Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 66
46 28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR BASK LAUGAVEGUR 86-94 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 8090 NIKE SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR ADIDAS ORIGINALS AMERICAN APPAREL DR. DENIM KSUBI ACNE JEANS THOMAS BURBERRY SURFACE 2 AIR ALLAR VÖRUR 70% AF Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi og áhugaljós- myndari, fór með tónlistar- manninum KK á handfæra- veiðar á dögunum. Hann gerði sér lítið fyrir og mokaði inn aflanum og KK hafði ekki við að gera að afla útgefanda síns. „Við KK sigldum um Faxaflóa og upp á Kjalarnes. Í kvöldbirtunni. Dásemdarveður. Við tveir félag- arnir. Að róa til fiskjar,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson útgef- andi. Tónlistarmaðurinn KK á trillu sem heitir Æðruleysið. Jóhann Páll er landkrabbi en segist hafa óskaplega gaman af því að vera á sjó. Og er þetta í annað skiptið sem hann fær að fljóta með KK á Æðruleysinu. Á sjó sé snerting við almættið, sér- staklega á litlum trillum, en þegar Jóhann var strák- ur í sveit á Dalvík var hann í trilluróðrum. Og lengi býr að fyrstu gerð eins og átti eftir að koma á daginn. Í það minnsta ef marka má JPV sem kann að segja ferðasöguna þannig að hann stendur uppi sem algjör sigurveg- ari. „Sko, við renndum fyrir fisk og ég af eðlis- lægri hógværð tók með mér ryðgaða rúllu meðan KK var með nýjan eðalgrip. En meðan ég mokaði inn aflanum, helst ekki færri en þremur í einu, varð KK ekki var. En hann bætti það upp með því að reynast frá- bær í aðgerðinni og hjálpaði þar útgefanda sínum,“ segir JPV en þeir notuðu tækifærið og ræddu vænt- anlega plötu KK, Svona eru menn, sem Jóhann Páll gefur út. Að sögn útgef- andans not- uðu félagarn- ir tækifærið til að slúðra og velta einu og öðru fyrir sér. „Eitt lag á plötunni heit- ir „Á æðruleysinu“ og er tileinkað mér. Textinn varð til eftir fyrstu sjóferðina. Ég veit ekki hvort þetta var útspekúleruð aðferð hans til að sjarmera útgefanda sinn. En þetta er assgoti gott lag.“ Að sögn JPV var afli hans eink- um þorskur. Sem var eins gott. „Ég er svo viðkvæmur maður að ég á erfitt með að horfa í brostin augu ýsunnar þegar hún er dreg- in. Fæ hroðalegt samviskubit.“ KK lét krók koma á móti bragði og úrskurðaði megnið af afla útgefandans sem of lítinn við hávær mótmæli Jóhanns. „Já, ég mokaði inn en hann henti þeim mörgum fyrir borð á þeim for- sendum að þeir væru svo litlir. Ég hef grun um að sá dómur hafi byggst á sársauka hans vegna þess að það var ég sem reyndist aflaklóin.“ jakob@frettabladid.is Á skaki með KK á Æðruleysinu KK SITUR OG BEITIR Í SKUTI ÆÐRULEYSISINS Það kom í hlut tónlistarmannsins að gera að afla útgefandans sem mokaði þeim gula upp. LJÓSMYND/JÓHANN PÁLL JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON Mokaði inn aflanum á meðan KK varð ekki var. „Þetta er mitt áhugamál. Að búa til eitthvert svona grín og er það alveg óháð vinnunni,“ segir Guðmundur Bergkvist, kvik- myndatökumaður á fréttastofu Sjón- varps. Guðmundur rekur bloggsíðuna kvist- ur.blog.is þar sem hann gleður oft les- endur sína með skondnum myndum sem hann hefur unnið í photoshop- forritinu. „Tilgang- urinn er náttúrlega að fólk geti skellt upp úr og haft gaman af þessu. Kvikindisskapurinn er ekki hafður að leiðarljósi.“ Og nýverið birtist myndin Sjö kraft- miklir íhaldsmenn þar sem lagt er út af forsíðu Tinna- bókarinnar Sjö kraftmiklar krist- alkúlur. Yfirskrift- in er: Sjö kraft- miklir íhaldsmenn. Hræringarnar í borgarstjórnar- málum undanfar- inna vikna verða skemmtilegar komnar í þetta samhengi. Og svo þaulhugsað er þetta að Tobba, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, er komin í líki hunds- ins Tobba. Guð- mundur segist ekki vera neinn Tinna- sérfræðingur eins og þeir eru margir en las bækurnar í æsku. „En það þekkja allir Tinna og eiga því auðvelt með að tengja.“ - jbg Sjö kraftmiklir íhaldsmenn SJÖ KRAFTMIKLIR ÍHALDSMENN Þegar borgarstjórnarmálin eru komin í nýtt samhengi Tinnabók- anna verður myndin skýrari. GUÐMUNDUR BERGKVIST Gleður lesendur sína með skondnum photoshop-mynd- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.