Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 92
F
ramsóknaflokkurinn
fagnar í dag 90 ára
afmæli sínu en hann
var stofnaður á þess-
um degi árið 1916 og
er því elsti starfandi
stjórnmálaflokkur landsins. Flokk-
urinn á sér merka sögu, hann
hefur átt aðild að ríkisstjórn leng-
ur en nokkur annar flokkur á
Íslandi eða um tvo þriðju hluta
þeirra 90 ára sem flokkurinn hefur
starfað. Hann hefur unnið með
öllum flokkum og hefur átt aðild
að bæði að vinstri og hægri stjórn-
um og gegnum tíðina hefur oft
verið erfitt að myndi ríkisstjórn
án Framsóknarflokksins. Flokkur-
inn hefur því haft mikil áhrif
þróun íslensks samfélag eins og
við þekkjum það í dag. En á þess-
um tímamótum eru blikur á lofti
og afmælisárið hefur líklega verið
eitt það erfiðasta í sögu flokksins
og margir velta fyrir sér framtíð
hans á þessum tímamótum.
Þegar að Framsóknaflokkurinn
var stofnaður voru örar breyting-
ar í þjóðfélaginu - nýjar stéttir
urðu æ fjölmennari og mikil fólks-
fjölgun var í helstu þéttbýlisstöð-
um landsins. Stjórnmálaumræðan
var að færast frá sjálfstæðis-
stjórnmálum yfir í stéttastjórn-
mál. Í mars þetta ár var Alþýðu-
samband Íslands stofnað ásamt
stjórnmálaarmi þess Alþýðu-
flokknum. Framsóknarflokkurinn
varð til með sameiningu þing-
flokka Bændaflokksins og Óháðra
bænda. Framsóknaflokkurinn var
því fyrst og fremst bændaflokkur-
inn þegar að hann var stofnaður
sem átti að gæta hagsmuna bænda
og annars búaliðs í sveitum lands-
ins. Íslenskt samfélag hefur tekið
stakkaskiptum frá þessum tíma
og þýðing landbúnaðar fyrir
íslenskt þjóðarbú verður sífellt
minni og hlutfallslega hefur orðið
mikil fólksfækkun sveitum lands-
ins. Framsóknarflokkurinn hefur
á vissan hátt verið fórnarlamb
þessara þróunar.
Framsóknarflokkurinn hefur
vissulega fylgt þessari þróun síð-
ustu áratugi og aðlagað stefnumál
sín þéttbýlissamfélaginu. Samt
sem áður hefur flokkurinn alltaf
verið með mun meira fylgi á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæð-
inu. Nú þegar að meirihluti lands-
manna býr á höfuðborgarsvæðinu
hefur þessu staðreynd valdið
Framsóknarfólki nokkrum áhyggj-
um. Undanfarin ár hefur flokkur-
inn því markvisst reynt að breyta
hefðbundinni ímynd flokksins sem
landsbyggðarflokks í að vera
borgaralegur miðjuflokkur og
freistað þess að auka fylgið á höf-
uðborgarsvæðinu. En það segir
sig sjálft að fylgi Framsóknar-
flokksins á suðvestur horni lands-
ins kemur til með að ráða miklu
um hvaða afl flokkurinn verður í
íslenskum stjórnmálum í framtíð-
inni.
Tilraunir til að auka fylgi flokks-
ins á höfuðborgarsvæðinu hafa
enn ekki skilað tilætluðum árangri
og svo virðist sem að þær hafi fælt
marga hefðbundna kjósendur
flokksins frá honum. Á þessum
tímamótum er Framsóknarflokk-
urinn því í mikilli kreppu. Þetta
kjörtímabil - ekki síst líðandi ár -
hefur verið flokknum erfitt. Flokk-
urinn virðist ekki njóta trausts
kjósenda og hann hefur mælst
langt undir kjörfylgi í flestum
skoðanakönnunum og hann tapaði
miklu fylgi í sveitarstjórnarkosn-
ingum í vor. Í kjölfarið sagði Hall-
dór Ásgrímsson af sér sem for-
maður flokksins. Sú atburðarás
var öll með ólíkindum eins þjóð-
inni er líklega ógleymanlegt. Val
flokksmanna á eftirmanni Hall-
dórs var nokkuð sérstakt þar sem
Jón Sigurðsson var sóttur út fyrir
þingflokkinn og nánast óþekktur
maður meðal almennra kjósenda.
Margir túlkuðu þetta sem svo
þingflokkurinn nyti hvorki trausts
hins almenna kjósanda né eigin
flokksmanna. Jón Sigurðsson á
eftir að sanna sig í íslenskri pólit-
ík en hann hefur notað síðustu
mánuði í að kynna sig fyrir kjós-
endum. Sú kynning hefur ekki enn
skilað flokknum auknu fylgi í
könnunum.
Nú þegar tæpir sex mánuðir eru
til kosninga hefur fjöldi kjósenda
ekki gert upp hug sinn og margt
getur því breyst. Á undaförnum
áratugum hefur orðið mikil breyt-
ing á kosningahegðun Íslendinga.
Kosningarannsóknir sýna að
flokkshollusta hefur minnkað og
nýjar kynslóðir kjósenda líta
síður á sig sem stuðningsmenn
ákveðins flokks og einstök mál-
efni vega mun þyngra en áður.
Þessar rannsóknir sýna að allt að
þriðjungur kjósenda skiptir um
flokk á milli kosninga og 60 pró-
sent þeirra hugleiða í aðdraganda
kosninga að kjósa annan flokk eða
flokka en þeir svo kjósa á endan-
um. Fylgi flokka getur því sveifl-
ast mikið og ekkert er fyrirfram
gefið þegar að kemur að kosning-
um. Kosningarannsóknir sýna
einnig að hlutfallslega eru frekar
fáir kjósendur Framsóknarflokks-
ins sem líta á sig sem stuðnings-
menn hans. Flokkurinn hefur því
þurft að treysta á lausafylgi, sem
hefur gengið ágætlega hingað til,
enda staðsetur flokkurinn sig á
miðju íslenskra stjórnmála eins
og flestir kjósendur. Því er ekki
öll nótt úti fyrir Framsóknar-
flokkinn og hann gæti unnið traust
kjósenda á ný á komandi mánuð-
um. Skoðanakannanir og síðustu
sveitastjórnarkosningar gefa þó
ef til vill ekki tilefni til mikillar
bjartsýni fyrir hönd flokksins um
gott gengi í næstu Alþingiskosn-
ingum. En fari svo að flokkurinn
tapi miklu fylgi í vor skildi enginn
afskrifa Framsóknarflokkinn til
framtíðar. Flokkurinn á sér dýpri
rætur í samfélaginu en svo að
einar kosningar ráði örlögum
hans. En hvort Framsóknarflokk-
urinn muni spila jafn stórt hlut-
verk í íslenskum stjórnmálum á
næstu 90 árum eins og hann hefur
gert síðustu 90 ár mun framtíðin
skera úr um. Að lokum vil ég óska
öllu framsóknarfólki til hamingju
með daginn.
Afmælisbarn í kreppu
Framsóknarflokkurinn hefur verið í forystu þrettán ríkisstjórna á síðustu 90
árum. Einar Mar Þórðarsson stjórnmálafræðingur hjá Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands fer yfir þróun Framsóknarflokksins og skoðar stöðu flokks-
ins er í dag.
JÓLAGLEÐI Í HÚSGAGNAHÖLLINNI
OPIÐ TIL Kl.22
alla daga fram að jólumKomdu og
fáðu fr
ía
mynd m
eð jólas
veininu
m