Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 19
Marmaramaðurinn var ein þriggja mynda Pólverjans Andrzej Wajda, sem sýndar voru á hátíðinnni.
listamanni. í Marmaramanninum fjallar
liann um Stalíntímann og leifar hans í
nútímanum. Þetta er mynd sem kallar á
uppojör við fortíðina og jafnframt upp-
gjör við það sem er lágkúrulegt og tæki-
færissinnað í nútímanum. Án deyfingar
gerist líka í Póllandi nútímans og fjallar
um uppgjöf manns, sem stóð á hátindi
frægðar og frama og missti skyndilega
fótfestuna, bæði í einkalífinu og úti í
þjóðfélaginu. Þessi mynd var einkurn at-
hyglisverð fyrir jrað, að hún sýndi okkur
ekki „jákvæða hetju“ í baráttu við
myrkraöflin, heldur mann sem hefur glat-
að skilningi á umhverfið og lifir í blekk-
ingum, umvafinn goðsögninni um sjálf-
an sig. Urn leið og eitthvað bjátar á liryn-
ur heirnur hans til grunna. Þjóðfélags-
ádeilan í þessari mynd er jafnvel enn
beittari en í Marmaramanninum, ef
grannt er skoðað. Þriðja mynd Wajda,
Stúlkurnar frá Willio, er hinsvegar af allt
öðrurn toga spunnin. í henni er farið
aftur í tímann, til fjórða áratugar þess-
arar aldar, og þjóðfélagsádeila er þar að
mestu fjarverandi. Þetta er sálræn og
„nostalgísk" mynd um veröld sem var og
kemur aldrei aftur.
Carlos Sauia var einn af örfáum
spænskum kvikmyndastjórum sem störf-
uðu við kvikmyndagerð á Franco-tíman-
um án þess að ánetjast fasismanum. Hann
komst upp með að gagnrýna ótalmargt í
fari spænskrar borgarastéttar, sennilega
vegna. þess að hann notaði táknmál, sem
ritskoðararnir liafa lireinlega ekki skilið.
19