Fréttablaðið - 26.01.2007, Qupperneq 88
„Þótt þú hafir selt milljónir af plötum þýðir það ekki að þú sért góð.
McDonald‘s selur fullt af hamborgurum,“ á Ahmet Ertegun að hafa sagt
við Tori Amos. Ahmet, sem lést í desember síðastliðnum, var stofnandi
og stjórnandi Atlantic-plötufyrirtækisins. Tímaritið Rolling Stone birti
mjög yfirgripsmikla umfjöllun í minningu þessa mikla frömuðar sem
blaðið kallar „The Greatest Record Man of All Time“. Ahmet fær ellefu
síður í blaðinu á meðan sjálfur James Brown fær ekki nema sjö.
Ahmet Ertegun var sonur tyrknesks sendiherra í Bandaríkjunum.
Hann var forfallinn djass- og blúsgeggjari og stofnaði Atlantic árið
1947. Hann gerði annan geggjara og fyrrum tónlistarrýni hjá Bill-
board, Jerry Wexler, að meðeiganda og saman gerðu þeir Atlantic að
stórveldi. Ahmet uppgötvaði Ray Charles og gerði Arethu Franklin og
Wilson Pickett að stjörnum. Hann náði í bæði Led Zeppelin og Rolling
Stones. Og hann gerði samninga við Cream og King Crimson og Tori
Amos. Atlantic hélt áfram að vaxa löngu eftir að hin óháðu fyrirtækin
sem spruttu upp á eftirstríðsárunum (Chess, King, Vee-Jay …) lentu í
erfiðleikum. Ahmet hélt áfram að stjórna fyrirtækinu eftir að hann
seldi það Warner-risanum. Hann var á fullu
til dauðadags og lést reyndar eftir að hann
datt illa á tónleikum með Stones, 83 ára að
aldri … Stórmenni í tónlistarsögunni sem
hélt áfram að styðja við listamennina sem
hann uppgötvaði eftir að þeir yfirgáfu
hann og fóru annað. Blessuð sé minning
hans.
Þessi orð Ahmets við Tori komu annars
upp í hugann þegar ég rakst á lista yfir
mest seldu plöturnar í Bandaríkjunum árið
2006. Þvílík hörmung! Tónlist úr Disney-
þætti í fyrsta sæti, útþynnt kántrí miðju-
moð númer tvö og Idol-stjarnan Carrie
Underwood númer þrjú. Bestu plötur
ársins samkvæmt helstu fjölmiðlum eru
hvergi sjáanlegar. Getur verið að gæði og
mikil sala fari hreinlega ekki saman?
Mikil sala = lítil gæði?
Íslandsvinirnir í The Shins
senda í næstu viku frá
sér sína þriðju breiðskífu
sem hefur þó verið fáan-
leg í langan tíma á netinu.
Steinþór Helgi Arnsteins-
son skoðaði gripinn og sögu
hans.
The Shins er upprunalega frá
Albuquerque, höfuðborg Nýju
Mexíkó, sem kemur meðal annars
fyrir í hinu ógleymanlega King of
Rock ‘n‘ Roll með Prefab Sprout
þar sem segir í viðlaginu: „Hot
dog, jumping frog, Albuquerque!”
En nóg um borgina. Aðalmaðurinn
á bak við The Shins er söngvarinn,
James Mercer, en hann stofnaði
sveitina upp úr 1997. Hjólin byrj-
uðu síðan að snúast fyrir alvöru
þegar sveitin hitaði upp fyrir Mod-
est Mouse og fékk í kjölfarið
samning hjá hinni frábæru Sub
Pop-útgáfu en þriðja platan verð-
ur jafnframt sú síðasta hjá útgáf-
unni. Fyrsta plata sveitarinnar,
Oh, Inverted World, kom út árið
2001 og fékk mikið lof. Þótti metn-
aðarfull indípoppplata, undir sól-
skinsáhrifum frá Beach Boys þótt
meðlimum sveitarinnar líki illa sá
samanburður. Platan Chutes too
Narrow fylgdi í kjölfarið árið
2003.
The Shins stóð því frammi fyrir
verðugu markmiði, að setja saman
sína þriðju plötu sem svo margar
aðrar sveitir hafa brennt sig á.
Strax frá fyrstu fregnum um nýju
plötuna var alveg ljóst að meðlim-
ir sveitarinnar ætluðu að feta
nýjar slóðir. Í viðtali við Billboard
sögðu þeir að í fyrsta skiptið hefði
sveitin svigrúm til þess að að
teygja almennilega úr sér. Platan
fékk nafnið Wincing the Night
Away (útúrsnúningur á laginu
Twistin’ the Night Away sem Sam
Cooke gerði vinsælt) og er tilvísun
í svefnleysi Mercer. Platan var
tekin upp af Joe Chiccarelli sem
hefur unnið með listamönnum á
borð við Beck, Tori Amos og U2 en
einnig hefur nýr meðlimur bæst
við, Eric Johnson úr Fruit Bats.
The Shins hefur einnig flutt sig
yfir til Portland í Oregon-ríki.
Einn dáðasti drengur þeirrar borg-
ar, Stephen Malkmus, lét einmitt
hafa það eftir sér að Shins og
önnur Portlandsveit, The
Decemberists, væru hið nýja
svarta.
Hinn 20. október lak platan hins
vegar á netið og fór þar eins og
eldur um sinu. Meðlimir sveitar-
innar hafa ítrekað að hljómgæðin
séu allt önnur og mun verri á lek-
anum auk þess sem tveimur lögum
hefur verið bætt við plötuna. Til
þess að bæta gráu ofan á svart
setti iTunes plötuna óvart á sölu í
tvo daga fyrir nokkrum vikum
síðan. Þegar platan lak á netið
virtust allir netverjar vera sam-
mála um að hér væri komin sísta
plata Shins til þessa. Nýlegir
dómar frá ýmsum tónlistarmiðl-
um hafa hins vegar verið á öðru
máli. Bæði NME og Drowned in
Sound gáfu sem dæmi plötunni
níu af tíu mögulegum.
Platan er þó töluvert frábrugð-
in fyrri plötum, því neitar enginn.
Yfirborðið er þykkara og tónninn
alvarlegri.
„Mér finnst það alltaf svalt að
koma fólki á óvart, og þú veist,
tvöfalt svalara ef þú getur komið
því á óvart og vakið aðdáun. Mér
fannst við megnugir þess og ein-
faldlega hafa gert eitthvað sem
Shins-aðdáendur ættu ekki von á,“
sagði Mercer í nýlegu viðtali. Þá
er bara að bíða og sjá hvað aðdá-
endurnir segja.
Wu-Tang mætt aftur
11. hve
r
vinnur
!
Sendu SMS BTC ABF
á númerið 1900 og þú
gætir unnið DVD myndina!
Vinningar eru Antbully á DVD, DVD myndir Og margt fleira
KemurÍ VERSLANIR25. janúar
Viltu
eintak?
Vin
nin
ga
rv
er
ða
af
he
nd
ir h
já
BT
Sm
ár
ali
nd
. K
óp
av
og
i. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.