Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 77

Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 77
Menn hafa ekki stigið fæti á tungl- ið frá því Appollo 17 lenti þar árið 1972. Á þessu kann þó að verða breyting þar sem NASA, Geim- ferðastofnun Bandaríkjanna, hefur nýlega tilkynnt um þá ætlun sína að tunglferðir manna hefjist að nýju ekki seinna en árið 2020. Stofnunin ætlar að gangast fyrir samstarfi um þetta við þær þjóðir heims sem vilja leggja eitthvað af mörkum. NASA hefur þegar ráðið Lock- heed-verksmiðjurnar sem verk- taka til þess að hanna, þróa og smíða nýja geimflaug og hefur hún fengið nafnið Orion. Áætlað er að Orion fari í sína fyrstu mönn- uðu ferð árið 2014 og fljúgi svo til tunglsins árið 2020. NASA hyggst ennfremur byggja bækistöð á tunglinu sem verður mönnuð allan ársins hring. Hún á að vera orðin starfhæf árið 2024 og verður þá hver tunglfari í bækistöðinni hálft ár í senn. Tilgangurinn með þessu verkefni er margvíslegur. Meðal annars er vonast til að það auki skilning manna á sögu jarðarinnar, sólkerf- isins og alheimsins. Ennfremur verður prófuð ný tækni og búnað- ur í tunglstöðinni sem gæti aukið öryggi og skilvirkni mannaðrar geimferðar til Mars eða enn lengra út í geiminn. Þá þykir æskilegt að menn takist á við ögrandi verkefni eins og þetta, sem fer friðsamlega fram og sameinar þjóðir heims um sameiginlegt markmið. Talað er um að verkefnið hafi góð áhrif á efnahagslífið og komi þannig líf- inu niðri á jörðinni til góða. Að lokum er vonast til þess að verk- efnið veki athygli og áhuga almennings, og þá sérstaklega æskunnar, á hátækni og vísindum sem nauðsynleg eru til að mæta kröfum framtíðarinnar. Nokkur athyglisverð atriði í þess- ari áætlun NASA skulu nefnd hér. Í fyrsta lagi er hugmyndin sú að bækistöðin verði nálægt öðrum hvorum pólnum á tunglinu. Ef valinn er heppilegur staður nálægt tunglpól getur sólargeislun fallið á tunglstöðina 75-80 prósent af tímanum. Jafnframt hefur slíkt staðarval þann kost að hitasveifla milli „dags“ og „nætur“ verður miklu minni en á öðrum stöðum á tunglinu, en dagur og nótt tekur þar um 15 jarðneska sólarhringa hvort. Í öðru lagi er ljóst að vélmenni eða þjarkar (e. robots) verða notaðir í ríkum mæli í geimferðum af þessu tagi. Með því má draga verulega úr þeirri áhættu sem geimferðum fylgja. Umsjón með slíkum verk- efnum er auðvelt að framselja til annarra, bæði til fyrirtækja og þjóðríkja, og ætlunin er að gera það í mun ríkari mæli en áður hefur verið gert. Í þriðja lagi verður lögð sérstök áhersla á lendingarbúnaðinn í und- irbúningi tunglferðanna, en hann er veigamikið atriði varðandi öryggi ferðanna. Á tunglinu er ekkert loft og því er ekki hægt að láta loftið halda farartækjum svíf- andi á sama hátt og hjá flugvél við lendingu á jörðinni. Aðeins er hægt að stjórna lendingu geim- fars með efni sem það sendir frá sér svipað og eldflaug í flugtaki. Slík lending er mjög vandasöm og krefst bæði nákvæmni og árvekni sem hægt er að ná með tölvubún- aði nú á dögum. En hversu vel sem menn undirbúa dvölina á tunglinu verður hún samt afar frábrugðin venjulegu lífi hér á jörðinni. Margir vita lík- lega að þyngdarkraftur við yfir- borð tunglsins er mörgum sinnum minni en hér á jörðinni, en hægt væri að vega upp á móti þessu með því að þyngja búninga fólks. Margt fleira kemur þó til. Þannig er til dæmis ógerningur að koma upp lofthjúp á tunglinu, en loft- hjúpur jarðar gegnir meðal ann- ars því hlutverki að vernda lífver- ur fyrir grjóti, ryki og skaðlegri geislun utan úr geimnum. Til að fá varanlega vernd gegn þessum skaðvöldum gætu menn til dæmis búið í byrgjum á tunglinu, undir hæfilega þykku lagi af „jarðvegi“. En lofthjúpurinn veitir okkur ekki aðeins vernd gegn óvelkomnum fyrirbærum að utan, heldur er líka í honum súrefni sem lífverur jarð- arinnar anda að sér og nýta við orkuvinnslu. Súrefni byrjaði að myndast í lofthjúpnum þegar plöntur komu fram á árdögum jarðsögunnar. Á Mars er líka loft- hjúpur, en hann er hins vegar afar frábrugðinn núverandi lofthjúpi jarðarinnar. Til dæmis er ekkert óbundið súrefni í honum heldur er hann að mestu leyti koltvísýring- ur. Menn hafa látið sig dreyma um að hægt væri að breyta þessari samsetningu lofthjúpsins áður en land yrði numið á Mars, þannig að hægt væri að ganga þar um „undir berum himni“ og anda að sér loft- inu. Kannski verður slíkt einhvern tímann mögulegt á Mars en það verður hins vegar aldrei á tungl- inu. Tunglið er nefnilega of lítið og létt til að geta haldið að sér loft- hjúp af eigin rammleik. Tunglbúar geta því ekki vænst þess að ganga um undir berum himni, heldur verða þeir annaðhvort að vera í geimbúningum og með súrefni á sér eða þá inni í lokuðu rými þar sem nóg súrefni er í loftinu. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í eðlisfræði og vísinda- sögu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.