Réttur - 01.11.1965, Qupperneq 63
RÉTTUR
271
hækkun eftir 2 ár, 91% nætur- og helgidagavinnuálag (Vest-
mannaeyjar 95% nætur- og helgidagavinnuálag).
Er ekki alveg augljóst, aS svona eigi ekki að haga vinnubrögðum
við samninga? Er þetta ekki víti til varnaðar? Svona vinnubrögð
mega forsvarsmenn verkamanna- og verkakvennafélaganna ekki
láta henda sig aftur.
Staða hins ófaglærða verkamanns er ekki slík í þjóöfélagi okkar
í dag, að hann hafi efn.i á þannig vinnubrögðum. Það þjónar engum
tilgangi að fara að ásaka einn frekar en annan, enda orsakir hér
fleiri og flóknari en svo að gerð verði skil í stutlu máli. Hitt er
meginatriði að læra af reynslunni, taka vandamálin til umræðu í
tíma og komast að sameig.inlegum niðurstöðum, það er eitt megin-
skilyrði árangursríkrar baráttu.
Verði hinsvegar svipuð vinnubrögð viðhöfð í samningum fram-
vegis, verður sú áætlun, að gera verkamenn að annars flokks stétt
í þjóðfélaginu auðframkvæmd, því að þá kemur í hlut atvinnurek-
enda að stjórna eftir reglunni: Deildu og drottnaðu.
Svo mætti í fljótu bragði virðast, og hefur raunar verið í letur
fært, að Norðurlandssamn.ingurinn hafi, þrátt fyrir það, að hann
væri ekki sá rammi, sem félög annarsstaöar á landinu gætu hugsaÖ
sér að semja um, létt fyrir þeim, er síðar sömdu, gert þeim bar-
áttuna auÖveldari, rutt fyrir þau brautina. Um þetta eru mjög skiptar
skoðanir. Sá sem vill ná ákveðnu marki er ekki ætíð bættari
þó að félagi hans sætti sig við minna, þvert á móti, hætt er við, að
það sem á vantar verði torsóttara en ella. Höfundur þessarar greinar
er sannfærður um það, að hefðu félögin um land allt borið gæfu til
að standa saman, hefðu deilurnar ekki aðeins staðið skeinur en raun
varð á, heldur eru og yfirgnæfandi líkur til að enn frekari árangur
hefði náðst.
*
Svo sem ákveðið var í ályktun ráðstefnu A.S.Í. fóru fram við-
ræður við ríkisstjórnina um nokkur tiltekin mál og voru í sambandi
við gerð samninganna gefnar út tvær yfirlýsingar, önnur um at-
vinnumálin á Norðurlandi, hin um húsnæðismál.
Yfirlýsing um atvinnumál.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar, um atvinnumálin á Norðurlandi,
sem er árangur samninga um þau mál, er að meginefni, hvað úr-
bætur snertir, almennt orðuð, þar sem talað er um, að eitt og annað