Réttur - 01.07.1978, Page 46
10. Niðurgreiðslu og niðurfærslu verð-
lags verði áfram haldið 1979 með
svipuðum hætti og áformað er í fyrstu
aðgerðum 1978.
11. Lögð verði áhersla á að halda ströngu
verðlagseftirliti og að verðlagsyfirvöld
fylgist með verðlagi nauðsynja í við-
skiptalöndum til samanburðar. Leit-
að verði nýrra leiða til þess að lækka
verðlag í landinu. Sérstaklega verði
stranglega hamlað gegn verðhækkun-
um á opinberri þjónustu og slíkum
aðilum gert að endurskipuleggja
rekstur sinn með tilliti til þess. Gild-
istöku 8. gr. nýrrar verðlagslöggjafar
verði frestað.
Skipulag og rekstur innflutnings-
verslunarinnar verði tekið til ræki-
legrar rannsóknar. Stefnt verði að
sem hagkvæmustum innflutningi á
mikilvægum vörutegundum, m. a.
með útboðum.
Úttekt verði gerð á rekstri skipafé-
laga í því skyni að lækka flutnings-
kostnað og þar með almennt vöruverð
í landinu.
Fulltrúum neytendasamtaka og
samtaka launafólks verði gert kleift
að haía eftirlit með framkvæmd verð-
lagsmála og veita upplýsingar um
lægsta verð á lielstu nauðsynjavörum
á hverjum tíma.
12. Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
verði efldur til að vinna gegn sveiflum
í sjávarútvegi.
13. Skattaeítirlit verði liert og ströng við-
urlög sett gegn skattsvikum. Eldri
tekjuskattslögum verði breytt með
hliðsjón af álagningu skatta á næsta
ári og nýafgreidd tekjuskattslög tek-
in til endurskoðunar.
Sérstakar ráðstafanir verði gerðai'
til að koma í veg fyrir að einkaneysla
sé færð á reikning fyrirtækja.
Önnur mál
3.1 Landbúnaður. Stefnt verði að sen'
hagkvæmustu rekstrarformi og rekstrai'
stærð búa og að framleiðsla landbúnaðai'
vara miðist fyrst og fremst við innati'
landsmarkað.
Skipuð verði samstarfsnefnd bænda °S
neytenda, sem stuðli að aukinni fjöl'
breytni í búvöruframleiðslu og til saiD'
ræmingar óskum neytenda með aukna
innanlandsneyslu að marki.
Endurskoðað verði styrkja- og útflutH'
ingsbótakerfi landbúnaðarins með það að
marki að greiðslur komi bændum að
betri notum en nú er.
Lögunum um Framleiðsluráð land-
búnaðarins verði breytt, m. a. á þann hátt
að teknir verði upp beinir samningat
fulltrúa bænda og ríkisvaldsins um vefð-
lags-, framleiðslu- og önnur hagsmunanral
landbúnaðarins. Jafnframt verði Frarfi'
leiðsluráði veitt heimild til að hafa nreð
verðlagningu áhrif á búvöruframleiðsln
í samræmi við markaðsaðstæður.
Rekstrar- og afurðalánum verði breyd
þannig að bændur geti fengið laun sin
greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostn-
að svipað og aðrir aðilar fá nú.
3.2 Fiskveiðar og vinnsla. Stjórnun
fiskveiða og fiskvinnslu verði endurskoö'
uð og gerð áætlun um sjávarútveg °S
liskiðnað. Miðist hún við hagkvæma °n
arðsama nýtingu fiskistofna án þess fú
þeim verði stefnt í hættu. Staðbundin
vandamál verði tekin til sérstakrar með'
ferðar og leyst markvisst og skipuleg3;
Útflutningsverðmæti verði aukin með
betri nýtingu, aukinni vinnslutæknr
190