Fréttablaðið - 26.04.2008, Síða 8

Fréttablaðið - 26.04.2008, Síða 8
8 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR SAMFÉLAGSMÁL Um 1.200 manns búa í dag á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli og um 300 til viðbótar hyggjast hefja þar störf á næstu mánuðum. Alls munu því um 1.500 manns starfa og búa á svæði Þróunarfélags Keflavíkur- flugvallar innan skamms tíma. Þar eru starfrækt hátt á fjórða tug fyr- irtækja. Aðalfundur þróunarfélagsins var haldinn í gær en félagið starf- ar eftir þeirri stefnu að umbreyta varnarsvæðinu í vísindasamfélag. Stjórn félagsins telur að umbreyt- ingarferlið hafi gengið vonum framar. Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er að að byggja upp háskólastarfsemi á svæðinu, Base vinnur að uppbygg- ingu Tæknivalla þar sem fjöl- breytt starfsemi hefur skotið rótum og fyrirtækið Verne vinnur að verkefni um að hýsa tölvubún- að, netþjóna og gagnageymslur fyrir alþjóðlega stórnotendur. Efnahagleg áhrif þeirra verkefna sem eru hafin hlaupa á tugum milljarða, að mati stjórnar félags- ins. Mörg önnur verkefni eru á teikniborðinu svo sem heilsutengd uppbygging. Hagnaður þróunarfélagsins nam 131 milljón króna árið 2007. Heild- areignir félagsins voru bókfærðar á 314 milljónir króna. Skuldir félagsins námu 252 milljónum króna. Eigið fé félagsins nam 62 milljónum króna í árslok. - shá Um 1.200 manns starfa og búa á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli: Fjörutíu fyrirtæki nú starfandi FRÁ VARNARSVÆÐINU Fjöldi starfa tap- aðist þegar varnarliðið hvarf á brott en uppbygging á svæðinu gengur vonum framar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR TÆKNI Hinn gangandi risi bar sigur út býtum í alþjóðlegri samkeppni um hönnun háspennulínumastra sem Landsnet stóð fyrir. Það var austurríski arkitektinn Sebastian Krehn sem átti vinningstillöguna. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir að tillögurnar verði þróaðar áfram í samvinnu við höfunda. „Uppsetning fer svo eftir þeim verkefnum sem liggja fyrir, en við sjáum þetta fyrir okkur í tengslum við verkefni eins og Helguvík og einnig ef af fram- kvæmdum í Þorlákshöfn og Húsa- vík verður. Alls bárust 98 gildar tillögur í keppnina. Verðlaun fyrir fyrsta sætið voru 15 þúsund evrur. Í umsögn um vinningstillöguna segir að burðarvirki hennar sé fallegt og lifandi og sótt í mannslíkamann. Önnur verðlaun, tíu þúsund evrur, hlaut Young-ho Shin frá Suður Kóreu. „Við sjáum fyrir okkur að kannski yrðu sett niður eitt eða tvö möstur af þeirri gerð, sem skúlptúr,“ segir Þórður. Þórður telur að samkeppnin muni ekki hafa áhrif á kröfur um að strengir fari í jörðu. - kóp Alþjóðleg hönnunarkeppni um háspennumöstur: Gangandi risi vann HINN GANGANDI RISI Vinningstillagan, ásamt fleirum, er til sýnis í húsnæði Landsnets að Gylfaflöt 9. ÚKRAÍNA Leikfangaframleiðandi í Úkraínu býr sig nú undir að setja á markað dúkku í líki Adolfs Hitler. Samkvæmt frétt á Ananova verður dúkkan fyrst í stað fáanleg í Kiev, höfuðborg Úkraínu, og verður um 40 sentímetrar að hæð. Hægt verður að hreyfa handleggi Adolfs upp og niður og dúkkunni fylgja búningar frá hinum ýmsu skeiðum í lífi einræðisherrans. Einnig verða fáanlegir ýmsir fylgihlutir, til dæmis smáútgáfa af Blondi, hundi Hitlers. Öll jákvæð umfjöllun um nasisma er bönnuð samkvæmt lögum í Úkraínu. - kg Nýtt leikfang í Úkraínu: Dúkka í líki Adolfs Hitler NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR 40-70% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ALLT Á AÐ KLÁRAST GILDIR Í VERSLUNUM OKKAR Í KRINGLUNNI OG SMÁRALIND SIMBABVE, AP Lögreglan í Simbabve réðst í gær alvopnuð inn á skrif- stofur stjórnarandstæðinga og óháðra kosningaeftirlitssamtaka í höfuðborginni Harare. Á báðum stöðum varð fólk fyrir barsmíðum lögreglunnar og hundruð manna voru handtekin. Lögreglan