Réttur - 01.08.1953, Qupperneq 7
RETTUR
143
mitt heilsuspillandi íbúðir vera féþúfu fyrir húsnæðisbraskara
íhaldsins. — Og þegar mannleg hamingja er orðin aukaatriði, af því
auðsöfnunarstefnan er sett í hásæti, þá þarf engum getum að því
að leiða með hvílíkri fyrirlitningu og hatri auðvaldið meðhöndlar
manndóm og manngildi, sem eðlilega verða hættulegir þrepskildir
á vegi amerísks og íslenzks peningavalds til algerrar drottnunar
yfir íslandi, yfir kjörum og hugum íslenzkrar þjóðar.
3. Einokunarauðvald Reykjavíkur með óttann að
vopni og atvinnukúgunina leggur til atlögu gegn
manngildi íslendinga.
Auðmannakhkur íhalds og Framsóknar í Reykjavík hafa sölsað
undir sig öll völd yfir atvinnulífi íslands og eru orðnar einokunar-
auðvald, sem hefur kverkatak á efnahagslífi þjóðarinnar. Þetta
einokunarauðvald ræður í krafti ríkisvaldsins yfir öllum útflutn-
ingnum, öllum innflutningnum, öllum lánveitingum og í krafti
eignarvalds eða ríkisvalds vfir stærstu atvinnufyrirtækjum lands-
ins. Þetta einokunarvald sitt hyggst auðmannastéttin nú að nota
til þess að beygja þjóðina andiega á kné fyrir sér, fá hana til þess
að kjósa sig af því hennar sé auðurinn og völdin. Og þegar Ihaldið
og Fi’amsókn fer að deila urn það innbyrðis, hvort þeirra skuli
ráða og nota þetta vald, þá þai’f ekki að sökum að spyrja, að auð-
vitað tekst íhaldinu að lokum að einoka vald auðsins og auðmanna-
stéttarinnar fyrir sig, hvernig sem Framsókn skríður fyrir Am-
eríkananum, til að hljóta náð hans. Og það af þeirri einföldu ástæðu
að auðvitað sér ameríska auðvaldið að það verður að byggja yfir-
ráð sín yfir ísl. á bandalagi sínu við auðmannastéttina og treysta
á þjóðfélagsleg völd hennar yfir landslýðnum. Það væri aldrei hægt
að byggja slík völd á Framsókn einni. Til þess er íslenzk bænda-
stétt of ótryggur þjóðfélagslegur grundvöllur að treysta á fyrir
erlenda kúgara þótt þeir hinsvegar sjái að gott sé að reyna að hafa
hana með. Amerískt auðvald er óspart á umboðslaun við Samband
íslenzkra samvinnufélaga. En það þýðir ekki sama og að því takist
að spilla algerlega íslenzkri bændastétt og gera hana að fótaþurrku
amerísks valds.