Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2008, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 26.04.2008, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 26. apríl 2008 13 „Við erum bara að vinna að okkar málum,“ segir Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis. Samkvæmt heimildum Markað- arins hefur félagið boðið fjárfest- um einstakar eignir sínar til sölu. Stefán hvorki játar því né neitar, en segir að félagið sendi frá sér til- kynningu um stöðu mála. Stefán vill ekki segja hvenær tilkynningin er væntanleg. Rætt hefur verið um veika stöðu Nýsis, en í upphafi mánaðarins kom fram í tilkynningu til Kauphallar- innar að samið hefði verið við Landsbankann um aðstoð við sölu eigna, fjárhagslega endurskipu- lagningu og öflun nýs hlutafjár. Stefán Þórarinsson sagði hins vegar í viðtali við Markaðinn fyrir skömmu að eigið fé félagsins væri ekki uppurið. Unnið væri við að fjármagna hluta skulda en verkefn- ið væri hluti af reglulegum rekstri árið um kring. Allar vangaveltur um erfiða stöðu séu úr lausu lofti gripnar. Umsvif Nýsis eru mikil. Félagið vinnur meðal annars við ráðstefnu- og tónlistarhús í Reykjavík í sam- starfi við opinbera aðila. Portus stendur að smíðinni, en Nýsir á helmingshlut í félaginu á móti Landsbankanum. Þá rekur Nýsir meðal annars húsnæði Háskólans á Bifröst auk þess að vera með mörg fleiri járn í eldinum, innanlands sem utan. - ikh Nýsir boðar tilkynningu Í neikvæðum lánshæfismatshorf- um Íbúðalánasjóðs endurspeglast neikvæðar horfur ríkissjóðs, segir í nýrri umsögn alþjóðlega mats- fyrirtækisins Standard & Poor‘s (S&P). Fyrirtækið sendi í gær frá sér umsögn um stöðu Íbúðalána- sjóðs í kjölfar þess að lánshæfi hans var lækkað 17. apríl. „Við búumst einnig við að kólnandi húsnæðismarkaður á Íslandi geti sett þrýsting á gæði eigna Íbúðalánasjóðs og hag- kvæmni reksturs sjóðsins,“ segir í umsögninni. Þar kemur jafnframt fram að S&P geri ekki ráð fyrir nokkrum þeim breytingum sem dregið gætu úr stuðningi ríkisins við Íbúðalánasjóð fyrr en birt verður lokaniðurstaða EFTA um málefni ríkisins og sjóðsins. Dragi úr stuðningi ríkisins segir S&P það munu þrýsta á um lækkun lánshæfismats á krónuútgáfu sjóðsins. - óká Kólnandi hús- næðismarkaður þrýstir á HÚS Í BYGGINGU Kólnandi fasteigna- markaður segir Standard & Poor‘s að geti rýrt gæði eigna Íbúðalánasjóðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Við núverandi krísu á fjármála- mörkuðum, þegar fjármálakerfið er í hættu, þá má líkja þessu við fjárhagslega hryðjuverkastarf- semi,“ segir Neil Barnett, dálka- höfundur Spectator, um hegðun sumra vogunarsjóða. Hann segir sögu af hluthafa í vogunarsjóði, sem hann þorir ekki að nefna af ótta við lögsókn, sem hringdi í að minnsta kosti tvo ein- staklinga sem hafa áhrif á mark- aði. Þeir fengu að heyra að íslensk- ir bankar ættu í vandræðum og að innlánareikningar Landsbankans og Kaupþings væru viðkvæmir fyrir áhlaupi. Þetta var á sama tíma og krónan var í frjálsu falli, hlutabréf í bönkunum á niðurleið og skuldatryggingarálög þeirra á uppleið. Breska fjármálaeftirlitið hafi ekki hafið rannsókn á sjóðn- um, en þekki til hans. Sjóðurinn mun ekki vera í hópi þeirra sjóða sem nefndir hafa verið í hérlendum fjölmiðlum í tengslum við gengisfall krónunn- ar. Barnett segir mörg dæmi um að sjóður eða hópur sjóða fari gegn fyrirtækjum með skortstöðu og röngum orðrómi. Skylda ætti sjóðina til að upp- lýsa um skortstöður sínar, til að koma í veg fyrir markaðsmisnotk- un. - ikh Vogunarsjóðirnir í hryðjuverkastarfsemi FORSTJÓRI NÝSIS Sigfús Jónsson hefur stýrt félaginu ásamt Stefáni Þórarinssyni. Bakkavör Group innkallaði í vik- unni tvær tegundir af hummus- ídýfum í Bretlandi, eftir að salm- onella fannst í sýni við reglu bundið innra eftirlit. Í tilkynningu fyrir- tækisins kemur fram að innköll- unin hafi verið gerð í varðúðar- skyni. „Mikil áhersla er lögð á öryggis- og gæðamál hjá félaginu og átti Bakkavör frumkvæðið að innkölluninni, en hún er umfangs- lítil. Um er að ræða einangrað tilvik sem mun ekki hafa áhrif á framleiðslu félagsins á hummus- ídýfum né öðrum vörum sem félagið framleiðir fyrir viðkom- andi viðskiptavini,“ segir þar. Fjallað var um innköllunina í breskum fjölmiðlum um helgina, meðal annars í dagblaðinu Guardian, sem sagði þúsundir pakkninga af hummus-ídýfum hafa verið fjarlægðar úr hillum verslana Tescos og Waitrose í Bretlandi. Í frétt frá 23. apríl á vef breska matvælaeftirlitsins (food.gov.uk) er að finna tæmandi lista yfir hummustegundirnar sem innkallaðar voru. - óká Bakkavör inn- kallar hummus LOSTÆTI Við innra eftirlit hjá Bakkavör í Bretlandi fannst salmonella í hummus. Vinningur í hverri viku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.