Réttur


Réttur - 01.08.1953, Page 73

Réttur - 01.08.1953, Page 73
R E T T U R 209 þeim löndum, þar sem launin eru lægst heldur þveröfugt. Ekkert er eins kostnaðarsamt eins og fátækt, heilsuleysi og þekkingarskortur. Til þess nú að ná tæknilegum yfirburðum þarf mannval þjálfaðra vísindamanna og vélfræðinga í miklu stærri stíl en sá fjórðungur úr hundraðshluta vinnandi manna, sem nú er völ á í Bretlandi eða jafnvel einn hundraðshluti eins og í Bandaríkjunum. Það krefst einnig verkamanna, sem eru færir um að skilja, nota og sýna frumkvæði í að hagnýta vísindin í sínu daglega starfi. Þrátt fyrir allt það, sem sagt er í skýrslum um hópafköst í framleiðslunni, geta skilyrði hins síðarnefnda ekki skapazt að fullu í auðvaldsþjóðfélagi. Hér er verkamaðurinn ekki í þeirri aðstöðu að hann skilji til hlítar gildi vísindanna fyrir vinnu hans og laun endur- bóta, sem hann kann að gera eru ýmist smámunir eða — og það oftar en hitt — þær verða til að gera kjör hans verri Dg atvinnu hans ótryggari. Sósíalistiskt hagkerfi hefur ómótmælanlega yfirburði hvað þetta hvorttveggja snertir. í sósíalistisku þjóðfélagi er æðri menntun engin vandlega varin forréttindi handa úrvali, þar er engin þörf á því að tryggja menntun hinna ríku í opinberum skólum, en láta hinum fátækari í té annars flokks menntun aðeins í þeim mæli að drottnunaraðstöðu hinna ríku væri engin hætta búin. Jafnhliða því hafa verka- mennirnir öll tækifæri uppörvunar til að láta að sér kveða við endurbætur í framleiðslunni. Þessir yfirburðir eru ekki aðeins fræðilegar útlistanir. Sovétríkin njóta raunverulega góðs af þeim nú þegar, þar sem menntastofnanir senda frá sér síaukinn fjölda ungra karla og kvenna, sem notið hefur þjálfunar í vísindum og tækni. Vegna þess hve langan tíma tekur að mennta kenn- ara og nemendur þá er það nú fyrst nokkur undanfarin ár, sem ávextirnir af áætluninni um æðri menntun vísindalega og tæknilega eru farnir að koma í ljós. En árangurinn er nægilega ljós. 14

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.