Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 44
BLS. 8 | sirkus | 26. JANÚAR 2007
Klara Ósk Elíasdóttir
söngkona úr Nylon hlaut
verðlaun sem besta
söngkona ársins á Hlust-
endaverðlaunum FM 957
í vikunni. Klara Ósk segist
aldrei hafa getað ímynd-
að sér hvaða stefnu líf
hennar myndi taka áður
en hún fór á sinn fyrsta
fund með Einari Bárðar-
syni og hinum stelpunum í
Nylon á sínum tíma.
Sirkus ræddi við Klöru um
lífið í Nylon-flokknum.
Þ að var ofboðslega skemmti-legt að fá þessar viðurkenn-ingar,”“segir Klara Ósk
Elíasdóttir, söngkona Nylon, sem
hlaut Hlustendaverðlaun Fm957 sem
besta söngkona ársins auk þess sem
Nylon-flokkurinn fékk viðurkenningu
fyrir besta myndbandið við lagið
Closer.
Ráðríkar og skoðanaglaðar
Klara segir að verðlaunin fyrir
bestu söngkonuna séu ekki aðeins
viðurkenning fyrir hana heldur
hljómsveitina eins og hún leggi sig
enda séu þær í þessu saman.
Aðspurð hvort hún sé aðalsöng-
kona Nylon segir hún það af og frá.
„Alls ekki. Við skiptum lögunum á
milli okkar og reynum að gera þetta
saman. Við stjórnum þessu mest
sjálfar og í rödduninni er það Emilía
sem fer fremst í flokki. Það fer ekkert
frá okkur nema við séum allar ánægð-
ar og við höfum okkar skoðanir á
öllu,“ segir hún og bætir við að það sé
oft gott að hafa Einar Bárðarson við
hendina þegar þær þurfi á oddaat-
kvæði að halda.
„Við erum ráðríkar og heimtum
þangað til við fáum okkar fram en
það er gott að hafa Einar með okkur.
Sem betur fer vinnum við vel saman
enda myndi þetta annars aldrei
ganga. Við erum stoltar af okkur og
þessi viðurkenning er fyrir okkur í
heild sem sönghóp. Í rauninni held ég
að þeir hafi sett öll fjögur nöfnin
okkar í pott og dregið um hver yrði
fyrir valinu. Ég á bara einn fjórða af
þessu.“
Með fæturna á jörðinni
Nylon-ævintýrið, sem hófst sem
auglýst sumarvinna í dagblaði, hefur
heldur betur undið upp á sig. Klara
segist aldrei hefði getað ímyndað sér
hvaða stefnu líf hennar myndi taka
þegar hún fór á sinn fyrsta fund með
Einari Bárðasyni á sínum tíma.
„Mér fannst þetta ofsalega
spennandi strax í byrjun en vissi
voðalega lítið út í hvað ég var komin.
Við áttum að stofna hljómsveit og
koma fram á 17. júní auk þess sem
sjónvarpsþáttur var í bígerð. Þetta
sumar var algjört ævintýri og þegar
því lauk voru ákvarðanirnar orðnar
mun stærri og tækifærin sem stóðu
okkur til boða stærri og meiri. Allt í
einu vorum við komnar til Bretlands
og farnar að spila með stórum
böndum sem við höfðum horft upp til
sem krakkar. Við vorum farnar að lifa
drauminn sem við vissum ekki að við
áttum fyrr en hann var farinn að
rætast. Þetta hefur verið rosalega
gaman og er það enn þá,“ segir hún og
bætir við að þrátt fyrir velgengni
takist þeim að halda fótunum niðri á
jörðinni.
