Réttur - 01.08.1953, Side 90
226
RÉTTUR
sér samstarf í sjálfum kosningunum. Hinsvegar hlyti það
að vera vatn á myllu íhaldsins að stofnað yrði til kosninga
með þeim hætti, að kjósendur vissu ekki um hvað þeir
væru að greiða atkvæði. Alþýðuflokkurinn, Þjóðvörn og
Framsókn sinntu þessari tillögu engu. Árangurinn varð
sá að íhaldið hélt meirihluta sínum í bæjarstjórn, enda var
sundrung andstöðuflokkanna óspart notuð í kosningahríð-
inni. Framar öllu er það þó sundrungariðja Þjóðvarnar-
flokksins, sem á sök á því, að ekki tókst að leggja Reykja-
víkuríhaldið að velli að þessu sinni.
Annarstaðar á landinu valt á ýmsu við kosningarnar og
verða ekki leiddar af því almennar ályktanir. Athyglisverð-
ust var sú staðreynd að á nokkrum stöðum tókst samfylk-
ing vinstri aflanna og á öllum þessum stöðum var sókn
af þeirra hálfu, sumstaðar mikill sigur. Alþýðuflokkurinn
tapaði meirihluta sínum í Hafnarfirði, og fer nú ekki lengur
einn með stjórn í neinu bæjarfélagi.
Lærdómur bæjarstjórnarkosninganna er einfaldur.
Stefna sú, sem Sósíalistaflokkurinn hefur markað er rétt.
Samfylking vinstri aflanna er höfuðnauðsyn.
Við nefndarkosningar í hinni nýju bæjarstjórn Reykja-
víkur hafði Þjóðvarnarflokkurinn samvinnu við Alþýðu-
flokkinn gegn Sósíalistaflokknum og tókst þeim þar með
að útiloka hann frá nokkrum nefndum, sem hann annars
átti rétt til að eiga fulltrúa í samkvæmt hlutfallslegum
styrkleika sínum í bæjarstjórn.
Á ýmsum stöðum hefur Sósíalistaflokknum tekizt að
koma á vinstri samvinnu í bæjarstjórnum og hreppsnefnd-
um eftir kosningarnar. Einkum verður að teljast til merkra
tíðinda að í Hafnarfirði hefur tekizt samvinna milli Sós-
ialistaflokksins og Alþýðuflokksins um stjórn bæjarins á
grundvelli málefnasamnings, sem felur í sér djarfa fram-
farastefnu, þar sem tekin voru upp öll helztu atriðin í
bæjarmálastefnuskrá Sósíalistaflokksins.
10. marz 1954.