Réttur - 01.01.1980, Side 16
Fánasöngur rauðliðanna
eftir Jón Rafnsson
(Lag. Hallgrímur Jakobsson)
Jóíi Rafnsson var ckki aðeins baráttumaðurinn
og skipuleggjandi verkfallanna. Hann var og skáld-
ið, seni hvatti fólkið til dáða.
Nú þegar hann er kvaddur, — nú á þessu ári,
þegar hálf öld er liðin frá stofnun Kommúnista-
flokks íslands, birtum við eitt kröftugasta kvæði
hans, óðinn til fánans rauða, sem þúsundir og aftur
þúsundir sósíalista hafa barist undir öldum saman.
]>að var þróttur hugsjónarinnar í þcssu kvæði, trú
á kraft og kyngi ltins fátæka lólks, er það hóf frelsis-
söng sinn. Enn standa lifandi fyrir hugskotssjónum
okkar þeir fjöldafundir, þar sem Stefán Ogmunds-
son og Gunnar Sigmundsson sungu þetta kvæði við
lag Hallgríms Jakobssonar í tíð Kommúnistaflokks-
ins á fundum vígreifs fólks í Bárunni og Bröttugötu-
salnum forðum — og fjöldinn tók undir.
Kvað við uppreisnarlag, lýsti’ af öreigans brá
þegar árgolan snerti þinn fald.
Þú varst frelsisins tákn, sem að treystum við á,
nú er takmarkið: Réttur og vald.
Og þú beindir oss leið gegnum skugga og skin,
þar sem skiptast á ylur og g]óst.
Þig við lcerðum að elska og vernda sem vin
og að verja okkar fylkingarbrjóst.
Láttu alls staðar gjalla þinn uppreisnar söng
frá unnum að háfjallabrún
og vér heitum að fylkja okkur fast um þá stöng,
þar sem fáni vor blakktir við hún.
Þegar daprast oss gangan við ellinnar ár,
þegar opnast hin síðustu skjól,
signdu blóðrauði fáni vor héluðu hár
undir hœkkandi öreigasól.
Lát á blóðrauðum grunni þá bera við ský
okkar blikandi hamar og sigð.
Fyltu vetrarins heim þínum voraldar gný
til að vekja um gjörvalla byggð.
Láttu alls staðar gjalla þinn uppreisnar söng
frá unnum að háfjallabrún
og vér heitum að fylkja okkur fast um þá stöng,
þai sem fáni vor blakktir við hún.
b