Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2008, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 26.04.2008, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 26. apríl 2008 11 HEILBRIGÐISMÁL Vinnustaðakeppn- in Hjólað í vinnuna fer fram 7. til 23. maí næstkomandi, en þetta er í sjötta sinn sem Íþrótta- og Ólymp- íusamband Íslands (ÍSÍ) stendur fyrir keppninni. Hafa landsmenn tekið þessu hvatningar- og átaksverkefni afar vel og hefur þátttakendum fjölgað um 1.275 prósent frá því keppnin var fyrst haldin árið 2003. Þá voru keppendur 533 talsins en 7.333 í fyrra. Hefur keppnisliðum fjölgað úr 71 í 913, eða um 1.186 prósent. Árið 2007 hjóluðu þátttakendur 417.106 kílómetra, sem jafngildir 311 hringjum í kringum landið og hálfum hring betur, eða vel á ell- efta hring í kringum jörðina. Með framtaki sínu má áætla að þátttak- endur hafi sparað tæplega 46 þús- und lítra af bensíni, rúmlega átta- tíu tonn af koltvísýringsútblæstri og brennt tólf milljón hitaeining- um. Samstarfssamningur vegna átaksins Hjólað í vinnuna 2008 var í gær undirritaður af Ólafi Rafns- syni, forseta ÍSÍ og Rannveigu Rist, forstjóra Alcan á Íslandi, en Alcan er aðalstyrktaraðili keppn- innar í ár. Aðrir samstarfsaðilar ÍSÍ eru Lýðheilsustöð, Umhverfis- svið Reykjavíkurborgar, Umferð- arstofa, Rás 2, Eskill, Örninn, Fjöl- skyldu- og húsdýragarðurinn og Landssamtök hjólreiðamanna. Á síðunni www.isi.is má fylgjast með keppninni. - ovd Hvatningar- og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands vel tekið: Hafa sparað 46 þúsund lítra af bensíni FRÁ UNDIRRITUNINNI Í GÆR Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, ásamt aðstandendum keppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Ökumaður og farþegi fólksbifreiðar hlupu af vettvangi eftir árekstur bifreið- arinnar og sendibifreiðar á Kirkjubraut á Akranesi um klukkan átta á fimmtudagskvöld- ið. Við áreksturinn kastaðist sendibifreiðin á ljósastaur og skemmdist nokkuð. Ökumaður hennar kenndi til eymsla í fæti og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til skoðunar. Ökumaður fólksbifreiðarinnar gaf sig fram við lögreglu í gærmorgun þar sem tekin var skýrsla af manninum og honum sleppt að því loknu. - ovd Árekstur á Akranesi: Stungu af frá árekstri VEIÐI Veiðifélag Laxár og Krákár í Þingeyjarsýslu auglýsti nýlega eftir tilboðum í silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2009 til 2013 að báðum árum meðtöldum. Eru þetta nokkur tíðindi meðal veiðimanna en fram til þessa hafa bændur sjálfir haldið utan um sölu veiðileyfa og umsjón með ánum. Nær útboðið til alls veiðisvæðisins, beggja stóru urriðasvæðanna ofan virkjunar í Mývatnssveit og Laxárdal. Þá nær útboðið einnig til umsjónar með veiðihúsunum að Hofi og Rauðhólum. Tilboðsfrestur rennur út föstudaginn 2. maí. - ovd Þingeyjarsýsla: Tilboða óskað í silungsveiðina URRIÐI Veiðileyfi hafa oft hækkað í verði eftir að veiði í ám hefur verið boðin út. MYND/EINAR SÆMUNDSSEN Hraðakstur í Ölfusinu Lögreglan á Selfossi stöðvaði átján ára ökumann bifreiðar eftir að bíll hans mældist á 136 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi milli Selfoss og Hveragerðis á fimmtudagskvöld- ið. Var ökumaðurinn aðeins með tveggja mánaða gamalt ökuskírteini til reynslu sem hann missir, auk þess sem hann þarf að fara aftur í ökunám og taka bílpróf á ný. Þá þarf hann að greiða háa sekt. LÖGREGLUFRÉTTIR Finnarnir koma heim Flogið var heim til Finnlands í gær með fyrstu þrjú líkin úr rútuslysinu sem varð á Spáni fyrr í mánuðinum, þar sem níu Finnar létu lífið og nítján slösuðust.. FINNLAND BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórnvöld hafa í hyggju að veita ólöglegum innflytjendum sem misstu ættingja í árásunum 11. september 2001 tímabundið dvalarleyfi. Alls er um 25 manns að ræða sem misstu maka eða foreldra í árásunum. Fólkið hefur hlotið bætur frá hinu opinbera, að meðaltali nærri 150 milljónir króna, en hefur átt erfitt með að ráðstafa fénu vegna óvissu um lagalega stöðu sína. Lögfræðingar fólksins hafa jafnvel hikað við að veita hinu opinbera upplýsingar um það af ótta við brottvísun úr landi. - gb Ættingjar ólöglegra innflytjenda: Fá tímabundin dvalarleyfi Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Fagnaðu sumrinu með Siemens A T A R N A í dag frá 10 til 16 Sölusýning Raftæki frá Siemens í miklu úrvali R N R N R N R NN R N RRRRRRRRRRR AAAAAAAA T AA TTTT A T A T A T A TTT AAAAAAAAA AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA Í dag, laugardag, efnum við til sölu- sýningar í verslun okkar að Nóatúni 4. Þar gefst tækifæri til að skoða allt hið nýjasta sem við bjóðum, m.a. þráðlausa síma, eldunartæki, kæli- og frystitæki, uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkara, ryksugur, smátæki, ýmsar gerðir lampa, rofa- og tenglaefni og dyrasímabúnað frá Siedle. Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Ríflegur staðgreiðsluafsláttur. Skoðið öll Tækifæristilboðin á www.sminor.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.