Réttur - 01.11.1965, Blaðsíða 89
J. PEREZ :
Frelsisbaráttan í Venezuela
[„Venezuela, okey!“ heitir bók, sem fyrir skömmu er útkomin og fjallar
um stjórnarfarsástand í Venezuela. Höfundur þessarar bókar er blaðamaður
frá Chile Manuel Cabieses Donoso, sem dvaldist í fimm ár í Venezuela, eða
frá 1958 og til ársins 1963. Hann var því í landinu tíma harðvítugra ógna og
óréttis. En hann sá lengra en á yfirborð ógnarstjórnarinnar, hann sá hvað að
baki bjó: bandarískur auðhringur hafði sölzað undir sig auðlindir þjóðar-
innar og sett þæga leppa i ráðherrastóla til að gæta hagsmunanna.
Venezuela er ríkt land en arðrænt. 55,7 af hundraði þeirra auðæfa, sem
Jiaridaríkin hirða í Suður-Ameríku, eru fengin í Venezuela. En þjóðin sjálf —
íbúar Venezuela — búa við hörmulegan skort. Sláandi dæmi um það er að
1961 létust 55.019 í Venezuela og þar af 14.310 úr hungri.
í greininni, sem hér fer á eftir, og endursögð er úr World Marxist Review
er stjórnarháttum í landinu lýst. Hún sýnir að leikbrúður bandarísku auð-
liringanna f Venezuela, eru þeim mun þægari í taumi, sem þær eru óvandari
að meðulum gagnvart alþýðu landsins; þeim mun dyggari liðsmenn hungurs
og fátæktar sem afrakstur auðhringastjóranna er meiri af landi þeirra.]
Ferill ríkisstjórna Betancourts og Lennis í Venezuela einkennist
aí ntiskunnarlausri glæpamennsku gagnvart allri andspyrnu. 1 des-
ember 1958 tókst Betancourt að aíla sér nægilega margra atkvæði
til að fá alla stærstu stjórnmálaflokkanna til stuðn.ings við ríkis-
stjórn sína. Þá vonuðu Venezuela-búar, að ríkisstjórnin tæki til
við áætlanagerð í átt til stórfelldrar iðnvæðingar og að hún beitti
sér fyrir eflingu lýðræðis og réttinda þegnanna, sem böfðu öll verið
fótum troðin meðan einræðisherrann Jiménez ríkti. En þessar vonir
urðu að engu á fyrstu mánuðum hinnar nýju ríkisstjórnar. 1 stað
þess að taka til við að leysa vandamálin í samræmi við óskir alþýðu
Iandsins og að binda endi á arðrán erlendra aðila á auðlindum þjóð-
arinnar, einbeitti Betancourt sér að því að bæla niður allar kröfur
þjóðarinnar um lýðræðislegt stjórnarfar.