Réttur - 01.07.1930, Síða 67
Rjettur] BYLTINGARHREYFINGIN I ICÍNA 2Ö3
hafa kynst honum. Kristindómurinn hefir verið notað-
ur til þess að brjóta auðvaldinu brautina inn í Kína.
Kristindómurinn og auðvaldið hafa riðið sömu dróg-
inni inn í Kína, kristin trú hefir verið þæg þei’na auð-
valdsins í böðulsverkum þess í landinu. Þessvegna er
það skylda ails hins stjettvísa lýðs að vinna á móti
kristniboðsstarfseminni í Kína, því að hún er ekkert
annað en umboðsstarf auðvaldsins, hún er nýtt opium
fyrir hinn vinnandi lýð í landinu.
En hverjir eru þessir kínversku »bófaflokkar«, sem
jeg gat um áðan og hversvegna eru kommúnistarnir
nefndir í sambandi við þá? Það eru kínverskir verka-
menn og bændur, sem eru að berjast fyrir frelsun
stjettar sinnar undan ánauðaroki erlendra og inn-
lendra ræningja. Þessir menn kallast »bófar« á máli
borgaranna, þeir eru mældir á sama mælikvarða og ó-
breyttir stigamenn og ræningjar. En bak við sögurnar
um gripdeildir þeirra og rán sjest frelsisbarátta hinn-
ar vinnandi alþýðu Kína, sem hefir enn á ný risið upp
til þess að sækja frelsi sitt og sjálfstæði í hendur hins
brynvarða alheimsauðvalds. Alþýðan kínverska berst
nú upp á líf og dauða, hungruð og klæðlaus og lítt búin
vopnum, við eitt hið magnaðasta afturhald, er menn
þekkja — hershöfðingjaklíkurnar kínversku, sem eru
leigðir þrælar stói’veldanna, er halda landinu sundruðu
til þess að geta því betur komið ár sinni fyrir borð og
haldið lýðnum í efnalegri og pólitískri áþján. Baráttan,
sem þessir »bófar« heyja, er sama baráttafl og allar
kúgaðar stjettir standa í: stjettabarátta gegn imperial-
isma og auðvaldi um heim allan.
Yfirgangtir auövaldsins og frelsisbŒrátta kinverskrar
alþýöu.
Frá því um miðja 19. öld hefir ekki lint árásum auð-
valdsins inn í Kína. Hið hákristilega Bretland reið þar
fýrst á vaðið með hinu illræmda »ópíumstríði« laust
19*