Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 56
12
WPSA-mótaröðin í snjókrossi hefur
verið haldin hér á landi frá árinu
1999 og svo verður einnig í ár.
Snjókross er ein allra skemmtileg-
asta keppnisgreinin í íslensku mót-
orsporti og að þessu sinni má búast
við miklu.
„Snjókrosskeppnirnar hafa verið
miklir viðburðir undanfarin ár en
ég þori að lofa því að núna munum
við sjá enn glæsilegri umgjörð í
kringum keppnisliðin sem gerir
þetta enn skemmtilegra. Mótaröð-
in er að amerískri fyrirmynd og
við erum að sjá alla umgjörðina í
kringum þetta þróast í þá átt sem
flottast er í Bandaríkjunum,“ segir
Gunnar Hákonarson, sem er einn af
upphafsmönnum snjókrossins hér
á landi og sömuleiðis einn kepp-
enda en segja má að „gamli mað-
urinn“ fáist hreinlega ekki til að
hætta að keppa. „Ég verð með í ár
á mínum forsendum. Þetta er bara
svo gaman að það er ekki nokkur
leið að hætta,“ segir hann.
Snjókrosskeppnirnar fara
þannig fram að keyrt er í þremur
styrkleikaflokkum, tveimur fullorð-
ins og einum unglingaflokki. Allir
keyra sömu braut, fjórar umferðir
í hverri keppni og gefa keppnirnar
síðan stig til Íslandsmeistaratitils.
Brautirnar eru þannig lagðar að
þær bjóða upp á allt í senn; hraða,
stökk, ójöfnur, pústra og árekstra
en þó mikið gangi á er mjög fátítt
að slys verði í þessum keppnum.
Kemur þar einnig til að örygg-
iskröfur eru miklar hvað búnað
keppenda varðar og sömuleiðis eru
keppendur sífellt betur þjálfaðir.
„Við höfum séð mikla vakningu
í snjókrossi undanfarin ár. Kepp-
endur eru farnir að æfa mun meira
í brautum en áður sem aftur gerir
að verkum að þeir vita nákvæmlega
hvernig þeir eiga að bregðast við í
mismunandi brautum. Sleðarnir
eru líka sérútbúnir til keppni, líkt
og gerist erlendis og þegar þetta fer
saman við vandaðar og vel lagð-
ar brautir verður útkoman frábært
mótorsport fyrir áhorfendur. Við
höfum séð mikla vakningu meðal
unglinganna undanfarin ár, hörku
keppni og góða ökumenn þannig
að við þurfum ekki að örvænta í
framtíðinni.
Í ár sjáum við líka þá breytingu
frá í fyrra að hérlendu vélsleðaum-
boðin leggja mikið í keppnishaldið,
halda úti keppnisliðum með til-
heyrandi umgjörð sem ekki hefur
sést áður hér á landi. Fyrir það eiga
þau mikið hrós skilið. Núna sjáum
við fjögur slík keppnislið með hátt
í tuttugu keppnissleðum og mér
er kunnugt um að í að minnsta
kosti einu liðanna verður reyndur
snjókrossmaður frá Bandaríkjun-
um sem mun þjálfa og aðstoða í
mótum. Það eru því sannkallaðar
stórveislur framundan í snjókross-
inu fyrir bæði keppendur og ekki
síður áhorfendur,“ segir Gunnar.
Fyrsta keppnin er áætluð 3.
febrúar í nágrenni Reykjavíkur, 2.
umferð verður í Ólafsfirði 10. febrú-
ar, 3. umferð á Akureyri 24. febrú-
ar, 4. umferð við Mývatn 10. mars,
fimmta umferðin á Húsavík þann
24. mars og 6. og síðasta umferðin
verður alþjóðlegt mót með þátttöku
erlendra keppnisökumanna hinn
14. apríl á Egilsstöðum. Keppnis-
dagatalið getur tekið breytingum
vegna tíðarfars.
Upplýsingar um keppnirnar
verða birtar á www.snocross.is.
Sex snjókrossveislur
á næstu mánuðum
WPSA-mótaröðin í snjókrossi hefst þriðja febrúar og
munu fjögur öflug keppnislið, að amerískri fyrirmynd,
mæta til leiks.
{ vetrarlíf }