Réttur - 01.07.1978, Side 56
„Þegar í hart kemur“
„Engir einstakir menn geta ltald-
ið rnáliun vorum áiram, þegar í
ltart kemur, nema þeir séu vissir
um aðstoð alþýðu, hvort sem þeir
sjrtlfir standa eða falla."
Jón Sigurðsson, forscti, á Mikjáls-
messu, 29. sept. 1851 i bréfi til
Stefáns Jónssonar á Reistará við
Eyjafjörð.
■K
„Taktu nú ekki orð mín samt
sem illu gamni fagni ég,
þegar að svo af skornum skammt
skiýlaus rétturinn kemst á veg.
Hefndardagurinn eftir er,
„en enginn veit, nær þetta sker“.
Samt sem áður held ég hitt,
hver muni seinast éta sitt.“
Jónas Hallgrlmsson: í „Annað
kvœOi um alþing" (1843).
Gömul lýsing á því sem nú
heitir verSbólgugróði
„Er það gleði andskotans,
umboðslaun og gróði,
fémunir þá fátæks manns
fúna í rfkra sjóði.“
Bólu-Hjálmar.
■k
Forspá um hlutafélög
[Þegar hótanir um uppsagnir á
verkafólki dynja nú yfir frá ein-
ræðisherrum í atvinnulífinu, er
gott að minnast liverju Þorsteinn
Erlingsson spáði, er hann ræddi
verkefni verkalýðsins og sagði að
„auragræðgin sé að taka hér trölla-
skref einmitt á þessum árum".]
„Einkum kemur þetta berlega
fram, þar sem hlutafélögin magn-
ast, þessi ábyrgðarlausu og sam-
viskulausu illkvikindi, sem geta
látið forstöðumannsræfil reka burt
eða svelta vinnulýð, sem án þess
nokkur maður geti hreyft hár á
höfði peningaharðstjóranna, sem
hafa hann fyrir höðul á verka-
mennina, (il þess að hækka árs-
gróðann um nokkra aura og jafn-
vel án þess nokkur maður viti
hverjir hluthafarnir eða forráða-
mennirnir eru."
Þorsteinn Erlingsson i greininni
„Verkefni" i Alþýðublaðinu
(gamla) 21. janúar 1906, 1. árg. 2.
hlað, bls. 11.
-K
Atvinnurekendur hóta
verkbanni?
„Eramkvæmdastjórnarfundur
Vinnuveitendasambandsins hefur
gert samþykkt þar scm sambandið
telur nauðsynlegt að koma í veg
fyrir hækkun vcrðbótagreiðslna á
laun og þar með að Vinnuveitenda-
sambandið samþykki ekki aftur-
köllun verklýðsfélaganna á upp-
sögnum kaupliða kjarasamning-
anna og muni það „freista þess að
ná samningum um þá við verklýðs-
félögin miðaða við raunverulega
fjárhagsafkomu atvinnuveganna",
eins og þar segir.
Atvinnurekendur vilja með öðr-
um orðum hafa samninga lausa og
eiga þess kost að lýsa verkbanni ef
þeim þurfa þykir.
Þjóðviljinn 28. okt. 1978.
*
Lýðræði?
Hverjir ráða á íslandi?
Ríkisstjórnin samþykkli f gær að
staðfesta síðustu hækkun Verðlags-
nefndar á öli, gosdrykkjum og
smjörllki eftir að tilraunir til að
ná samkomulagi við iðnrekendur
og fulltrúa launþega f Verðlags-
nefnd höfðu farið út um þúfur.
Svavar Gestsson viðskiptaráð-
herra komst svo að orði um þetta
mál 1 gær:
Þvf miður hefur ekki tekist að
hindra hina miklu hækkun á öli,
gosdrykkjum og smjörlíki, sem hef-
ur verið yfirvofandi um hrið. Þrátt
fyrir tilraunir sem gerðar hafa ver-
ið til að ná samkomulagi í Jrcssari
deilu hefur ekki tekist að ná ár-
angri og er 25% hækkun á um-
ræddum vörutegundum því knúin
fram me3 lokun verksmiðja, hót-
unum og yfirvofandi atvinnumissi
margra hundraða iðnverkamanna.
Það var þessvegna að ríkisstjórn-
in tók þá ákvörðun sem fram
kemur i fréttatilkynningu hennar.
Það var nauðsynlegt að höggva
á hnútinn, en þessi deila vekur
mörg umhugsunarefni sem von-
andi verður hægt að ræða síðar.
Þjóðviljinn, 28. olit. 1978.
200