Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 24

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 24
24 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Útgjöldin > Verðþróun á kílói af tekexi frá árinu 2000 til 2007 „Ég gerði mín verstu kaup þegar ég álpaðist til að kaupa mér farsíma,“ segir Árni Sig- fússon, bæjarstjóri Reykjanes- bæjar, þegar hann er inntur eftir sínum verstu og bestu kaupum. „Þetta er ferlegt tæki og er stöðugt að. Verst er þó þegar það fer að titra en það hefur gerst á hinum óheppilegustu stundum. Þessi titringur er sérlega óheppilegur þegar maður geymir þetta leiðindatæki nálægt viðkvæmum stað. Þá getur þetta komið af stað miklum misskilningi en ég vil nú ekki fara nánar út í þá sálma. Bestu kaupin gerði ég hins vegar árið 1973 þegar ég keypti Skoda Oct- avia árgerð 1963 sem var tékkneskur eðalvagn. Hann var dökkbrúnn og glæsilegur en hann hafði líka persónu- leika og ég á margar minningar tengdar honum. Ég fór til dæmis með hann til Vestmannaeyja og til baka aftur. Svo kom að því að hann gaf upp öndina eftir dygga þjónustu og þá kvaddi ég hann og jarðsetti líkt og um gamlan vin væri að ræða. Það kom aldrei í mál að sjá á eftir honum til annars eiganda.“ Jafnvel nýjungagjarnasta fólk gæti seint hugsað sér að skipta út jólahefðum. Málið getur þó vandast þeg- ar fólk flytur til fjarlægra landa þar sem gæði hins ís- lenska hangikjöts og malts og appelsínblöndunnar hafa ekki verið uppgötvuð. Nokkur fyrirtæki reyna þó að færa landanum íslenskt lostæti hvar sem þeir eru í veröldinni. Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstr- arstjóri Nóatúns, segir að fyrir- tækið hafi um árabil reynt að koma til móts við kröfur Íslendinga eða vandamanna þeirra erlendis þegar kemur að matarsendingum. Mis- munandi sé hvaða matvörur sé hægt að senda eftir því hvaða land sé um að ræða hverju sinni en starfsmenn reyni ávallt að leið- beina viðskipta- vinum sínum í þeim málum. Þá sjái fyrirtækið einnig um að fylla út heilbrigðis- vottorð sem verði að fylgja nær öllum matarsend- ingum. „Þau lönd sem við sendum mest til eru Nor- egur, Danmörk og Bandaríkin,“ segir Bjarni. Hann segir helsta annatímann vera í kringum 10. til 15. desember en flestum þyki ljóst að sendingar í ár verði fleiri en tíðkast hefur, þá sérstaklega til Bandaríkjanna. Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaupa, segir starfsmenn fyrirtækisins ávallt reyna að koma til móts við óskir viðskiptavina sinna þótt fyrirtæk- ið sérhæfi sig ekki sérstaklega í jólasendingum. „Hins vegar er lítið mál fyrir fólk að panta það sem það þarf í gegnum netversl- unina hvar sem það er statt í ver- öldinni,“ segir Gunnar Ingi. „Það vilja fáir vera án grænu baunanna og annarrar vöru sem manni þykir óneitanlega tilheyra jólunum,“ segir Sófus Gústavsson, framkvæmdastjóri Nammi.is, en það er vefverslun sem sérhæfir sig í að senda góðgæti um veröldina víða. karen@frettabladid.is Íslenskt góðgæti sent í pökkum um allan heim ÞJÓÐLEGT GÓÐGÆTI Það getur verið erfitt að komast í rétta jólaskapið ef gömlu jólahefðirnar og jólamaturinn eru víðs fjarri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NEYTANDINN: ÁRNI SIGFÚSSON, BÆJARSTJÓRI REYKJANESBÆJAR Farsíminn titrar á versta tíma Bílum sem ganga fyrir öðrum orkugjafa en jarðefna- eldsneyti hefur nú verið bætt við í reiknivélar á vef Orkuseturs. Til viðbótar við venjulegar bensín- og olíubifreiðar er hægt að velja metan- og rafknúna bíla. Á vefnum orkusetur.is er hægt að bera saman útblástur og eyðslu mismunandi bifreiðategunda að gefnum upplýsingum um eldsneytisverð og árlegan akstur. Með viðbót metan- og rafmagnsbifreiða er nú hægt að sjá hvort og hversu hagkvæmt það er að kaupa sér slíkan bíl. „Ég held að það sé kominn sá tímapunktur að einokun olíu er liðin í samgöngum. Nú eru komnir valmöguleikar eins og metan, sem eru ekki bara mun hagkvæmari í rekstri heldur kosta jafn mikið í kaupum,“ segir Sigurður Friðleifsson, framkvæmda- stjóri Orkuseturs. Hann segir tæplega fimmtán metanbílum hafa verið bætt við í reiknivélina, og þremur rafmagnsbílum. Alls sé yfir eitt þúsund gerðir bifreiða að finna í reiknivél- inni á vefnum. - sþs Metan- og rafmagnsbílum bætt við í reiknivél á vef Orkuseturs: Reikna með öðru eldsneyti EYÐSLA OG ÚTBLÁSTUR Miðað við 20.000 kílómetra akstur á ári, 134 krónur fyrir bensínlítrann og 88 krónur fyrir rúmmetrann af metani. Volkswagen Touran Ecofuel (metan) Eyðsla: 1.720 lítrar Eldsneytiskostnaður: 151.360 kr. Útblástur CO2: 3 tonn Bifreiðargjald: 24.035 kr. Volkswagen Touran (bensín) Eyðsla: 1.620 lítrar Eldsneytiskostnaður: 217.080 kr. Útblástur CO2: 3,9 tonn Bifreiðargjald: 24.772 kr. Heimild: Reiknivél Orkustofnunar ■ Eva Ásrún Albertsdóttir mælir með að blóm séu vökvuð með kartöflusoði. Eva Ásrún Alberts- dóttir, annar umsjón- armaður sjón- varpsþáttarins Allt í drasli, segir gott og praktískt húsráð að vökva blómin með kartöflusoði. Nær- ingarefnin í soðinu séu mun meiri en í venjulegu vatni. „Svo er líka til afskaplega einföld leið til að hreinsa örbylgjuofna, en þá sneiðirðu niður sítrónu og setur í vatn. Svo seturðu skálina inn í ofninn og lætur sjóða, og þannig hreinsast ofninn að innan.“ Hún segir alla eiga örbylgjuofn og margir þeirra séu mjög skítugir. Þetta hreinsi hann vel. GÓÐ HÚSRÁÐ KARTÖFLUSOÐ Á BLÓMIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.