Fréttablaðið - 28.08.2008, Page 33

Fréttablaðið - 28.08.2008, Page 33
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París NÝTT Fáðu fæturna mjúka og fína á 2 vikum með Flextiol Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum, Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur. Þráinn skóari – skóbúð Grettisgötu 3 Útsalan í fullum gangi Enn meiri verðlækkun Á hinni árlegu „Teen Choice Awards“-hátíð, þar sem ungstirni samtímans taka við verðlaunum fyrir leik- og söngsigra, var mikið um dýrðir, en hátíðin fór fram í byrjun mánaðarins. Tískustraumarnir komu þar bersýnilega í ljós og virtust ungu stjörnurnar sérstaklega heitar fyrir stuttum pilsum og kjólum. Margir náðu einungis niður á mið læri en gjarnan mátti þó sjá pífur og púff niður undan faldinum. Sumar stjörnurnar voru þó í ögn efnismeiri fötum og rataði leikkonan Olivia Wilde inn á lista Vogue.com yfir best klæddu konur síðustu viku en hún klæddist hvítum satínkjól. - ve Í stuttum pilsum með pífum UNGSTIRNIN VILJA PILSIN STUTT. V etrartískan hefur nú fyllt verslanir. Í tísku húsum jafnvel síðan fyrir sumarút- sölur en á eftir útsölum í smærri verslunum. Kaupmenn reyna þó enn að selja það sem eftir er af sumartískunni, með góðum afslætti, meðan veður leyfir þar sem síðasta árstíð og útsölurnar stóðu ekki undir væntingum. Veturinn sem í hönd fer verður verslunareigendum og tísku- heiminum öllum erfiður vegna versnandi efnahagsástands og hætt við að lítið verði eftir í buddunni fyrir tísku vörum og öðrum óþarfa þegar búið er að kaupa skólavörur og klæða börnin fyrir veturinn. Reyndar má þegar sjá tilboð í búðunum sem er óþekkt á þessum árstíma. Þessu er þó ekki eins farið í fínni tískuhúsum sem gera út á erlenda viðskiptavini sem sumir eru enn loðnir um lófana en ólíklegt er að það dugi til að bæta upp peningaleysi Evrópu- búa og Bandaríkjamanna sem halda að sér höndum. Ekki hvetur gengi dollarans þá til að eyða fúlgum í frönskum tískuhúsum. Oft er eins og tískan sé eilíf endurtekning, á sumrin er hún hvít, á veturna svört. Síðustu árin hafa þó orðið breytingar á þessu. Síðustu tvo vetur hefur hvítt verið áberandi í vetrar- tískunni. Fyrir komandi vetur er tískan ansi dökk en sterkum litum er blandað saman við. Til dæmis fyrir herrana, næturblátt eða -grænt, brúnt sem hér er kallað „marron glacé“, kaldgrátt og kóralbleikt. Í ódýru búðunum er það skærgult og gulrautt. Í kventískunni er blöndun hins kven/karllega í anda Yves Saint Laurents heitins áberandi en hann hannaði smókinginn og kom þannig buxnadragtinni í kvenfataskápinn. Þetta má sjá með jökkum eða með herraleg- um vestum. Svo er það sem tískuskríbent FashionMag.fr, tískuvefjar hér í landi, Marion Perron, kallar „Norditude“ og kemur frá Norðurlöndum, meðal annars innblásið frá jarðarlitum Snæfellsness. Hausttískan er því langt frá því að vera óspennandi fyrir þá sem geta fundið nokkrar aura í veskinu til að slá út fyrir nokkrum flíkum. Svo er alltaf hægt að grafa í fataskápum og finna það sem er toppurinn í dag enda tískan rómantísk í anda sjöunda og áttunda áratugarins. Svört sól á himni TÓMATRAUÐUR verður áberandi í hausttískunni. Aðrir litir sem tískan kallar á eru haustlitir, himinbláir og jarðlitir. Nú er um að gera að finna flíkur í þessum litum. Katharine McPhee og Olivia Wilde voru flottar á hátíð- inni. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.