Réttur


Réttur - 01.01.1980, Side 18

Réttur - 01.01.1980, Side 18
Úr sovésku myndinni Ófullgert tónverk fyrir sjálfspilandi píanó, eftir Nikita Mikhalkof. sumar nýjar. Ég held að óhætt sé að full- yrða, að aldrei hafi verið á boðstólum svo mikið af svo góðum og merkum kvik- myndum samtímis í Reykjavík. Aðsókn- in sýndi líka, að borgarbúar kunnu vel að meta þessa veislu. 23.540 miðar voru seldir í aðgöngumiðasölu Regnbogans dagana sem hátíðin stóð. Þó kvörtuðu margir sáran yfir að hafa ekki getað séð allar þær myndir sem hugurinn stóð til að sjá, og er ekki að efa að aðsóknin hefði haldist góð ef unnt hefði verið að fram- lengja hátíðina. Þetta bendir ótvírætt til þess, að í Reykjavík fer sá hópur fólks ört vaxandi, sem vill sjá góðar kvikmynd- ir, og hefur áhuga á kvikmyndinni sem list, en ekki innantómri afþreyingu. Þegar spurt er livað iiafi helst sætt tíð- indum á joessari liátíð, koma margar myndir í hugann. Kannski var það merki- legast að fá tækifæri til að kynnast tveim- ur af merkustu kvikmyndastjórum sam- tíðarinnar betur en áður hefur verið mögulegt, vegna þess að sýndar voru fleiri en ein mynd eftir hvorn þeirra. Þar á ég við Pólverjann Andrzej Wajda og Spánverjann Carlos Saura. Andrzej Wajda átti þrjár myndir á há- tíðinni, og eru það jafnframt þrjár nýj- ustu myndir hans: Mwrmaramaðurinn (1976), Án deyfingar (1978) og Stúlkurn- ar frá Wilko (1979). Þessar myndir sýna okkur margar hliðar á mjög fjölhæfum 18

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.