Réttur - 01.11.1965, Side 126
334
RÉTTUR
urríkis. Á þeim fundi baffst Johann
Koplenig, sem verið hefur formaður
flokksinns í 41 ár, undan endurkjöri.
Var Koplenig gerður að heiðursfor-
manni flokksins og á sæti í miðstjórn
hans, en formaður var kjörinn Franz
Muhri, fertugur verkamaður, sem ver-
ið hefur í miðstjórn síðan 1954.
Þá er sagt frá ráðstefnu Kommún-
istaflokks Bolivíu, frá baráttu fyrir
einingu vinstri afla í Sýrlandi og frá
þróuninni í Líbanon.
K. Slawin ritar um hina nýju olíu-
leiðslu frá Sovétríkjunum til Pól-
lands, Tékkóslóvakíu og DDR. I Grin-
berg ritar um tæknibyltinguna og
þýzka alþýðulýðveldið (DDR). Marc-
os Ana, spánskt skáld, ritar um glæpi
spánska fasismans og hvemig hann
þó neyðist til undanhalds nú: Grimau
var myrtur, en Justo Lopez varð harð-
stjórnin að hætta við að myrða sakir
mótmæla hvaðanæva úr heimi og frá
öllum stéttum Spánar að heita má.
Pedro Dnran, einn af leiðtogum sós-
íalistiska alþýðuflokksins í Domin-
iku, skrifar um aðdraganda uppreisn-
arinnar þar. P. S. Singh ritar um har-
áttuna fyrir frelsi pólitísku fanganna
í Indlandi. Síðan eru fregnir frá
Guineu og Ástralíu um baráttu alþýð-
unnar í þessum löndum.
WORLD MARXIST REVIEW.
8. hejli 1965. Prag.
Þetta hefti er að mestu 'helgað
hinni rómönsku Ameríku og þeim
hyltingarhreyfingum, sem þar -eru.
En sem kunnugt er, þá er undiralda
frelsishreyfingarinnar gegn harð-
stjórninni, sem þar ríkir í krafti
bandarísks auðvalds og innlendra
afturhaldsafla, að rísa hærra og
hærra.
Þessir eru helztu höfundar greina í
hefti þessu:
Gilberto Vieira, stjórnmálaritari
miðstjórnar Kommúnislaflokksins í
Kolumbiu, ritar greinina: „Byltingar-
hreyfingin í Koliimbiu. Reynsla síð-
ustu ára.“ Hann minnir i þeirri grein
á þessi ummæli Lenins: „Hvorki
kúgun undirstéttanna né kreppa yfir-
stéttanna megna að skapa byltinguna
— slíkt skapar landinu í hæsta lagi
fúið og morkið mannfélag, — ef það
er ekki til byltingarsinnuð stétt, sem
er fær um að breyta óvirkri kúgun í
virka uppreisn." Vieira kveður slíkt
byltingarástand nú nálgast meir og
meir.
José Sanchez, aðalritari Kommún-
istaflokksins í Salvador, ritar um
þjóðfélagsbreytingarnar þar og stefnu
flokksins.
Luiz Padilla, einn af foringjum
Kommúnistaflokksins i Boliviu, ritar
greinina „Bylting og gagnbylting í
Boliviu.
Cheddi Jagan, forinaður Framfara-
flokks alþýðu í brezku Guyana, ritar
grein: „Gegn þjóðflokkahatri og aft-
urhaldi, með lýðræði og þjóðfrelsi.“
Þá skrifar Eduardo Mora Valverdc,
einn af foringjum alþýðunnar í Kosta-
ríka, um efnahagsástandið í Suður-
Ameríku og þróun byltingarinnar.
José Manuel Fortuny, einn af leið-
togum alþýðu í Guatemala, ritar
greinina: „Er byltingin i rómönsku
Ameríku orðin erfiðari?“
Pedro Motta Lima, rithöfundur í
Brasilíu, skrifar um „hyltingarþróun
og vandamál lýðræðis í rómönsku
Ameríku"
Síðan koma greinar um önnur.efni:
IValter Hollitscher, miðstjórnar-
meðlimpr aiisturríska Komtnúnista-
flokksins, ritar greinina: Samtal milli
marxista og kaþólskra. Segir þar frá
viðræðum, er áttii; sér stað 29. apríl
til 2. maí 1965 í Sftlzhurg. í,AuSturríki
að undirlagi kaþólks guðfræðingu-