Fréttablaðið - 26.04.2008, Qupperneq 74
42 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
Sæluvika Skagfirðinga stendur
yfir nú dagana 27. apríl til 4. maí.
Í tilefni hennar efnir hin fram-
takssama Ópera Skagafjarðar til
tónleika í íþróttahúsinu í Varma-
hlíð kl. 16 á morgun. Þar verða
flutt valin lög úr óperunum Rigol-
etto og La Traviata við undirleik
15 manna kammerhljómsveitar.
Sérstakur gestasöngvari á tón-
leikunum verður engin önnur en
Sigrún Hjálmtýsdóttir sem einn-
ig er þekkt sem Diddú.
Að auki stendur Söngskóli
Alexöndru, í samvinnu við Guð-
rúnu Ásmundsdóttur leikkonu,
fyrir menningardagskrá undir
yfirskriftinni Ég lít í anda liðna
tíð. Um er að ræða metnaðarfulla
leik- og söngdagskrá um ævi og
störf tónskáldsins Sigvalda
Kaldalóns þar sem blandað er
saman frásögn og flutningi á
verkum hans. Tónlistarflutning-
urinn er í höndum söngnemenda
úr Söngskóla Alexöndru.
Sigvaldi Stefánsson Kaldalóns,
tónskáld og læknir, fæddist árið
1881 og lést 1946. Hann var hér-
aðslæknir á ýmsum stöðum en
lengst í Nauteyrarhéraði við Ísa-
fjarðardjúp. Sigvaldi samdi hátt
á annað hundrað sönglaga sem
mörg hver hafa orðið gríðarlega
vinsæl og eru enn á hvers manns
vörum. Meðal laga hans eru Á
Sprengisandi, Þú eina hjartans
yndið mitt, Hamraborgin og
Svanasöngur á heiði. Hann samdi
einnig nokkur kórlög, meðal ann-
arra Ísland ögrum skorið, og
fáein lög fyrir hljóðfæri.
Sýningar helgaðar Sigvalda
Kaldalóns verða þrjár til fjórar,
en fjöldi þeirra fer eftir eftir-
spurn, og fara fram dagana 28.
apríl til 1. maí í Villa Nova, einu
elsta og virðulegasta húsi Sauð-
árkróks. Skagfirðingum og
öðrum Norðlendingum gefst
með þessari dagskrá tækifæri
til að fræðast um ævi og störf
Sigvalda Kaldalóns í flutningi
einnar dáðustu leikkonu lands-
ins og nemenda úr Söngskóla
Alexöndru.
- vþ
Óperuperlur á Sæluviku
ÓPERA SKAGAFJARÐAR Kemur fram á tónleikum í íþróttahúsinu í Varmahlíð á morgun.
Það er ekki á hverjum degi sem
færi gefst á því að virða fyrir sér
listsköpun þriggja náskyldra
listamanna. Slík tækifæri bjóðast
þó frá og með deginum í dag,
bæði í Ráðhúsi Reykjavíkur, sam-
anber Ekki missa af... , og í Hafn-
arborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, en kl. 15 verða
þar opnaðar sýningar þriggja
listamanna sem tilheyra einni og
sömu fjölskyldunni.
Í aðalsal safnsins verður opnuð
yfirlitssýning á verkum Einars
Más Guðvarðarsonar mynd-
höggvara sem lést 2003; í Sverr-
issal sýnir systir Einars, leirlista-
konan Jóna Guðvarðardóttir, en í
Apóteki verður sýning dóttur
hennar, Hildar Ýrar Jónsdóttur,
sem hefur nýlega lokið listnámi í
Hollandi og sýnir skúlptúr og
skartgripi. Þetta er 16. sérsýn-
ingin á verkum Einars og 17.
einkasýning Jónu en Hildur
opnar nú sína fyrstu einkasýn-
ingu. Jafnframt verður gefin út
bók um höggmyndalist Einars
með textum eftir Jón Proppé og
Halldór Ásgeirsson.
Hafnarborg er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til kl.
17. Aðgangur að safninu er ókeyp-
is. - vþ
Fjölskylda sýnir saman
HAFNARBORG Hýsir áhugaverðar sýningar skyldra listamanna.
Auglýsingasími
– Mest lesið