Fréttablaðið - 26.04.2008, Side 66

Fréttablaðið - 26.04.2008, Side 66
34 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR 2. SÆTIÐ - Með allt á hreinu Með allt á hreinu Það er við hæfi að Með allt á hreinu vermi annað sætið. Enda má með góðum rökum telja hana til íslenska kvikmyndavorsins sem hófst þegar fyrstu myndirnar fengu styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands. Íslendingar gátu allt í einu búist við íslenskri kvikmynd á ári hverju og grínið var aldrei langt undan; Líf-myndir Þráins Bert- elssonar, Magnús og Jón Oddur og Jón Bjarni kítluðu hláturtaugar landsmanna. Myndin er samkvæmt óform- legum mælingum vinsælasta kvikmynd Íslandssögunnar og hermt er að tæplega hundrað þúsund Íslendingar hafi borgað sig til að sjá hinn kolklikkaða húmor hljómsveitar allra lands- manna. Hefðbundnum aðferðum við kvikmyndagerð var ekki beitt við gerð Með allt á hreinu. Þannig er ekki til eiginlegt handrit að myndinni. Hljómsveitarmeð- limirnir spunnu allt á staðnum, svo var atriðið æft og það tekið upp. En óhætt er að segja að þetta hafi þrælvirkað. Myndin er full af sígildum atriðum sem þjóðin hefur hlegið að í rúman aldarfjórðung og eins og kom fram í viðtali við Eggert Þorleifsson er enn hringt í hann um miðjar nætur og lausnin á lás bláa reiðhljólsins þulin upp í gegnum símann. Tónlistin skipaði ekki síður stórt hlutverk í mynd- inni en í henni má heyra mörg af vinsælustu lögum Stuðmanna og Grýlanna. Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson Aðalhlutverk: Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon, Ragnhild- ur Gísladóttir og Anna Björns Handrit: Ágúst Guðmundsson og Stuðmenn Tónlist: Stuðmenn, Grýlurnar og Sigurður Bjóla Kvikmyndataka: David Brigdes, Ari Kristinsson og Guðmundur Kristjánsson Börnin hans Friðriks best Þær íslensku kvikmyndir sem gerðar hafa verið út telja orðið á annað hundrað. Margar þeirra hafa slegið í gegn og lifa og munu lifa með þjóðinni. Aðrar voru grafnar nær lifandi og þykja enn í dag jafn slæmar og þegar þær komu út. Í tilefni af 30 afmæli kvikmyndasjóðs leitaði Fréttablaðið til málsmetandi aðila og bað þá að tilnefna bestu og verstu kvikmyndir Íslandssögunnar. Þessar skoruðu líka hátt: Fyrir utan þessar þrjár efstu komust nokkrar aðrar einnig mjög hátt á lista. Rétt á eftir Englum alheims, sem tók annað sætið, kom kvikmynd Baltasars Kormáks, Brúðguminn og ekki langt undan henni var hin sígilda Sódóma Reykjavíkur sem virð- ist eldast jafnvel og gott vín. Eldri myndir Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur og Í skugga hrafnsins, fengu einnig mun betra dóma en Opin- berun Hannesar og voru báðar nefndar nokkrum sinnum. Jón Oddur og Jón Bjarni var eina barnamyndin sem komst á lista en halaði til sín nokkrum atkvæðum og að lokum má nefna í flokki þeirra mynda sem skoruðu hátt: Mýrina. 3. sætið - Englar alheimsins Fyrirfram var búist við því að kvikmyndin Englar alheimsins myndi fá góða aðsókn. Hún var byggð á frægri sögu Einars Más Guð- mundssonar sem velflestir Íslendingar höfðu lesið í grunnskóla. En varla hefur nokkur búist við því að yfir áttatíu þúsund Íslendingar myndu borga sig inn til að sjá Pál glíma við sína andlegu erfiðleika. Met Englanna var ekki slegið í sjö ár eða þar til Mýrin, byggð á bók Arnaldar Indriðasonar, tröllreið bíósölunum. Englar Alheimsins segir frá Páli, ungum manni á uppleið, sem verð- ur andlega veikur og er í kjölfarið komið fyrir á Kleppi. Myndin þykir lýsa með mikilli næmni lífi geðsjúklinga á Íslandi og dvöl á Kleppi og er ljúfsár, fyndin, sorgleg og dramatísk, allt í senn. Tón- list Sigur Rósar og Hilmars Arnar Hilmarssonar gæddi myndina síðan aukinni dýpt og munaði þar mestu um útsetningu þeirra á stefi Jóns Múla Árnason; Dánarfregnir og jarðarfarir, sem hljómaði undir þegar Páll var borinn til grafar og skildi eftir ófáa tárvota hvarma í bíóhúsunum. Að lokum má geta þess að leikarahópur myndarinnar þótti eiga gullna frammistöðu. