Réttur


Réttur - 01.08.1953, Side 59

Réttur - 01.08.1953, Side 59
RETTUR 195 veigaminni takmarkana sem eingöngu eru settar til að misbjóða manngildi þeirra. Á mörgum stöðum krefjast atvinnurekendur þess að fá að leita á verkamönnunum við innganginn í verksmiðjuna, til að ganga úr skugga um að þeir hafi ekki í fórum sínum blöð eða ritlinga sem ekki falla í geð atvinnurekenda eða ríkisstjórnar. í matar- og kaffihléum er verkamönnunum algerlega bannað að ræða nokk- ur málefni er varða samtök þeirra eða um stjórnmál eða að framkvæma safnanir. Það er njósnað um verkamennina til að komast að skoðunum þeirra, og þeir sem hafa skoðanir, er ekki falla í geð atvinnurekenda, eru ofsóttir eða reknir úr vinnu að dæmi fasista. Þetta á sér stað innan veggja verksmiðja í löndum þar sem stjórnarskráin tryggir öllum þegnum málfrelsi, frelsi til að mynda félög og verkfallsrétt. Ameríkanar hafa fundið upp sérstaka kenningu um viðskipti verkamanna og atvinnurekenda. Samkvæmt þeirri „kenningu" eiga allir stjórnendur eins fyrirtækis, frá framkvæmdastjóra niður í verkstjóra, að vera sérfræðingar í félagsmálalöggjöf og samn- ingum, eftir þeim skilningi er atvinnurekandinn leggur í slík plögg. Á þennan hátt á að sannfæra verkamanninn um að túlk- un atvinnurekandans á þeim sé ávalt sú rétta og óþarft sé að leita álits verkalýðsfélagsins í ágreiningsmálum. í stuttu máli, stjórn fyrirtækisins á að koma hér í stað fulltrúa verkalýðssam- takanna. Vitanlega eru svo þeir verkamenn, er ekki vilja fallast á hina „hlutlausu" skýringu atvinnurekandans, taldir óæskilegir og þeim ýtt út af vinnustaðnum við fyrstu hentugleika. Þetta sýnir að amerísku atvinnurekendurnir reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir að verkamennirnir séu skipulagðir, hafi sínar eigin skoðanir á málunum og eigin vilja. Þeir vilja að verkamaðurinn verði viljalaust verkfæri í höndum atvinnurek- andans, hlýði boði hans og banni. Getur óttinn við atvinnuleysi og hungur fyrir hann sjálfan og fjölskyldu hans dregið verka- manninn svo niður í smánina? Nei, það getur ekki verið. Við heitum því hér á þessum stað að manngildi verkamannsins, dýrmætustu eign hans, munum við verja til hins ýtrasta. Við sjáum hér, félagar, ávöxtinn af yfirdrottnun einokunar- auðvaldsins yfir efnahagslífi þjóðanna, skefjalaust arðrán og kúgun í þeim tilgangi að knýja verkalýðinn til að bera byrðarnar af hamslausum vígbúnaði og síðar að geta sent hann á vígvöllinn til að fórna lífi sínu fyrir yfirdrottnun amerísku milljónamær-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.