Fréttablaðið - 26.01.2007, Síða 66
BLS. 14 | sirkus | 26. JANÚAR 2007
S ólveig Eiríksdóttir rekur lífrænu hollustulínuna Himneska
hollustu. Solla segir Íslendinga
aðeins á eftir öðrum þjóðum þegar
kemur að lífrænum mat. Hún tók sig
til og þýddi allar leiðbeiningar á
íslensku svo vörurnar séu aðgengi-
legri.
„Ég áttaði mig á því að fólk hafði
ekki nýtt sér lífrænu vörurnar þar
sem það skildi ekki hvernig átti að
nota þær,“ segir Sólveig Eiríksdóttir
sem rekur Himneska hollustu og
selur lífrænar vörur.
„Hjá okkur er allt á íslensku. Ég
komst að því að konur sem eru
þaulvanar í eldhúsi og geta rúllað
upp heilu fermingaveislunum skilja
ekki hollenskar leiðbeiningar og hafa
því hingað til sleppt lífrænum vörum.
Þessi uppgötvun varð kveikjan að því
að koma með þessa framleiðslu,“
segir Solla og bætir við að á umbúð-
unum séu einnig auðveldar upp-
skriftir.
„Í fyrstu voru þessar vörur svo
dýrar og fólk varð að velja á milli
spelts og bensíns. Nú er hins vegar
komin samkeppni á þennan markað
og með fleiri neytendum hefur verðið
lækkað þótt enn sé um fyrsta flokks
vöru að ræða. Sjálf er ég tiltölulega
nýkomin með bílpróf, fór allar mínar
leiðir á hjóli áður en ég ákvað að taka
prófið. Ég var lengi að gefa mig en
ákvað að þar sem ég var með barn
yrði ég að hafa bíl. Núna ek ég um á
sparneytnum Yaris því ég vil frekar
eyða peningunum í eitthvað hollara
en bensín,“ segir Solla og bætir við að
hún sé stolt yfir hollustuvakningunni
í þjóðfélaginu.
„Ég er voðalega montin yfir þessari
vakningu í lífrænum mat, við vorum
brautryðjendur og nú er þetta komið
í allar búðir. Fólk sem aldrei spáði í
neitt svona er nú farið að spurja og
spá svo maður sáir fræjum og
hnippir aðeins í fólk. Ég hef alltaf haft
þennan áhuga á hollustu og byrjaði í
þessu með hugsjón sem er enn í
gangi og verður alltaf. Við Íslending-
ar erum á eðlilegu róli varðandi
lífrænan mat, kannski frekar sein
miðað við önnur lönd. Við eigum
samt eftir að taka við okkur og allt í
einu verða allir komnir í þetta. Við
erum nefnilega svo krúttleg.“
Við mælum með
F eðgarnir Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson eiga lagið Eldur sem flutt verður í
Söngvakeppni Sjónvarpsins annað
kvöld. Grétar fékk eiginkonu sína til
að semja textann við lagið svo um
alvöru fjölskylduverkefni er að ræða.
„Við feðgarnir eigum lagið saman
og Ingibjörg Gunnarsdóttir konan
mín samdi textann,“ segir Grétar Örv-
arsson tónlistarmaður en hann og
Kristján Grétarsson sonur hans eiga
lagið Eldur sem flutt verður í
Söngvakeppni Sjónvarpsins annað
kvöld. Þeir feðgar hafa ekki samið oft
saman en samkvæmt Grétari gekk
samstarfið vel. „Ingibjörg hefur
samið texta fyrir marga lagahöfunda
og söngvara í gegnum tíðina og því lá
beinast við að leita til hennar enda
ekki við hæfi að líta fram hjá konunni
sinni,“ segir Grétar brosandi en
fjölskyldan leitaði til Friðriks Ómars
söngvara til að flytja lagið. „Friðrik
Ómar er sterkur flytjandi sem hefur
brennandi áhuga á þessari keppni.
Við erum ekki í þessu af neinum
fíflagangi heldur erum í þessu af
fullri alvöru og leggjum allan okkar
metnað í þetta,“ segir Grétar og bætir
við að hann telji lagið sterkt. „Í laginu
er mikill undirliggjandi kraftur, það
hefur yfir þjóðlegum blæ að ráða og
ýmis önnur blæbrigði en ég vil láta
hlustendur um að dæma.“
Aðspurður um gengi Silvíu Nætur í
fyrra segist Grétar líklega vera
sammála meirihluta þjóðarinnar um
að grínið hafi gengið of langt. „Mér
fannst þetta voðalega sniðugt og vissi
að hún myndi sigra hér heima. Hún
var með heilan sjónvarpsþátt á bak
við sig og yngri kynslóðin er dugleg í
símakosningunni. Þar af leiðandi
hvet ég þá sem eldri eru til að kjósa
það lag sem við getum verið stolt af
og forðast það að vakna upp með
timburmenn eftir þessa keppni eins
og gerðist í fyrra og hittiðfyrra. Við
eigum að senda fólk sem hefur
brennandi áhuga á þessari keppni,
fólk sem leggur metnað í þetta.“
GRÉTAR ÖRVARSSON FÉKK FJÖLSKYLDUNA MEÐ Í EUROVISION
Samdi lag með
syninum og konunni
SÖNGVARINN OG LAGASMIÐIRNIR „Friðrik Ómar er sterkur flytjandi sem hefur brenn-
andi áhuga á þessari keppni. Við erum ekki í þessu af neinum fíflagangi heldur erum
í þessu af fullri alvöru og leggjum allan okkar metnað í þetta,“ segir Grétar sem sést
hér ásamt Kristjáni syni sínum og söngvaranum Friðriki Ómari. SIRKUSMYND/HEIÐA
„Á föstudögum fer ég alltaf með
stelpurnar mínar í íþróttaskólann og ætla
svo að eiga kósý kvöld með þeim heima.
