Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 90

Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 90
Framsóknarflokkurinn níræður Framsóknarflokkurinn spratt upp úr umróti heimastjórnaráranna. Hann átti rætur í ýmsum fram- farahreyfingum, sem þá voru að eflast og létu til sín taka í þjóðfé- laginu. Oftast nefna menn í því sambandi ungmennafélögin sem voru menningarfélög og störfuðu í þjóðlegum anda sjálfstæðisbar- áttunnar. Einnig samvinnuhreyf- inguna, sem komin var á fullt skrið sem félagsmálahreyfing og þátttakandi í verslun, viðskiptum og atvinnurekstri, allt að erlendri fyrirmynd, einkum danskri og enskri. Þessi samtök börðust meðal annars fyrir almennum framförum og umbótum í landinu, aukinni menntun og atvinnu- rekstri sem tryggja átti mönnum sannvirði fyrir vöru og vinnu. Þessi hugsjónalegi bakgrunnur hafði mikil áhrif á stefnu flokks- ins og þess gætir jafnvel enn í dag. Þriðja stoðin í tilurð Fram- sóknarflokksins er einnig samtök alþingismanna eftir alþingiskosn- ingarnar 1916. Þeir bundu enda- hnútinn á stofnun þingflokksins, gáfu honum nafn og sömdu fyrstu stefnuskrána. Hún gefur það ekki sérstaklega til kynna að verið væri að stofna bændaflokk en flokkurinn beitti sér þó frá byrjun að framförum í sveitum landsins og studdi málstað bænda. Flokkurinn var stofnaður sem þingflokkur nokkurra bænda og kennara, sem þá áttu sæti á Alþingi. Engin landssamtök voru bakhjarl hans. Ingvar Gíslason skrifar í tímaritið Andvara að aðalástæða þess að mótaður þing- flokkur með framsóknarnafni varð til sé að ýmsir þingmenn af Norður- og Austurlandi hittust þar sem þeir biðu eftir skipi á Seyðis- firði. Fimm þeirra stofnuðu þing- flokk Framsóknar og við komuna til Reykjavíkur bættust þrír í þeirra hóp. Stofnendurnir voru grónir þingmenn sem höfðu hall- ast að ýmsum flokkum, klíkum og innanþingssamtökum. Flokkurinn var ekki stofnaður af þeim hópi manna sem kölluðu sig Óháða bændur og bauð fram í kosningun- um 1916. Aðeins Sigurður Jónsson í Ystafelli og Sveinn Ólafsson í Firði höfðu tekið þátt í þeim sam- tökum af þeim átta sem stofnuðu Framsóknarflokkinn. Sigurður og Sveinn voru kjörnir til að semja texta stofnskrárinnar við þriðja mann, Þorstein M. Jónsson rithöf- und. Ólafur Briem frá Espihóli í Eyjafirði var einnig aðsópsmikill í þessum átta manna hópi og varð fyrsti formaður flokksins. Jörund- ur Brynjólfsson, kennari og einn af þingmönnum Reykjavíkur, var stuðningsmaður flokksins frá stofnun og telst fyrsti þingmaður hans þrátt fyrir að hafa verið kos- inn á þing fyrir Alþýðuflokkinn 1916. Framsóknarflokkurinn var stofnaður formlega á Alþingi 16. desember árið 1916. Fyrstu árin starfaði hann eingöngu sem þing- flokkur en upp úr 1930 var honum breytt í formlega fjöldahreyfingu með flokksfélög sem grunneining- ar. Beðið eftir skipi Upphaf stofnunar Framsóknarflokksins má rekja til þess að nokkrir þing- menn voru á spjalli á Seyðisfirði þar sem þeir biðu skipsferðar til Reykjavík- ur. Svavar Hávarðsson blaðamaður hverfur níutíu ár aftur í tímann. Góð og hófsöm grunngildi Eins og íslenski geitastofninn Sagan verði metin af réttsýni Framsókn þykir vænt um fólk Flokkurinn sjálfum sér verstur Í dag eru níutíu ár síðan elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins var stofnaður. Hér er stofnun Framsóknarflokksins rifjuð upp, tæpt á helstu staðreyndum í sögu hans, álita á afmælisbarninu leitað og reynt að varpa ljósi á stöðu flokksins á tímamótunum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.