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson Byggt á bók Einars Más Guðmundssonar Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Björn Jörundur Friðbjörnsson og Baltasar Kormákur Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson Kvikmyndataka: Harald Gunnar Paalgard 1. SÆTIÐ - Börn náttúrunnar Börn náttúrunnar er vel að titlinum komin sem besta íslenska kvikmyndin. Hún er eina íslenska kvik- myndin í fullri lengd sem hefur náð svo langt að hljóta náð fyrir augum Óskarsakademíunnar. Og þótt Friðrik og félagar hafi ekki farið heim með styttuna vakti tilnefningin áhuga erlendra aðila á íslenskri kvikmyndagerð. Myndin var frumsýnd árið 1991, fjórum árum eftir að Friðrik hafði gert Skytturnar. Börn Náttúrunnar segir frá Þorgeiri sem þarf að flytja á mölina til að dveljast þar á elliheimili. Honum hugnast ekki vistin meðal elliærra gamalmenna og þegar hann kemst í kynni við gamla æskuvinkonu sína, Stellu, ákveða þau að stela jeppa og keyra á æskuslóðir hennar á Hornströndum. Þrátt fyrir að Friðrik Þór hefði hlotið mikið lof fyrir leikstjórn sína þá voru það ekki síður Sigríður Hagalín og Gísli Halldórsson sem voru stjörnur myndarinnar. Leikur þeirra er án nokkurs vafa einn sá magnaðasti í sögu íslenskra kvikmynda og hreinlega vafamál hvort samspil þeirra tveggja verði nokkurn tímann toppað. Enda var Sigríður tilnefnd til evrópsku kvikmyndaverð- launanna fyrir frammistöðu sína í myndinni. Tónlist Hilmars Arnars Hilmarssonar setti svo punktinn yfir i-ið en hún hlaut Evrópsku kvikmyndaverðlaunin sem besta tónlistin. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson Handrit: Friðrik Þór og Einar Már Guðmundsson Aðalhlutverk: Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson Kvikmyndataka: Ari Kristinsson Andri Snær Magnason rithöfundur Auðunn Blöndal, dagskrárgerðar- maður Ágúst Héðinsson, forstöðumaður útvarpssviðs 365 Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona Árni Þórarinsson rithöfundur Ásgrímur Sverrisson, dagskrár- og kvikmyndagerðarmaður Bjarni Arason dagskrárstjóri Bjarni Haukur Þórsson athafnamaður Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður Guðmundur Andri Thorsson rithöf- undur Guðmundur Breiðfjörð markaðsstjóri Guðmundur Steingrímsson varaþing- maður Hrönn Marínósdóttir, framkvæmda- stjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgef- andi Ísleifur B. Þórhallsson framkvæmda- stjóri Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur Kristjana Thors Brynjólfsdóttir dag- skrárstjóri Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri Rúnar Róbertsson útvarpsmaður Sigríður Pétursdóttir dagskrárgerðar- kona Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri Stefán Karl Stefánsson leikari Sæbjörn Valdimarsson gagnrýnandi Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhús- stjóri Unnur Jökulsdóttir rithöfundur Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona Viðar Eggertssson leikstjóri Víkingur Kristjánsson leikari Þorsteinn J. Vilhjálmsson dagskrár- gerðarmaður Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðar- maður Þórarinn Eldjárn rithöfundur ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS VORU: Vond opinberun Þrátt fyrir að margar magnaðar íslenskar kvikmyndir hafi litið dagsins ljós höfðu álitsgjafarnir auðvitað álit á því hvað væri með því versta sem ratað hefði á Hvíta tjaldið. Þar bar kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, Opinberun Hannesar, höfuð og herðar yfir aðrar myndir og fékk flest atkvæði sem slæm mynd. Ekki fengu kvik- myndirnar Blossi og Nei er ekkert svar mikið færri atkvæði sem slæmar myndir og hún Stella okkar í framboði þótti mun betri þegar hún skellti sér í orlof og þótti þessi seinni mynd með þeim verri íslensku myndum sem gerðar hafa verið. Önnur slík endurkoma - Í takt við tímann - Stuðmanna- myndin seinni fékk svipaða útreið og að lokum má geta þess að kvikmynd Mikaels Torfasonar, Gemsar, skoraði hátt á Vondu- mynda listanum. Þess má geta að ekki mátti nefna kvikmyndir er tengdust viðkomandi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.