Réttur - 01.08.1953, Blaðsíða 84
220
RÉTTUR
tunnur af saltaðri Faxasíld og 3000 tonn af frystri Faxa-
síld og auk þess 80 þúsund tunnur af Norðurlandssíld. 1
stað þess kaupa íslendingar ársbirgðir af brennsluolíum
og benzíni, sementi og steypujárni, ennfremur kornvörur
o. fl.
Þetta eru langhagstæðustu verzlunarsamningar, sem ís-
lendingar hafa gert, síðan viðskiptin við Sovétríkin voru
rofin. íslendingar selja vörur, sem eru nær óseljanlegar
í Marshalllöndunum á ágætu verði. Salan til Sovétríkjanna
á freðfiski gefur t. d. um það bil helmingi hærra fiskverð
en salan til Bandaríkjanna. Vörur þær, sem íslendingar
fá í staðinn jafngilda dollaragreiðslu. Verðið er heims-
markaðsverð á hverjum tíma. — Má af þessu marka hvílíkt
gífurlegt tjón íslenzka þjóðin hefur beðið af viðskiptastríði
því gegn Sovétríkjunum, sem hafið var fyrir sex árum að
fyrirskipun Bandaríkjanna og staðið hefur síðan.
Samningurinn við Sovétríkin kom í veg fyrir að fisk-
framleiðsla íslendinga stöðvaðist. Að öðru leyti hefur al-
menningur haft minni hag af þessum hagstæðu samning-
um en efni standa til. Innflutningur varanna frá Sovétríkj-
unum var afhentur einstökum innflytjendum til þess að
þeir gætu tekið af honum fyrirhafnarlausan gróða. Olían
er t. d. ódýrari í innkaupi en áður, þar sem farmgjöld
eru lægri, en heimsmarkaðsverð hafði ekki hækkað. Olíu-
verðið var samt ekki lækkað af þeim söknum. Af olíuinn-
flutningnum frá Sovétríkjunum munu íslenzku olíufélögin
taka 20—30 millj. króna gróða á ári fyrir enga þjónustu.
Breytingar á ríkisstjórninni.
Eftir kosningarnar sagði ríkisstjórnin af sér og munu
þegar hafa verið hafnir samningar milli stjórnarflokkanna
um endurskipun hennar. Þó var um skeið rætt við Alþýðu-
flokkinn um þátttöku, og m. a. bar á góma minnihluta-
stjórn Framsóknar og Alþýðuflokksins. 11. september var
nýi ráðherralistinn birtur. Ólafur Thors var forsætisráð-