Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 33
Gráðaostur er aðalsmaður
ostanna og góður í alls
konar matargerð.
Gráðaostur er ýmist kúa-,
sauða- eða geitaostur sem
pensilínbakteríum hefur verið
bætt í svo að osturinn er með
myglublettum eða æðum. Hann
er yfirleitt látinn gerjast í hita-
stýrðu umhverfi, til dæmis helli
þar sem kjöraðstæður eru bæði
fyrir ost og myglu. Gráðaostur er
aðalsmaður ostanna og flestir
erlendir gráðaostar eru vernduð
vörumerki og eiga sér bæði sögu
og heimalén. Franski Roquefort-
osturinn er til dæmis sagður hafa
verið fundinn upp árið 1070 og
ítalski Gorgonzola-osturinn er enn
eldri eða frá árinu 879. Enski Stil-
ton-osturinn er frekar ungur í
samanburðinum eða síðan á átj-
ándu öld. Allir eru þessir ostar
bundnir við ákveðna staði og
héruð og má til að mynda enginn
kalla ostinn sinn Stilton nema sá
hinn sami sé búsettur og framleiði
ostinn í Derbyshire,
Leicestershire eða Nottinghams-
hire í Englandi. Margir síðari tíma
gráðaostar eru tilkomnir vegna
þess að hinir svokölluðu „alvöru“
gráðaostar voru ekki á boðstólum,
annaðhvort af landafræðilegum
ástæðum eða pólitískum.
Bragðið af gráðaosti er sterkt
og stundum dálítið salt og lyktin
hefur unnið þessum ostum virð-
ingarheitið „táfýluostar“. Gráða-
ost má borða einan sér en hann
nýtist líka vel í alls konar matar-
gerð.
Gráðaostur er íslenska afbrigði
Roquefort hins franska og er
fyrsti íslenski mygluosturinn. Á
seinni tímum hefur notkun hans í
matargerð aukist verulega, eins
og til dæmis í eftirrétti, súpur,
sósur og salöt enda segja osta-
kaupmenn á Íslandi að gráðaostur
sé helsti jólaostur Íslendinga.
Gráðaostur er einkar góður í
sætu samhengi og ein frábær og
einföld leið til að njóta hans felur
jafnframt í sér að klára pipar-
kökuafganga frá jólum. Bræðið
saman í potti einhvern góðan
gráðaost, rjómaost og rjómaslettu
og búið til sósu. Dýfið piparkökun-
um í og setjið síðan örlítið balsam-
edik ofan á. Furðulegt og alveg
himneskt.
Gráðaostur
góður er
PANTAÐU Í SÍMA
WWW.JUMBO.IS
554 6999
SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI
ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI