Réttur - 01.07.1978, Page 51
Þá dreymir m. a. um það, braskara Sjálfstæðisflokksins, að fá að stela þessari slippstöð á Akureyri!
landinu var. Því skykli komið upp einkarekstri í
verulega stórum stíl — og „Marshallhjálpin" notuð
til þess.
Bandarfkjaauðvaldið ákvað að koma sér upp hér
sterku einkaauðvaldi sem yrði því þægt og undir-
gefið i að ná völdunum yfir rtýfrjálsri þjóð.
hað voru einkum tvær aðferðir sem fulltrúar
Bandaríkjaauðvaldsins ráðlögðu tilvonandi þjónum
sínum að nota til slíks.
Önnur aðferðin var að hækka dollarann í verði en
fella íslensku krónuna í Jivert sinn er verkalýðurinn
liækkaði kaupgjaldið, - cn þá (1950) liafði ameríska
yfirstjórnin á efnahagsmálum Islands þegar fyrir-
skipað hækkun dollarans úr 6,50 í 16,32 - og meiri-
hluti Alþingis hlýtt. - En þessu ráði var ekki aðeins
beint gegn öllu launafólki lreklur var með þessu
verið að afskrifa lán þau er burgeisar höfðu fengið
í bönkum þjóðarinnar - og hækka eignir þeirra að
sama skapi í verði. í krafti þessarar „amen'sku"
stefnu hefur megninu af sparifé almennings og sjóð-
um verkalýðs- og starfsmannafélaga smám saman
verið stolið .Dollarinn sem 1947 var 6,50 kr. er nú
rúmar 300 kr. Og þótt íhaldið liafi ekki gelað hindr-
að að íbúðarbyggjendur af alþýðustétt nytu nokk-
195