Réttur - 01.08.1953, Blaðsíða 85
RETTUR
221
herra. Tveir ráðherrar, þeir Hermann Jónasson og Björn
Ólafsson hurfu úr stjórinni, en i stað þeirra komu Kristinn
Guðmundsson og Ingólfur Jónsson. Aðalbreytingin í verka-
skiptingu ráðherranna var sú að Kristinn Guðmunds-
son tók við utanríkismálunum, en undir hann á einnig að
heyra nýtt ráðuneyti ,,varnarmáladeild“, sem á að hafa
með höndum yfirstjórn viðskiptanna við hernámsliðið.
Verður það dýrasta ráðuneyti, sem sögur fara af á íslandi,
mun kosta a. m. k. eina milljón króna á ári. Bjarni Bene-
diktsson fer með dómsmál og menntamál.
Þessi nýja mannaskipan boðar enga stefnubreytingu. Þó
munu sumir hafa tekið fjarlægingu Bjarna Bendiktssonar
úr utanríkisráðuneytinu, sem nokkurt undanhald fyrir
kröfum hinna mörgu, sem voru orðnir langþreyttir á dólgs-
legri framkomu þessarar amerísku leikbrúðu. En Bjarni
Benediktsson og menn af hans gerð, verða þó eftir sem
áður raunverulegir stjórnendur utanríkismálanna.
9. þing Sósíalistaflokltsins
var haldið í Reykjavík um mánaðamótin október—nóv-
ember s.l. ár. Umræður urðu mjög ýtarlegar um stefnu
flokksins og starf og margar gagnmerkar ályktanir sam-
þykktar. Helztar þeirra voru: Stjórnmálaályktun, ályktun
um verkalýðsmál og um lærdóma desemberverkfallsins
1952.
Flokksþingið staðfesti þá stefnu, sem mörkuð var af
síðasta flokksþingi með ávarpi til íslendinga og fram-
kvæmd hennar á tímabilinu svo og stefnuskrá þá, sem
birt var fyrir kosningarnar síðastliðið sumar.
I stjórnmálaályktuninni segir að mikilvægasta verkefni
flokksins nú, sé að bjarga þjóðinni úr helgreipum ameríska
auðvaldsins, og aðferðin er til sigurs leiði, sé að sameina
öll þau öfl, sem á einu eða öðru sviði vilja berjast gegn
því. Þá er bent á hina miklu sigra, sem náðst hafa í hags-
munabaráttu verkalýðsins fyrir forgömgu flokksins í hin-