lagði hald á gögn um talningu atkvæða á báðum skrif- stofunum. Um 200 manns voru handtekin á skrifstofu Morgan Tsvangirais, helsta leiðtoga stjórn- arandstöðunnar. Formaður og varaformaður kosningaeftirlitssamtakanna ZEZN voru báðir fjarverandi þegar ráðist var inn á skrifstofur þeirra. Formaðurinn, Noel Kutuwa, segir að þeir séu í felum og sakar lögregluna um að grafa undan samtökunum svo þau verði ófær um að hafa eftirlit með seinni umferð forsetakosninga, sem stjórnin vill að verði haldnar en stjórnarandstaðan er andvíg. Daginn áður en árásirnar voru gerðar höfðu bandarískir embætt- ismenn fullyrt að Tsvangirai hafi sigrað í forsetakosningunum 29. mars síðastliðinn. Landsmenn bíða enn eftir að úrslit kosninganna verði gerð opinber. Tsvangirai hefur ítrekað fullyrt að hann hafi sigrað, en Robert Mugabe forseti hefur ekki viljað staðfesta ósigur. Fyrir aðeins fáeinum dögum kom ZANU-PF, flokkur Mugabes forseta, með tilboð um að stjórn- arandstaðan og Mugabe myndu skipta með sér völdum, þannig að Mugabe yrði leiðtogi þjóðstjórnar. Stjórnarandstaðan hafnar hins vegar öllum slíkum tillögum og segir að Tsvangirai sé ótvíræður sigurvegari kosninganna. Sjálfur hefur Mugabe ekkert gefið í skyn um að hann muni sætta sig við slíkt, en í Simbabve og víðar í Afríku hafa síðustu daga heyrst raddir um að hann eigi sem gömul frelsishetja skilið að geta látið af embætti með einhverri reisn, þrátt fyrir harðstjórn og mannréttindabrot sem hann er sakaður um að hafa framið síðustu árin. Jafnvel úr röðum flokksmanna Mugabes hafa heyrst slíkar hug- myndir. Margir óttast að eina leið- in til að tryggja framtíð lands- manna í Simbabve sé að tryggja Mugabe örugga framtíð. „Maðurinn vekur upp kenndir sem stangast á,“ sagði Tsvangirai nýlega í viðtali. „Umbreytingin sem hefur orðið á honum, frá hetju yfir í skúrk, á sér engin fordæmi.“ gudsteinn@frettabladid.is Árás á stjórn- arandstöðu Lögreglan í Simbabve réðist í gær á skrifstofur stjórnarandstæðinga. Hundruð manna handteknir og gögn gerð upptæk. Óvissa um framtíð Mugabes. STJÓRNARANDSTÆÐINGUM SMALAÐ Í BÍL Lögreglan handtók hundruð manna og hirti gögn um talningu atkvæða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RÚSSLAND, AP Rússneska þingið hefur samþykkt nýjar hömlur á fréttamiðla. Stjórnvöldum verður nú heimilað að stöðva starfsemi fjölmiðla sem birta ærumeiðingar og rógburð. Nýju lögin eru bein viðbrögð við frétt, sem rúss- neska dagblaðið Moskowsky Korrespondent birti nýverið um Vladimír Pútín forseta. Þar var því haldið fram að Pútín væri skilinn við eigin- konu sína og hafi í hyggju að kvænast 24 ára gamalli fimleika- stjörnu, Alinu Kabajevu. Bæði Pútín forseti og Kaba- jeva, sem nú er þingkona, hafa harðneitað þessum fréttum. - gb Rússneska þingið: Frekari hömlur á fjölmiðlana PÚTÍN FORSETI 1. Hvað heitir maðurinn sem sló lögreglumann á Kirkju- sandi? 2. Hvaða íslenskur söngvari verður myndaður fyrir tímaritið Vogue? 3. Hvort telja fleiri eða færri í skoðanakönnun Fréttablaðsins að hagur þeirra vænkist næsta árið? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54 VESTMANNAEYJAR Mildi þykir að enginn hafi slasast þegar löndun- arkrani gaf sig í Vestmannaeyjum í gær. Unnið var að löndun úr skipinu Kap VE-4 þegar bóma kranans fór í sundur og féll á skipið. Lúga á skipinu skemmdist. Sigurður Friðbjörnsson, verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni, sagði það vinnureglu að menn færðu sig frá þegar híft er svo enginn hafi verið nálægt þegar kraninn gaf sig. - ovd Mildi að enginn skyldi slasast í Vestmannaeyjum: Löndunarkrani gaf sig KRANINN BROTINN VIÐ KAP VE-4 Löndunarkraninn, um átta ára gamall, fór í sundur við löndun úr Kap VE-4. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON VEISTU SVARIÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.