Fréttablaðið - 26.01.2007, Side 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er áfall. En þeir eru ekkert
heilagir þessir læknar þótt margir
haldi það. Ég held því fram að þetta
sé klemmd taug. Of miklar æfing-
ar,“ segir Bubbi Morthens, sem í
gær var staddur á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi þar sem hann
gekkst undir ómskoðun. Úrskurður
lækna var sá að Bubbi þjáðist af
brjósklosi í hálsi. Fella þurfti niður
fyrirhugaða tónleika í Sjallanum á
Akureyri í gærkvöldi og ljóst að
Bubbi telur það hið mesta skaðræði
í þeim bransa sem hann starfar í –
tónleikahaldi. „Alveg ferlegt.“ En
hann er hins vegar algerlega óspila-
fær og lítið við því að segja. Hægri
hönd nánast lömuð og hann dofinn
og aumur í hálsi.
Ástæður þess að blása þurfti af
tónleikana eru ekki þær að Bubbi
sé fallinn – ef einhver kynni að
draga þá ályktun við þær fregnir
að enginn var Bubbi að spila á
Akureyri eins og til stóð. Bubbi er
ekki fallinn en eftir tæpan mánuð
verður einmitt tekið fyrir í Hæsta-
rétti mál hans á hendur tímaritinu
sáluga, Hér og nú, sem dæmt var í
héraði til að greiða Bubba bætur
fyrir að hafa á forsíðu fyrirsögnina
„Bubbi fallinn“. Voru að vísa til
reykingabindindis en dómarinn
féllst á það með gallhörðum lög-
manni Bubba, Sigríði Rut, að þetta
mætti aðeins skilja á einn veg.
Bubbi með brjósklos í hálsi
„Ég festi höndina eitthvað undir
mér í átakssenu milli mín og Ell-
erts. Og það með þessum afleið-
ingum,“ segir leikarinn Gunnar
Hansson, sem rifbeinsbrotnaði á
sýningunni Degi vonar síðastliðið
sunnudagskvöld. „Ég átti þetta
sennilega skilið. Enda búinn að
gera mikið grín að samstarfs-
félaga mínum Halldóri Gylfasyni
eftir að hann sleit hásin í fótbolta-
leik milli Þjóðleikhússins og
Borgarleikhússins,“ bætir leikar-
inn við og reynir af veikum mætti
að líkja líkamsástandi sínu við
hnefaleikakappa. En það fellur um
sjálft sig. „Ég væri alltaf grátandi
í hringnum,“ segir hann og hlær.
Gunnar segir að sýningin hafi
nánast gengið frá honum líkam-
lega því áður en æfingar hófust
þurfti leikarinn að fara í aðgerð á
fæti. „Ég hafði talið sjálfum mér
trú um að þetta væri eitthvað smá-
vægilegt. En var síðan draghaltur
á fyrri hluta æfingaferilsins,“
segir Gunnar en þar með er ekki
öll sagan sögð. „Í einu slagsmála-
atriðinu festi ég putta í skyrtu Ell-
erts og tognaði það illa að hann
þrefaldaðist,“ útskýrir Gunnar
auk þess sem þumalputtarnir eru
báðir nokkuð bólgnir eftir átökin á
sviðinu. „Ég og Ellert tökumst sér-
staklega mikið á í tveimur atrið-
um. Og höfðum ákveðið að hafa
þetta ekki of óekta heldur láta
hvor annan finna fyrir því,“ segir
leikarinn og þetta eru fórnirnar
sem hann þarf að færa.
Gunnar ætlar að harka af sér og
mun bryðja verkjatöflur fyrir
átökin. „Ég er helvíti aumur. Lækn-
irinn ýtti létt á veika blettinn og ég
vældi eins og kelling,“ segir Gunn-
ar. „Reyndar er það nú þannig að
þegar ég er aumur þá er ég alveg
agalega aumur,“ bætir leikarinn
við. Og segist vera farinn að finna
fyrir því hjá samstarfsfólki sínu
að það haldi að hann sé algjör
kveif. „Enda hef ég alltaf verið að
væla og nú sést þetta ekki einu
sinni á mér,“ segir hann og hlær.
Og áhorfendur Borgarleikhúss-
ins mega búast við miklum átök-
um á sviðinu því Gunnar sendir
mótleikara sínum Ellerti tóninn.
Vonar að hann sé stoltur af sjálf-
um sér og afrekum sínum. „Hann
er fauti og fantur. Og ég mun borga
fyrir mig,“ segir hann.
… fær Páll Óskar Hjálmtýsson
sem undirbýr fyrstu sólóplötu
sína í átta ár, samhliða því að
dæma söngfuglana í X-Factor
og sinna Eurovision-þörfum
landsmanna.
„Þetta kom upp á versta tíma.
Það var búið að bóka heljar-
innar fjölmiðla- og kynningar-
fund fyrir Garðar í síðustu
viku. Við vorum búnir að
leigja flottasta klúbbinn í
London og 32 manna sinfóníu-
hljómsveit til að spila undir í
fimm lögum en þessu
hefur því miður verið
frestað,“ segir
Einar Bárðar-
son, umboðs-
maður Garðars Cortes. Stór-
tenórinn hefur nú legið
veikur í tvær vikur og var
nýlega greindur með
bráðabarkabólgu. „Hann
er að komast á ról núna
og við reiknum með að
halda þessa kynningu í
næsta viku,“ segir
Einar.
Allt átti að
leggja í sölurn-
ar á þessari
kynningu og
segir Einar
að þeir
ætli að
halda
sínu
striki.
„Garðar átti að koma fram
með Catherine Jenkins í
kvöld en við ákváðum
að draga hann út úr
þeirri dagskrá og
hvíla hann,“ útskýrir
Einar. Bretarnir fengu
engan meðaljón til að
fylla skarð íslensku
vonarstjörnunnar
heldur fengu ein-
hvern vinsæl-
asta ungtenór
landsins, Mark
Spence, til að
fylla upp í tómið
sem Garðar skil-
ur eftir sig.
Einar vildi
ekkert tjá sig
um samningaviðræðurn-
ar við Universal-útgáfu-
fyrirtækið sem hefur
mikinn hug á að fá
Garðar til liðs við sig.
„Þetta er í réttum far-
vegi,“ sagði umboðs-
maðurinn.
Garðar úr leik eftir bráðabarkabólgu
Gnoðavogi 44, s. 588 8686.
Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR - SÚRT RENGI
HARÐFISKUR