipa. Kristinn H.
Gunnarsson til dómsmála-
ráðherra.
• Námsframboð í loðdýrarækt.
Magnús Þór Hafsteinsson til
landbúnaðarráðherra.
• Reglur um aflífun og flutning
búfjár. Sigurjón Þórðarson til
umhverfisráðherra.
• Réttarstaða íslenskrar tungu og
staða annarra tungumála í lög-
gjöf og stjórnkerfi. Mörður
Árnason til menntamála-
ráðherra.
• Slysavarnir aldraðra. Ásta R.
Jóhannesdóttir til heilbrigðis-
ráðherra.
• Kaup og sala heyrnartækja.
Ásta Möller til heilbrigðis-
ráðherra.
• Dýralækna- og heilbrigðis-
þjónusta við dýr. Þuríður Back-
man til landbúnaðarráðherra.
• Þáttur flugsamgangna í losun
gróðurhúsalofttegunda. Kolbrún
Halldórsdóttir til umhverfis-
ráðherra.
• Agaviðurlög í fangelsum.
Guðjón Ólafur Jónsson til
dómsmálaráðherra.
• Hlutfall verknámsnemenda.
Anna Kristín Gunnarsdóttir til
menntamálaráðherra.
• Eftirlit með gasbúnaði í hjól-
hýsum. Sigurjón Þórðarson til
félagsmálaráðherra.
• Þjónusta Símans á sunnanverð-
um Vestfjörðum. Anna Kristín
Sigurðardóttir til samgöngu-
ráðherra.
• Aldurstakmark á skipulagðar
útihátíðir. Kolbrún Baldurs-
dóttir til félagsmálaráðherra.
• Endursala viðskiptabanka á
eignum sem þeir hafa leyst til
sín við nauðungarsölu. Jóhanna
Sigurðardóttir til viðskipta-
ráðherra.
• Velta vínbúða í Mjódd og Garð-
heimum. Sigurjón Þórðarson til
fjármálaráðherra.
• Heilsufar erlendra ríkisborg-
ara. Magnús Þór til heilbrigðis-
ráðherra.
Vinaþjóðunum fjölgar hratt
„Heldur var þingflokksformaður Samfylkingarinnar
brjóstumkennanlegur í Fréttablaðinu í gær, 12.
desember. Pistill hans fjallar eingöngu um
Framsóknarflokkinn og ekki í fyrsta sinn. [...] Það
skondna í þessu öllu er að Össur er í reynd ekki að
fjalla um Framsókn. Skammir hans snúa allar að
Samfylkingunni!“
Guðni og Hjálmar