Réttur - 01.07.1917, Side 47
Pjóðjarðasala og landleiga 40
gjaldið farið hækkandi að peningaverði, vegna verðhækk-
unar á meðalalin, og verð jarðarinnar því hærra, en orð-
ið hefði eftir sömu reglu fyrir 30 árum, en sú afgjalds-
hækkun mun varla nema því, sem peningar hafa fallið
í verði (þ. e.: mist kaupmagn) á sama tíma, þó ekki sé
miðað við yfirstandandi dýrtíð. í raun réttri er því jörð-
in seld álíka dýrt, eða jafnvel öllu ódýrara, en orðið
hefði eftir sömu reglu fyrir 30 — 40 árum.
En er svo sem nokkuð að athuga við það?
Setjum nú svo, að á þessum tíma hafi verið lögð ak-
braut og talsími um þetta bygðarlag, og að það hafi
haft mjög víðtæk áhrif á alla búnaðarháttu þess, og leitt
nienn til, að leita sér þar bólfestu fremur en áður. .Hugs-
um okkur einnig, að stungið hafi verið upp á því, að
leggja járnbraut þar um bygðina, í sambandi við höfuð-
staðinn eða aðra beztu verzlunarstaði landsins, og því verið
spáð um leið, að þá myndi allar jarðeignir þar hækka
stórkostlega í verði, vegna aukinnar eftirspurnar, við
væntanlegan innflutning. — Setjum ennfremur svo, að
í landi þessarar jarðar sæi glöggur maður ótæmandi
auðsuppsprettur ónotaðar, sem enginn hafði komið auga
á fyrir 30 — 40 árum; — sæi land, sem byði sig fram til
ræktunar með plóg og herfi eða til áveitu; — er þá
nokkurt vit í að meta þessa jörð eftír gamla leigumálan-
um? — Er yfir höfuð nokkurt vit í því fyrir þjóðfélag-
ið, að selja hana Arvaðalaust í hendur einum manni, sem
getur svo fyrirhafnarlaust stungið í sinn vasa allri þeirri
verðhækkun, sem samgöngubætur og vaxandi eftirspurn
liafa á jörð hans? Eða vill nokkur halda því fram í al-
vöru, að það hafi verið þessum bónda að þakka, að
þessar samgöngubætur komust á og jörð hans hækk-
aði í verði við það? — Þjóðfélaginu var það að þakka,
beinlínis og óbeinlínis, og það á að njóta ávaxtanna af
verkum sínum.
Og vill nokkur halda því fram, að það hafi verið bónd*
4