„Maður nær ekki að njóta neins
nema vera með góða yfirsýn yfir það
sem er að gerast. Við vitum líka að
gæfan er hverful, það gæti allt verið
horfið á morgun og því ætlum við að
njóta á meðan er.“
Erum ekki haldnar strípihneigð
Aðspurð segir Klara að hún hafi
alist upp við djass á æskuheimilinu
en að dívurnar Maria Carey og Celine
Dion hafi verið númer eitt, tvö og þrjú
hjá henni á unglingsárunum. „Í dag
hlusta ég mikið á Evu Cassidy og Lucy
Silvas. Tónlist þeirra höfðar til mín en
þetta eru léttar ballöður og ljúfir
tónar sem eru um leið kraftmiklir.“
Nylon hefur ekki fetað í fótspor
þeirra fjölmörgu sönghópa og kvenna
sem selja tónlist sína með nekt og
kynþokka. Klara segir að sú ákvörðun
hafi verið meðvituð, engin þeirra sé
haldin strípihneigð.
„Engin okkar vildi feta þá braut
enda trúum við ekki að nektin selji
þótt hún veki umtal og spenning. Við
viljum vera góðar fyrirmyndir og
vitum að það eru stelpur þarna úti
sem líta upp til okkar og við viljum
vera ánægðar með það sem við erum
að bjóða upp á. Við erum mjög
meðvitaðar um að þetta snýst um
tónlistina og að brosa með henni og
hafa gaman. Vonandi skilar það sér
án þess að þurfa að fækka fötum.“
Um það hvort þrýstingurinn um þá
stefnu sé mikill í Bretlandi segir hún
að hann sé vissulega til staðar. „Þetta
er mismunandi eftir tónlistarsviðum
og þrýstingurinn er mestur í poppinu.
Hins vegar pínir enginn Nylon til að
gera eitthvað sem við viljum ekki. Við
erum allar mjög harðar á þessu og
ætlum að vera það áfram.“
Komnar með aðdáendahóp úti
Eftir viðburðaríkt ár úti í Bretlandi
hafa stelpunar í Nylon slakað vel á
heima. „Þetta er búið að vera
ofboðslega ljúft. Nú bíðum við bara
eftir fréttum að utan. Það kemur allt í
ljós á næstu mánuðum hvernig
framhaldið verður,“ segir hún og bætir
við að það sé erfitt að vera langtímum
fjarri fjölskyldu og kærasta.
„Það er það erfiðasta og það er
alltaf jafn gott að heyra og sjá
mömmu og kærastann. Við erum
heppnar að því leyti að við höfum
hverja aðra, annars væri þetta
leiðinlegt. Við höfum gaman af hver
annarri og skemmtum okkur vel
saman í öllum þessum löngu
bílferðum.“
Nylon hefur hitað upp fyrir nokkrar
af þekktustu sveitum Bretlands og
eru komnar með sinn eigin aðdá-
endahóp. „Það er hópur af krökkum
sem fylgir okkur eftir og bíður alltaf
eftir okkur til að fá eiginhandarárit-
anir og svona. Svo vitum við líka um
þó nokkra aðdáendur sem horfa á
atriðið okkar en láta sig hverfa áður
en aðal hljómsveit kvöldsins stígur á
sviðið. Það er æðisleg tilfinning. Að
einhver skuli borga miða til að horfa á
okkur hita upp fyrir stóru sveitina en
yfirgefa staðinn áður en aðalnúmer
kvöldsins spilar,“ segir Klara Ósk
brosandi að lokum.
indiana@frettabladid.is
ÞETTA ER VIÐURKENNING
FYRIR OKKUR ALLAR
SAMAN Á HLUSTENDAVERÐLAUNUNUM
Nylonstelpurnar voru flottar saman á
sviðinu í Borgarleikhúsinu á þriðjudag-
inn. SIRKUSMYND/DANÍEL
Klara Ósk Elíasdóttir „Við erum stoltar af okkur og þessi viðurkenning er fyrir okkur í heild sem sönghóp. Í rauninni held ég að
þeir hafi sett öll fjögur nöfnin okkar í pott og dregið um hver yrði fyrir valinu. Ég á bara einn fjórða af þessu.“ SIRKUSMYND/HEIÐA
„VIÐ VORUM FARNAR AÐ LIFA DRAUMINN SEM
VIÐ VISSUM EKKI AÐ VIÐ ÁTTUM FYRR EN HANN
VAR FARINN AÐ RÆTAST.”
KLARA Í NYLON VAR VALIN SÖNGKONA ÁRSINS AF HLUSTENDUM FM 957