Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 22
NIÐINGSVERK
EITURBYRLARA
Hinar voldugu fréttastofur ameríska auðvaldsins, sem einoka að heita má skoðana-
myndun í stórum hluta heims, hafa undanfarið kappkostað að breiða út lygasögu um
eiturhernað af háifu Vietnam.
Þetta framferði minnir fullmikið á kænsku þjófsins, sem tók að hrópa: „Grípið þjóf-
inn“ — til þess að komast undan eftir afbrot sín. — Að sama skapi er reynt að þegja
afbrot Bandaríkjahers í hel.
Það var ekki aðeins að sá her varpaði meira sprengjumagni yfir hið litla Víetnam
en varpað var í síðari heimsstyrjöldinni yfir Evrópu og Austurlönd öll, heldur voru og
önnur ægileg vopn notuð og verður hér aðeins rætt um eitt: eitrið.
En rétt er um leið að minna á að árásaraðilinn, Bandaríkin, lofuðu að greiða Víet-
nam stríðsskaðabætur, er þeir fóru loks þaðan í burtu.
Hin ríku Bandaríki hafa svikið Víetnam um að gera þetta: Það minnsta, sem þau gátu
þó gert til að bæta fyrir misgerðir sínar.
En nú reyna þau að sverta Víetnam í augum heimsins, óskapast yfir eymdar-
ástandi á landsvæðum, sem þau sjálf hafa eyðilagt, máske um langan aldur, með eit-
urhernaði sínum. — Það er sem níðingurinn og hræsnarinn tvímenni á iygafákinum,
þegar hin gerspillta yfirstétt Bandaríkjanna talar til heimsins.
22