Á laugardaginn ætla ég að mæta í
ræktina og um kvöldið er ég búin að lofa
að passa litla strákinn systur minnar.
Hann ætlar að vera í næturpössun í
fyrsta skiptið svo það
verður öruggleg
eitthvað um andvöku
það kvöldið. Á
sunnudögum er það
alltaf sama skemmtilega
rútína, við fáum okkur
bakkelsi og gefum svo
öndunum brauð.“
Íris Björk Árnadóttir
fyrrverandi fegurðar-
drottning og mamma
„Helgin er að mestu
leyti óráðin, kannski
kíki ég suður eða verð
heima hér fyrir norðan
og stend í flutningum.
Ætli maður reyni ekki að
kíkja aðeins út á lífið til
að sýna
smá lit
en
annars
er
undirbúningur fyrir mót í
fullum gangi svo maður verður
að hafa sig hægan. Ég verð að
æfa alla helgina, það eru engar
pásur í því.“
Heiðrún Sigurðardóttir
líkamsræktarkona
„Ég er að fara að syngja
í Eurovision-keppninni á
morgun og er mjög
spennt fyrir því. Ég er
ein af bakröddunum
fyrir söngkonuna
Guðrúnu Lísu
Einarsdóttur og mér
líst mjög vel á
þetta hjá
okkur. Ef lagið
sigrar er ég að sjálfsögðu
tilbúin að fara út og keppa
fyrir Íslands hönd, þótt ekki
væri nema sem bakrödd. Á
sunnudaginn ætla ég svo
bara að slaka á.“
Ína Valgerður Pétursdóttir
söngkona
„Helgin fram undan er mjög róleg
sem er fínt þar sem það er búið
að vera mjög mikið að gera
síðustu daga, bæði í
vinnunni og í að þjálfa.
Kannski skrepp ég bara í
bíó en mig langar að sjá
nýju myndina með Ben
Stiller, Night at the
Museum. Ég held að
hún sé skemmtileg
afþreying.“
Kristín Rós
Hákonardóttir
sundkona
Hvað á að gera um helgina?
ER Í HOLLUSTUNNI
AF HUGSJÓN
„Ég mæli með
kvikmyndunum
Little Miss
Sunshine og
Stranger than
Fiction og
disknum Coco
Rosie. Sjálf hlakka
ég mikið til að
sjá myndina
Foreldra og
það er óhætt
að segja að
bíóárið byrji
mjög vel.“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir leikkona
„Ég mæli með
leikritinu Pabbanum.
Þetta er alveg
rosalega skemmti-
leg og fyndin
sýning sem ég
mæli með fyrir
alla. Einnig mæli
ég með Incubus
tónleikunum í
mars. Ég hlakka
alveg svakalega
til að sjá þá.“
Tinna Marína
söngkona
„Ég mæli með kvikmyndinni Crash.
Þessi mynd kom mér
mjög á óvart og ég er
búinn að hugsa mikið
um hana síðan ég sá
hana. Einnig mæli ég
með geisladisknum
með Ný danskri og
Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Ég var að
finna þennan disk í
hrúgunni heima og
er aftur farinn að
dýrka þennan disk.“
Kristinn Darri Röðulsson
Herra Ísland 2006
„Ég mæli með leikritinu Ófagra veröld í
Boragrleikhúsinu en það dregur mann inn
í geðveikina og út aftur, algjör snilld.
Einnig mæli ég með að fólk gefi til
hjálparstarfs með sínum hætti og gleðjist
yfir stórum jafnt sem smáum framlögum.
Það skiptir ekki hvaðan fjárstyrkurinn
kemur. Að lokum mæli ég með að hver
og einn geri sitt í þessum loftlagsbreyting-
um og kíki á www.climatecrisis.net.“
Hólmfríður Anna Baldursdóttir
upplýsingafulltrúi UNICEF
Sólveig Eiríksdóttir Solla
er tiltölulega nýkomin með
bílpróf og keyrir um á
sparneytnum Yaris.
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm.
Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@
frettabladid.is Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is,
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir
550 5864 gretakaren@frett.is
sirkus