Réttur


Réttur - 01.08.1953, Side 20

Réttur - 01.08.1953, Side 20
156 RÉTTUR því mannvitið í henni of mikið var. Menn álpast á það kannske seinna. En svo hefur tregnúinn tíminn sér breytt, og’ tillækin spá mér nú illu, í kirkjuna þýzkuna Lúther gat leitt — ið leiðasta í allri hans villu. En ég held in íslenzka þjóð yrði þjál að þrælseljast uppskafnings dönsku. Svo breytti ég um vélar, um vog og um mál og viðeyk þá skrælingja frönsku. En skáldunum sumum mér óþörf er í, og enga við meinlegri fundum, því það er sem guðspjöllin, gömul og ný, í grun þeirra spretti upp á stundum. Á Fróni hóf latinan mig ekki mjög, þó málæðið spillti þar huga. Með dönskunni hef ég nú lærdóm og lög svo lullað, að vel mætti duga. En alþýðuskáld eru þröskuldur þar, í þjóðernið lífseigju kliða. Og þráin til alls, sem að veglegast var, hún vaknar, er stuðlarnir iða. Þar býr nú sá maður, sem kveðandann kann, hann Kolbeinn. Og fyrr en þeir deyð’ hann — þó IítiII sé slægur í slíkum sem hann — mér slyngara finnst þó að veiða hann. Ég á honum staðinn til freistingar fann — því frávikum held ég hann tími —

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.