Fréttablaðið - 19.04.2008, Page 36
[ ]
Húsbílar eru afar skemmti-
legur ferðakostur sem verður
stöðugt vinsælli hér á landi.
Ekki þarf að hafa mikið fyrir
því að bregða sér í ferðalag og
nánast nóg að keyra bara af
stað, enda húsbílar búnir öllu
sem þarf í gott ferðalag.
Margeir Pétur Jóhannsson er
stoltur húsbílaeigandi. Fyrir
rúmum tveimur árum fjárfesti
hann í Fiat-húsbíl sem hefur
reynst honum mjög vel.
„Ég skellti mér á þennan húsbíl
í þeim tilgangi að eiga fleiri sam-
verustundir með fjölskyldunni.
Ég keypti húsbílinn hjá Víkur-
verk og hann hefur staðið vel
undir væntingum. Bíllinn er af
gerðinni Fiat og er ítölsk gæði
fram í fingurgóma,“ útskýrir
Margeir og bætir við: „Kostirnir
eru þeir að þegar maður vill fara
eitthvert keyrir maður bara af
stað. Það er allt til alls í bílnum
og maður þarf aðeins að stoppa
til þess að taka bensín og kaupa
mat. Svo þegar farið er heim eru
bara allir kallaðir inn í bíl og svo
brunað í bæinn. Þannig er maður
alveg laus við óþarfa umstang
sem fylgir hefðbundnum útileg-
um.“
Í húsbílnum er svefnpláss fyrir
sex manns. Í bílnum er að finna
ísskáp og gaseldavél, vask, eld-
húsborð og fataskáp. Í honum er
líka sturta ásamt salerni og nægt
geymslupláss.
Margeir segir að mjög þægi-
legt sé að aka húsbílnum. Það
hafi verið skrítið í fyrstu, enda
bíllinn kassalaga og tekur á sig
mikinn vind. „Húsbíllinn er bein-
skiptur og vel er búið um öku-
manninn. Ég hef ferðast mikið á
honum. Við fjölskyldan fórum
nánast um hverja helgi síðasta
sumar og út um allt land. Í raun-
inni er hægt að fara á alla staði
sem maður vill fara á svo lengi
sem veður og færð leyfa og við-
haldskostnaðurinn er afar lítill.“
Margeir hvetur alla þá sem
hafa gaman af að ferðast um
landið að skella sér á húsbíl og
segir að það sé frábær ferðamáti
og nægt pláss sé fyrir alla sem
eru með í för. Á húsbílum er hægt
að elta góða veðrið og flýja það
slæma án mikillar fyrirhafnar.
mikael@frettabladid.is
Getur farið hvert á land
sem er, hvenær sem er
Svefnplássið er þægilegt og alls eru rúm
fyrir sex manns.
Vel er búið að bílstjóranum.
Margeir er ánægður með húsbílinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í húsbílnum er allt til alls eins og sjá má.
Vekjaraklukkuna má ekki gleyma að stilla þegar vakna
þarf snemma til að fara í flug. Notið háværa klukku og látið
hana standa minnst þremur skrefum frá rúminu.