Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 36
Celia Sanchez var hægri hönd Fidels Castro. Eft-
ir byltinguna 1959 komst þessi gamansami spurn-
ingaleikur á kreik: „Hver stjórnar Kúbu?“ —
„Fidel!" — „Og hver stjórnar Fidel?“ — „Celia!“
irnir og brostu breitt, — það er allt ann-
að mál. Hún er eina konan í heiminum,
sem fær að fara niður í þessa námu!
Eitt af því marga sem Celia afkastaði
var að lialda saman öllum skrifuðum
gögnum um byltinguna á Kúbu, allt frá
því byltingarstarfsemin hófst með árásinni
á Moncada-herbúðirnar árið 1953. Kúbu-
menn hafa fyrir satt að án þessa framtaks
hennar myndu sagnfræðingar framtíðar-
innar lenda í miklum vanda við að fá
nokkurn botn í þessa byltingu og þróun
hennar frá upphafi.
í ræðu sinni við útförina sagði Arm-
ando Hart menntamálaráðherra m. a. að
líf og starf Celiu Sanchez væri verðugt
fordæmi fyrir alla byltingarmenn á
Kúbu. Þeir ættu að taka sér dugnað
hennar, ósérplægni og hógværð til fyrir-
myndar.
„Fyrir 23 árum, þegar Celia skipulagði
byltingarstarfsemina í Oriente-héraði,
voru verkefnin risavaxin. En þau voru
framkvæmd, og kúbanska þjóðin tók
sögulegt stökk framávið, sem ekki á sér
neina hliðstæðu í sögu Ameríku. Þær
framfarir sem síðan hafa orðið eru stað-
reynd sem jafnvel óvinir okkar geta ekki
neitað . . . í dag bíður þjóðar okkar
verkefni, sem er ekki síður risavaxið.
Við þurfum að sigrast á innri veikleik-
um okkar og ráðast af dirfsku og hug-
kvæmni gegn þeim erfiðleikum sem
stafa af hlutlægum vandamálum úti í
heimi er hafa áhrif á Kúbu“ — sagði ráð-
herrann.
í lok ræðunnar sagði liann, að Kúbu-
menn ættu að heiðra minningu Celiu
Sanchez með því að vinna stöðugt, og í
anda hennar, að framgangi byltingarinn-
ar.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
i
36
k